Spegillinn

PODCAST · news

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

  1. 782

    Sveitarstjórnarkosningar og dvínandi fjölmiðlafrelsi

    Hart er sótt að frelsi og sjálfstæði fjölmiðla í heiminum. Stjórnvöld og stórfyrirtæki, auðkýfingar og einvaldar, glæpagengi og löggæslustofnanir víða um heim taka þátt í þessari aðför og sækist hún giska vel. Þannig reiknast sérfræðingum alþjóðlegu V-Dem - rannsóknastofnunarinnar í lýðræðismálum, sem er með höfuðstöðvar sínar í Gautaborgarháskóla, svo til að fjölmiðlafrelsi hafi minnkað um tíu prósent á síðustu rúmlega tíu árum. Niðurstöður nýjustu rannsóknar alþjóðlegu samtakanna Blaðamenn án landamæra eru á svipuðum nótum. Á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardaginn eru 302.688 manns. Það er kosið í 57 sveitarfélögum, kjörstaðir eru 129 og kjördeildirnar 293. Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar skrifaði í grein á Vísi um helgina að ekki væri fjarri lagi að áætla að 1.400 til 1.500 manns yrðu að störfum í kjördeildum á laugardaginn. Og fjöldi þeirra sem komi með einum eða öðrum hætti að undirbúningi og framkvæmd kosninganna hlaupi á þúsundum og handtökin séu nánast óteljandi.

  2. 781

    Eldri atvinnuleytendur, hanta-veiran og skemmtiferðaskip

    Eldri atvinnuleytendur telja sig verða fyrir fordómum vegna aldurs en vinnumiðlanir og rannsakendur segjast ekki kannast við aldursfordóma. Atvinnumarkaðurinn sé flókinn og atvinnuleit krefjist vinnu. Hanta-veiran dreifist allt öðru vísi en Covid og inflúensa, og smitast ekki nema við náið samneyti um lengri tíma. Þetta eru skilaboð Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem vill slá á ótta við heimsfaraldur. Það gengur hægt að ná til baka skemmtiferðaskipum sem strikuðu Ísland út af siglingakortinu í kjölfar innviðaskatts sem lagður var á skipafélögin fyrir tveimur árum. Útlitið er þó skárra eftir að gjaldið var lækkað.

  3. 780

    Íransstríðið og flugið, lokasprettur kosningabaráttunnar og ný leyniþjónusta Svía

    Flugfélög víða um heim eru farin að bregðast við ört hækkandi eldsneytisverði og búa sig undir að það hækki jafnvel enn frekar, dragist stríðsátökin við Persaflóa á langinn. Verðhækkunina má nefnilega fyrst og fremst rekja til árásarstríðs Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran, og viðbrögð flugfélaganna eru meira og minna öll á einn veg: Fækkun flugferða, hækkun fargjalda og lækkun kostnaðar. Kosningabarátta fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí er komin á lokasprettinn, ellefu dagar til kosninga og má búast við að herðist á skrúfunni víða, rætt við Evu H. Önnudóttur prófessor um kosningarnar. Svíar ætla að stofna nýja leyniþjónustu, til viðbótar við þær leyniþjónustustofnanir sem þeir reka nú þegar. Sænska utanríkisleyniþjónustan á að safna upplýsingum og njósna – og það strax frá og með næstu áramótum.

  4. 779

    Hantaveiran, Eistar vígbúast og hlýindaárið mikla 2025

    Tiltölulega fágæt en iðulega banvæn veira, Hantan-veiran, dró að líkindum þrjár manneskjur til dauða í hollensku skemmtiferðaskipi, sem væntanlegt er hingað til lands síðar í maí. Hvaða veira er þetta, hversu skæð er hún og er einhver hætta á ferðum ef skipið kemur hingað? Grétar Þór Sigurðsson ræddi við Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum. Ævar Örn Jósepsson tók saman. Eina leiðin til að eiga við Rússa er að vígbúast og mæta þeim af hörku segir Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands. Eistar vilja að Norðurlandaþjóðirnar, Eystrasaltsríkin, Pólland, Bretland, Þýskaland og Frakkland myndi varnarbandalag sem verði þess búið að takast á við ógnina frá Rússlandi, sem Eistar eru sannfærðir um að blasi við. Ingólfur Bjarni Sigfússon hitti Tsahkna. 2025 var hlýjasta ár í sögu veðurmælinga á Íslandi, og það þriðja hlýjasta á heimsvísu. Fjölmörg hitamet voru slegin hérlendis og annars staðar í Evrópu, einkum á norðurslóðum, og skógar- og gróðureldar sviðu meira land í Evrópu en dæmi eru um í áreiðanlegum, skráðum heimildum þar um. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  5. 778

