EPISODE · Nov 25, 2025 · 20 MIN
Þótti nóg um framgöngu Íslands og Noregs, ofbeldi gegn konum í netheimum og afkoma útgerðanna
from Spegillinn
Hagsmunagæsla utanríkisþjónustu Íslands og Noregs í tengslum við verndartolla Evrópusambandsins á járnblendi var ein sú víðtækasta sem ráðist hefur verið í. Reyndar þótti embættismönnum ESB framganga vera slík að þeir sáu ástæðu til að kvarta undan henni. Konumorð eru ekki framin í tómarúmi, skrifar Sara Hendriks, framkvæmdastjóri Stefnumótunar Sameinuðu þjóðanna í málefnum kvenna, heldur eru þau oft endapunktur á löngu, samfelldu ofbeldisferli sem getur byrjað með drottnunargirni, hótunum og áreitni, þar á meðal rafrænni. Kynbundið, stafrænt ofbeldi gegn konum er einmitt það sem athyglinni er sérstaklega beint að á alþjóðadegi gegn ofbeldi á konum að þessu sinni. Árið 2025 verður gott ár í íslenskum sjávarútvegi og markmiðið sem fyrr er að reyna að fá sem mest verðmæti út úr hverjum fiski sem veiddur er. Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi og meðeigandi hjá Deloitte, fór yfir afkomu í sjávarútvegi á Sjávarútvegsdeginum sem haldinn var í dag. Það eru stórar tölur í uppgjörum fyrirtækjanna, milljarðavelta og umræðan á þá leið að þarna græði menn á tá og fingri.
NOW PLAYING
Þótti nóg um framgöngu Íslands og Noregs, ofbeldi gegn konum í netheimum og afkoma útgerðanna
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.