    Neyðarbirgðir, kosningar og mannréttindi

    Íslendingar eiga vasaljós og rafhlöður og telja sig almennt vel undir það búna að takast á við hamfarir, samkvæmt nýrri könnun hugveitunnar Vörðu. Hins vegar virðist vanta töluvert upp á raunverulegan undirbúning og mat á því hvaða hamfarir gætu orðið og hvers konar undirbúning þær gætu kallað á. Ingólfur Bjarni Sigfússon fjallar um þetta og ræðir við þá Kristin Hrobjartsson og Runólf Þórhallsson. Í dag höfðu 1.854 kosið utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Þetta eru nærri tvöfalt fleiri en á sama tíma 2022, þegar 942 höfðu kosið. Það eru tvær og hálf vika til kosninga og vinna við undirbúning stendur því sem hæst. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Sigríði Jóhannesdóttur, sem situr í yfirkjörstjórn Langanesbyggðar. Það er ekki aðeins á alþjóðasviðinu sem sótt er að mannréttindum með markvissum hætti. Síauknar árásir eða í það minnsta aðfarir yfirvalda í hinum ýmsu ríkjum að frelsi og réttindindum eigin borgara eru Amnesty líka mikið áhyggjuefni og þessi þróun er langt í frá bundin við ríki sem Vesturlandabúar vilja skilgreina sem einræðis- eða valdstjórnarríki. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Önnu Lúðvíksdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty International. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  6. 777

    Samdráttur í ráðningum, hnignandi mannréttindi og þátttaka í bólusetningum.

    Einn fylgifiskur Covid-19 var aukin umræða um andstöðu gegn bólusetningum, sem var þó ekki alveg nýtt fyrirbæri. Kannanir erlendis hafa bent til að traust á bóluefnum hafi farið minnkandi frá 2015. Ný samantekt Council for Foreign Relations sýnir glögglega að nánast hvert sem litið er hafa efasemdir farið vaxandi og þátttaka þverrandi á liðnum árum. Ein afleiðingin er að sjúkdómar sem nánast hafði tekist að útrýma, eins og mislingar, hafa náð verulegri útbreiðslu á ný. Það hefur dregið úr ráðningum hjá íslenskum fyrirtækjum og fleiri fyrirtæki en áður hyggjast fækka starfsfólki. Þá gefur nýsköpun eftir og minna er fjárfest. Þetta sýnir könnun sem landshlutasamtök sveitarfélaga gera á þriggja ára fresti – árið 2025 að þessu sinni – og ríflega 2.000 fyrirtæki um allt land tóku þátt í. Í nýjustu ársskýrslu Amnesty International, um stöðu mannréttinda í heiminum í fyrra, kemur fram að hættulegar árásir á alþjóðastofnanir og -samvinnu, alþjóðalög og rétt og borgaralegt samfélag, hafi einkennt árið 2025. Við blasi heimsskipan sem markast af kynþáttafordómum, áhrifum feðraveldis og ójöfnuði, þar sem réttindi fólks og ríkja eru ekki virt. Varað er við hruni núverandi heimsskipanar, „það vofir ekki lengur yfir, það stendur yfir,“ segir í ársskýrslunni.

  7. 776

    Grindavík og Hveragerði teljast í mesta hættuflokki í nýju mati Veðurstofu Íslands á hraunavá á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu sem birt var síðdegis. Hættumatinu er ætlað að kortleggja hvar hættur geta skapast í ljósi gossögu svæðisins. Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, Veðurstofustjóri, og Sigrún Karlsdóttir, skrifstofustjóri náttúruvár, greindu frá úttektinni og næstu skrefum. Ósigur Viktors Orbans í kosningunum í Ungverjalandi um þarsíðustu helgi var ofarlega í huga leiðtoga stjórnmálaflokka á hægri væng evrópskra stjórnmála, sem söfnuðust saman í Mílanó á laugardaginn, til hvetja sitt fólk til dáða fyrir komandi kosningar víða í Evrópu. Sama dag hittust leiðtogar á vinstri vængnum í Barcelona þar sem umræðan snerist að miklu leyti um Donald Trump Bandaríkjaforseta, án þess að hann væri nefndur á nafn.

  8. 775

    Nýjar ratsjár gegn smygli og skuggaflota, Finnafjörður og innflytjendamál

    Hvað eiga smyglarar og skuggaflotinn sameiginlegt? Að vilja ekki sjást, til dæmis á ratsjám, og að vera meðal þess sem nýjum tæknibúnaði Landhelgisgæslunnar verður beint gegn. Í sumar verða teknar í notkun fjórar ratsjár sem verða á völdum stöðum þar sem fylgjast á betur með skipaumferð í kringum landið. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræðir við Finnboga Jónasson, yfirmann greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Miklar breytingar hafa orðið á verkefni því sem snýr að uppbyggingu stórskipahafnar og iðnaðar við Finnafjörð á Langanesi. Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hafa frá árinu 2008 unnið að því að skapa þar tækifæri til atvinnu. Enn er unnið að uppbyggingu við Finnafjörð, eins og Björn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar rekur í samtali við Ágúst Ólafsson. Öfugt við flest önnur Evrópuríki, sem leggja áherslu á að hindra för ólöglegra innflytjenda inn í landið og koma þeim sem þar eru úr landi, hyggjast Spánverjar veita rúmlega hálfri milljón innflytjenda sem þar eru án tilskilinna leyfa dvalar- og atvinnuleyfi til eins árs. Þetta er allt í senn skynsamlegt, gagnlegt og siðferðislega rétt, segir forsætisráðherrann. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  9. 774

    Heimskreppa, einkunnir grunnskólanema og vöktun Landhelgisgæslu

    Árásarstríð Bandaríkjamanna og Ísraela við Íran hefur skilað helstu olíurisum heimsins sem svarar 90 milljörðum króna aukahagnaði á degi hverjum frá því að það hófst, um 2.700 milljörðum á mánuði. Ástæðan er mikil hækkun á heimsmarkaðsverði olíu vegna lokunar Hormússunds og óvissu í olíuframleiðslu og -flutningum, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn varar við alheimskreppu að óbreyttu, það er, ef ekki tekst að binda enda á stríðið hið snarasta. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra fór vítt og breitt þegar hún ávarpaði þing Kennarasambands Íslands í gær. Mesta athygli hafa ummæli hennar um einkunnagjöf vakið. Foreldrar hefðu meðal annars bent á að erfitt væri að geta ekki farið yfir próf barna sinna til að átta sig á stöðu þeirra og vildu meira gagnsæi. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir þetta við Þórunni Sif Böðvarsdóttur kennara. Ógnir sem Landhelgisgæsla Íslands þarf að bregðast við eru orðnar fjölbreyttari og flóknari en áður. Þar vega þungt GPS-truflanir, tilraunir skipa til að senda rangar staðsetningarupplýsingar og aukin umferð svokallaðs skuggaflota nærri íslenskri lögsögu. Heimsmyndin er breytt og ógnirnar aðrar, segir Auðunn Kristinsson í viðtali við Ingólf Bjarna Sigfússon, Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  10. 773

    Veðurfyrirbærið El Niño og framkvæmdaráðstefna Vegagerðarinnar

    Vegagerðin tekst jafnan á við miklar áskoranir í vegakerfinu og fjárskortur mörg undanfarin ár hefur valdið því að viðhaldsskuldin er mikil og þar skortir milljarða. Innlendir og erlendir sérfærðingar ætla að ræða vegaframkvæmdir og viðhald á ráðstefnu sem Vegagerðin stendur fyrir á Grand Hóteli á miðvikudag. Í ár er spáð El Niño, loftslagsfyrirbærinu sem felur í sér hlýnun sjávar og breytingar í lofthjúpnum og tengt hefur verið við alls konar hamfarir undanfarin ár. Um miðja síðustu öld tóku vísindamenn að veita áhrifum þessa veðurfyrirbrigðis athygli á heimsvísu og El Niño hefur verið í fréttum reglulega frá því um síðustu aldamót. Nú fjalla fjölmiðlar vestanhafs um líkurnar á Súper El Niño og að allt stefni í öflugasta El Niño frá 1870.

  11. 772

    Mikill fögnuður braust út víða í Ungverjalandi þegar ljóst var að ríkisstjórn Viktors Orbans hefði tapað fyrir Tisza-flokki Peters Magyars. Spegillinn ræddi við Maríönnu Csillaq í Búdapest. Ríkisstjórnin ætlar að styðja sveitarfélagið Múlaþing við að leysa þann vanda sem skapast hefur í atvinnumálum Seyðfirðinga. Hátt í 100 störf hurfu frá Seyðisfirði þegar Síldarvinnslan hætti þar allri útgerð og fiskvinnslu. Nýjasta útgáfa gervigreindarmódelsins Claude er svo fær, að fyrirtækið sem gerði módelið vill ekki birta það almenningi. Það gæti hakkað sig inn í viðkvæmustu tölvukerfi heims og hefur fundið þúsundir hættulegra galla í hugbúnaði.

  12. 771

    Efnahgasaðgerðir og 10 ára atvinnustefna ríkisstjórnarinnar og þingkosningar í Ungverjalandi.

    Ríkisstjórnin kynnti í dag tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum og einnig atvinnustefnu til næstu tíu ára. Efnahagsaðgerðirnar felast í tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti og þá á að efla verðlagseftirlit ASÍ svo fylgjast megi enn frekar með verðhækkunum á annari neysluvöru. Með atvinnustefnunni er markmiðið að brjótast út úr stöðnun í efnahagslífinu. Styðja á við fyrirtæki með mikla framleiðni, einkum í útflutningi, skoða á starfsskilyrði fyrirtækja, einfalda regluverk, skilvirkni og áfallaþol og styrkja innviði. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra segir að taka þurfi til í hagkerfinu og skapa skilyrði fyrir eðlilega þróun verðbólgu, launaþróun o.s.frv. Þingkosningar verða haldnar í Ungverjalandi á sunnudag. Útlit er fyrir afar spennandi kosningar og lítill munur virðist á fylgi tveggja helstu fylkinga. Kannanir óháðra könnunarfyrirtækja benda allar til sigurs helsta stjórnarandstöðuflokksins, Tisza, undir forystu Péters Magyar. Aðrar, sem sagðar eru hafa misnáin tengsl við stjórnarflokkinn Fidesz, benda sterklega til þess að Viktor Orbán, sem verið hefur við völd í sextán ár samfleytt, verði það áfram enn um sinn. Maríanna Tsjilak Csillaq, afkomandi ungversks flóttafólks sem flutti hingað á sínum tíma, segir ekki ofmælt að kosningabaráttan hafi verið hörð, óvægin og jafnvel ósvífin.

  13. 770

    NATO, ungar borgir - aldnar sveitir, orkuskipti í landbúnaði

    Bandaríkjaforseti hefur að undanförnu skaðað trúverðugleika Nato meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseti hefur náð að gera á margra ára tímabili. Þetta er mat Petr Pavel Tékklandsforseta og fyrrverandi hershöfðingja og formanns herforingjaráðs NATO á stöðunni sem upp er komin innan bandalagsins eftir árás Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran. Pavel segir gagnrýni Trumps ósanngjarna. Ævar Örn Jósepsson fjallar um málið. Aldursdreifing Norðurlandabúa er að breytast, frjósemi minnkar og hefur aldrei verið minni, og þeir eldast hratt. Borgirnar seiða til sín yngra fólk og innflytjendur en þeir eldri verða eftir í sveitunum. Fólksfjölgun hefur verið mun meiri í þéttbýlinu. Þóroddur Bjarnason prófessor segir þá greiningu ekki eiga við að öllu leyti hér. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við hann. Orkuskipti í landbúnaði var til umfjöllunar á vefþingi sem haldið var í dag, þar sem íslenskir og erlendir þátttakendur veltu fyrir sér hvaða tækifæri felast í slíkum orkuskiptum fyrir íslenskan landbúnað. Ottó Elíasson er framkvæmdastjóri Eims, sem einblínir á orku-, auðlinda-, og loftslagsmál, Ágúst Ólafsson talar við hann. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  14. 769

    Gunnar Bragi um aðildarviræður við ESB, erlendur áróður og

    Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, hefur falið lögmanni sínum að krefja utanríkisráðuneytið um gögn og samskipti vegna aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu og lúkningu hennar á þeim tíma sem hann var utanríkisráðherra. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Gunnar Braga. Þrír fjórðu aðspurðra í könnun sem gerð var fyrir fjölmiðlanefnd og Netvís um lýðræði og skautun í vetur segjast hafa orðið varir við áróðursherferðir erlendra ríkja á síðustu 12 mánuðum og langflestir segjast sjá slíkt á Facebook. Rúmur þriðjungur hefur miklar áhyggjur af að áróður erlendra ríkja hafi áhrif á kosningar eða þjóðaratkvæðagreiðslur. Rétt um helmingur segist geta séð vel í gegnum undirróðurinn. Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netvíss segir erfitt að svara hvað það er sem fólk sér þegar það segist verða vart við áróðursherferðir á netinu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Skúla Braga. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir

  15. 768

    Afarkostir Bandaríkjaforseta í Íransstríði og gróf notkun á gervigreind

    Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn á samfélagsmiðli sínum og skrifaði að svo gæti farið að siðmenningu í Íran yrði tortímt í nótt og hún risi aldrei aftur upp. Hann vildi það ekki en það væri líklegt. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að taka verði yfirlýsingar Trumps alvarlega en telur þær endurspegla gremju forsetans yfir óvæntum gangi stríðsins við Íran. Þýskaland hefur nötrað eftir að þekkt sjónvarpskona steig nýverið fram og upplýsti að eiginmaður hennar fyrrverandi hefði búið til og deilt grófum djúpfölsuðum myndskeiðum af henni á netinu. Drífa Snædal talskona Stígamóta hefur þá tilfinningu að fólk sé orðið samdauna stafrænu ofbeldi en segir íslensk stjórnvöld hafa sýnt mikla framsýni með því lögfesta hér ákvæði um kynferðislega friðhelgi.

  16. 767

    Icelandair vill kaupa Fly Play Europe, sameining Árneshrepps og Kaldrananeshrepps og manntal á Indlandi.

    Icelandair upplýsti í morgun að félagið ætti í viðræðum um kaup á 49 prósenta hlut í Fly Play Europe þar sem helstu verðmætin eru flugrekstrarleyfi á Möltu. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir kaupin geta falið í sér tækifæri til aukins sveigjanleika í starfseminni og til að einfalda flota Icelandair hér á landi. Um helgina lágu fyrir úrslit í kosningum um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps og var sameiningin samþykkt í báðum sveitarfélögum. Íbúakosning um sameininguna stóð frá 14. til 28. mars. Þetta eru fámenn sveitarfélög, tvö af fimm fámennustu sveitarfélögum landsins, en íbúar sameinaðs sveitarfélags verða 177 miðað við íbúafjölda 1. janúar. Í dag hófst austur á Indlandi viðamesta - og metnaðarfyllsta - manntal sem gert hefur verið í mannkynssögunni. Þar eiga yfir þrjár milljónir karla og kvenna, að telja um 1,4 milljarða landa sinna og afla um leið alls kyns upplýsinga um aðstæður þeirra, trú, efnahag, stétt og fleira. Áætlað er að þetta risaverkefni taki eitt ár og ljúki 31. mars á næsta ári.

  17. 766

    Orkukrísa, sjávarhiti og aldraðir Norðurlandabúar

    Átökin í Mið-Austurlöndum og hækkandi orkuverð hefur kostað Evrópusambandsríkin um fjórtán milljarða evra undanfarin mánuð, sagði Dan Jörgensen orkumálastjóri ESB eftir neyðarfund um ástandið sem haldinn var í dag. Hann segir nauðsynlegt að draga úr eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti; ástandið eigi eftir að vara í langan tíma, jafnvel þótt samið verði um frið á morgun Ný og viðamikil samantekt á þúsundum rannsóknarniðurstaðna frá árunum 1993 til 2021 bendir til þess, að svo lítið sem 0,1 gráðu hlýnun sjávar á áratug getur leitt til ríflega sjö prósenta minnkunar lífmassa fiskitegunda í Norðurhöfum á sama tímabili - að meðaltali. Frjósemi á Norðurlöndum hefur aldrei verið minni en nú og lýðfræðileg samsetning þjóðanna er að breytast. Norðurlandabúar hafa aldrei verið jafngamlir og þeir eldast hratt, er haft eftir Tomasi Nieomysl rannsóknarstjóra hjá rannsóknarstofnunni Nordregio sem gefur annað hvert ár út skýrslu um stöðu norðursins.

  18. 765

    Breytt viðhorf til lögreglu - og í lögreglu; hnignun fiskistofna í hlýnandi Norðurhöfum

    Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, telur það ekki til marks um ótta meðal lögreglumanna þótt þeir skrifi ekki lengur undir lögregluskýrslur með nafni. Þetta merki miklu frekar að þeir vilji vernda friðhelgi einkalífs síns og fá tækifæri til að skilja lögreglubúninginn eftir í vinnunni. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir breyttar aðstæður og breytt viðhorf til lögreglustarfa við Fjölni. Viðvarandi - eða bara krónísk - hlýnun sjávar veldur mikilli og verulega uggvekjandi hnignun lífríkis í norðurhöfum, þar sem ætla má að svo lítið sem 0,1 gráðu hlýnun á áratug valdi að meðaltali um 7,2 prósenta rýrnun fiskistofna á sama tímabili. Þetta er meginniðurstaða stórrar og mikillar rannsóknar spænskra vísindamanna, þar sem rýnt er í frumgögn, niðurstöður yfir 700.000 rannsókna á afkomu nær 34.000 fiskistofna af 1.566 tegundum frá 1993 til 2021. Jónas Jónasson sviðsstjóri á Hafrannsóknastofnun ræðir þetta við Ævar Örn Jósepsson. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Jón Þór Helgason

  19. 764

    Strandsiglingar, frönsk hetja og varnaræfing við skrifborðið

    Fjallað verður um skrifborðsæfinguna Winter Storm 2030 sem haldin er á vegum Nato í París,þar verður unnið úr sviðsmyndum um það hvernig átök í norðri gætu hafist og þróast, og ekki síst hvernig bregðast ætti við og berjast við ískaldar aðstæður á norðurslóðum. Við fjöllum líka um beinagrind sem fannst nýverið og er talin vera af einni fræknustu hetju franskra bókmennta. Og svo eru það strandsiglingarnar og hvað þarf til að þær hefjist að nýju

  20. 763

    Fjármálaáætlun og engin tengsl við Hamas hafa fundist við rannsókn Höfðaborgarmálsins

    Fjármálaáætlun til fimm ára var kynnt síðdegis, áfram er stefnt á hallalausum ríkisrekstri eða afgangi og aðhaldi sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra þegar áætlunin var kynnt. Sama dag birtust tölur sem sýna að verðbólga heldur áfram að hækka. Rætt við Örnu Láru Jónsdóttur, Samfylkingu og Guðlaug Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki um efnahagsmálin og ríkisrekstur. Ekkert hefur komið fram í rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hingað til sem bendir til þess að sakborningar í Höfðatorgsmálinu svokallaða hafi tengsl við Hamas eða hryðjuverkasamtök. Þröngur hópur rannsakenda hjá lögreglu hefur aðgang að þeim rafrænum gögnum sem lagt hefur verið hald á.

  21. 762

    Kosningar í Danmörku, ESB-umræður í utanríkismálanefnd

    Sósíaldemókratar - jafnaðarmenn - eru enn stærsti flokkurinn en töpuðu allra flokka mest af fylgi, 6.5 prósentum, og fengu rétt tæp 22 prósent atkvæða, sem er versta útreið sem þeir hafa fengið frá 1903. Venstre - hægriflokkurinn sem var með þeim í ríkisstjórn, tapaði líka miklu og fékk verstu kosningu frá stofnun flokksins, eða 10,1 prósent. Þriðji stjórnarflokkurinn tapaði mun minna fylgi en tapaði þó. Það breytir því þó ekki að formaður hans er með pálmann í höndunum eftir kosningarnar. Borgþór Arngrímsson segir Ævari Erni Jósepssyni hvers vegna það er. Utanríkisráðherra ítrekaði á fundi utanríkismálanefndar í morgun að hvorki formlegar né óformlegar viðræður væru hafnar við Evrópusambandið. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks vildu fá öll gögn upp á borðið um samskipti við ráðamenn í Brussel, og formaður Miðflokksins vildi vita hvort forystumenn ESB vissu um hvað ætti að kjósa síðsumars. Freyr Gígja Gunnarsson tók saman. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  22. 761

    Kjörstöðum senn lokað í Danmörku, breytingar á bráðamóttöku og vegleg gjöf Haalands

    Kosningabaráttan í Danmörku var snörp því Mette Fredediksen, leiðtogi jafnaðarmanna og forsætisráðherra, boðaði óvænt til kosninga fyrir tæpum mánuði. Í gær sagðist um fimmtungur danskra kjósenda ekki vera búinn að gera upp hug sinn. Það er búist við spennandi kosninganótt því mjótt verði á munum milli rauðu og bláu fylkinganna, Hallgrímur Indriðason hefur fylgst með lokasprettinum. Til stendur að gjörbylta bráðamóttökunni í Fossvogi til að koma í veg fyrir þá örtröð og troðning sem hefur einkennt hana síðustu ár. Rafn Benediktsson framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga og endurhæfingarþjónustu á Landspítalanum vonar að breytingarnar marki tímamót. Norska fótboltahetjan Erling Braut Haaland hefur fært heimabyggð sinni góða gjöf, rúmlega fjögurra alda gamla þýðingu á íslensku höfuðriti um norska konunga, Heimskringlu.

  23. 760

    Bandaríkjaforseti í þröngri stöðu og ný sveitastjórnarlög

    Trump Bandaríkjaforseti fullyrti í morgun að samningaviðræður stæðu yfir við ráðamenn í Íran, hann hefði af þeim sökum frestað frekari árásum á mikilvæga orkuinnviði í fimm daga- ef samningaviðræðurnar skiluðu ekki frekari árangri myndu Bandaríkin bara taka upp þráðinn á nýjan leik. Ráðamenn í Íran komu af fjöllum og könnuðust ekki við neinar viðræður. Sveitarfélögin hafa tekið við stórum og miklum verkefnum frá ríkinu og það krefst þess að þau hafi burði til að standa undir þeim og veita þjónustuna. Það hefur aukið þrýsing á sameiningu þeirra, segir prófessor í stjórnmálafræði en bendir á að við bjuggum í miklu miðstýrðara samfélagi áður en tilfærslan varð.

  24. 759

    Slagur við landeigendur, orkuöryggi vegna stríðsins í Íran og fyrsta viðtalið við Mette-Marit

    Ný lagaáform umhverfis-og orkuráðherra þýða að framkvæmdir við flutnings- og dreifimannvirki raforku gætu hafist samhliða samningaviðræðum um eignarnámsferli. Þar með styttist heildarframkvæmdatími um marga mánuði og jafnvel ár, fjármagnskostnaður lækki, áætlanir verði áreiðanlegri og áhætta vegna verðbreytinga minnki. Stjórnvöld um veröld víða þurfa að vera duglegri að brýna fólk og fyrirtæki til orkusparnaðar, þar sem heimurinn standi frammi fyrir „alvarlegustu, hnattrænu orkuöryggisógn sögunnar.“ Þetta hefur BBC eftir Faith Birol, forstöðumanni Alþjóðaorkustofnunarinnar í París, sem vísar til yfirstandandi stríðs Bandaríkjanna og Ísraels á hendur Íran og þeirrar röskunar á framleiðslu og flutningum á jarðefnaeldsneyti sem það hefur þegar valdið og ekki sér fyrir endann á. Tuttugu mínútna viðtal við Mette-Marit, krónprinsessu Noregs, birtist í norska ríkisútvarpinu, NRK í morgun. Viðtalsins hafði verið beðið með þó nokkurri eftirvæntingu, allt frá því að Epstein-skjölin birtust fyrir sjö vikum.

  25. 758

    Gróðavon í almyrkva, kosið í Danmörku 24. mars, vanþóknun Bandaríkjanna á Alþjóðaglæpadómstólnum

    Almyrkvi verður á sólu í ágúst og verður óvíða meiri en á vestanverðu Íslandi. Ljósið í myrkrinu, í augum margra Íslendinga, er að fjöldi ferðafólks streymir hingað til að upplifa sortann - og fjölmargir freista þess að leigja út hús sín og íbúðir á uppsprengdu verði á þessum tíma. Seðlabankastjóri fagnar uppgripum fyrir hönd ferðaþjónustunnar og líkir þessu við loðnuvertíð. Mikið er í húfi fyrir jafnaðarmenn í Danmörku þegar kosið verður 24. mars en hvað brennur helst á fólki kosningabaráttunni? Bandarísk stjórnvöld hafa beitt starfmenn alþjóðastofnana sem þeim ekki þóknast refsiaðgerðum, til dæmis dómara við Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag.

  26. 757

    Vaxtaákvörðun Seðlabankans, samstarf við ESB í varnarmálum og undanþágur í aðildaviðræðum við ESB.

    Meginvextir Seðlabankans voru hækkaðir úr 7,25% í 7,50% í dag og einhugur ríkti innan peningastefnunefndar að vaxtahækkun væri nauðsynleg. Það ræðst á næstu 167 dögum hvort forsendur kjarasamninga haldist og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, viðurkennir að hann hafi meiri áhyggjur en áður af forsenduákvæði kjarasamninga. Hann vill þó ekki spá um hvort stefni í harða kjarabaráttu í haust. Yfirlýsing um samstarf Íslands og Evrópusambandsins var staðfest í dag í Brüssel af þeim Þorgerði Katrínu Gunnardóttur, utanríkisráðherrra, og Kaju Kallas, utanríkismálastjóra ESB. Undirritun yfirlýsingarinnar hafði verið frestað í nóvember út af ákvörðun ESB um verndaraðgerðir vegna málmblendis. Þorgerður Katrín hitti embættismenn hjá NATO í morgun og átti einnig fund með framkvæmdastjóra viðskipta hjá ESB um undanþágur vegna losunarheimilda í ETS kerfinu. Það er flókið en ekki ómögulegt að fá undanþágur eða sérlausnir þegar ríki gerir samning við Evrópusambandið. Þetta sagði Gunnar Pétursson, prófessor í Evrópurétti við Háskólann í Reykjavík, í erindi sem hann hélt á Akureyri í dag. Hann segir eðlilegt að mörgum þyki erfitt að skilja hvað felist í að fara í viðræður um aðild að ESB. Umræðan geti verið óskýr.

  27. 756

    Hærri vextir eða ekki, snjóflóðahætta og metfjöldi ákæra fyrir valdstjórnarbrot

    Hækkanir á flugfargjöldum og olíu knýja verðbólgu áfram að mati greinenda hjá Arion banka sem búast við því að stýrivextir haldist óbreyttir á morgun. Skiptar skoðanir eru hjá spámönnum bankanna um hvort vextir Seðlabankans hækki eða verði samir áfram. Það hefur verið óvissuástand vegna snóflóðahættu á Tröllaskaga og Vestfjörðum meira og minna í tæpa viku. Á fimmtudag snjóaði mikið í norðaustanátt og þá tóku að falla snjóflóð. Síðan hvessti á sunnudag og þá safnaðist snjór fyrir í hlíðum og lægðum og mörg snjóflóð féllu aftur. Í lok janúar gaf héraðssaksóknari út sextíu ákærur fyrir brot gegn valdstjórninni. Tiltek segir saksóknari hjá embættinu. Oftast eru það lögreglumenn sem verða fyrir barðinu á ofbeldi en líka læknir, hjúkrunarfræðingur, starfsmaður barnaverndar og fangavörður

  28. 755

    Evrópusambandið og atkvæðagreiðslan í sumar, Trump vill hjálp í Hormússundi og gjöful loðnuvertíð

    Menntamálaráðherra neitaði að svara spurningu á Alþingi í dag um hvernig hún hygðist greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni síðsumars. Forsætisráðherra bað þingmenn um að ná sér niður og ræða málið málefnalega. Bandaríkjaforseti vill að bandamenn hans í NATO taki þátt í hernaðaraðgerðum á Hormússundi til að tryggja olíuflutninga en undirtektirnar hafa verið dræmar. Loðnuvertíðinni er lokið og gengið hefur vel að selja afurðirnar en það gerist ekki af sjálfu sér, sérstaklega eftir brest síðustu ára þegar íslenskar afurðir hurfu af mörkuðum.

  29. 754

    Leitin að hjúkrunarrýmum og mál gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum

    Um hundrað sjúklingar eru á Landspítalanum en bíða eftir því að komast í hjúkrunarrými og þrátt fyrir að leitað sé logandi ljósi að plássum um allt land hefur lítið gengið undanfarnar vikur. Í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um hópmorð er kveðið á um að ríkjum sem eiga aðild að honum beri skylda til að gera sitt til að koma í veg fyrir hópmorð og refsa þeim sem þau fremja. En hvernig eru færðar sönnur á ásetning um hópmorð? Rætt við Þórdísi Ingadóttur prófessor við Háskólann í Reykjavík og sérfræðing í þjóðarrétti.

  30. 753

    Síminn vill kaupa vísi og útvarpshluta Sýnar, Ísland hluti af málssókn á hendur Ísrael

    Síminn og Sýn tilkynntu í morgun að fyrrnefnda félagið hefði hug á að kaupa Vísi.is, annan af tveimur vinsælustu fréttavefjum landsins, og útvarpsstöðva Sýnar, meðal annars FM957 og Bylgjuna. Fyrir eigendur Símans er þetta rökrétt skref á þeirri leið sem félagið hefur verið á; fyrir stjórnendur Sýnar gæti þetta verið leiðin út úr tilvistarkreppunni sem félagið hefur verið í. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Kolbein Tuma Daðason fréttastjóra Sýnar. Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, þar sem farið er fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt gegn alþjóðasáttmálanum um þjóðarmorð með hernaði sínum á Gaza. Ísland bættist þar með í hóp nær tuttugu þjóða, sem eiga þátt í málsókn Suður-Afríku með svokallaðri meðalgöngu. Þórdís Ingadóttir prófessor við HR er annar höfunda álitsgerðar Íslands, Ævar Örn Jósepsson talaði við hana.

  31. 752

    Hryðjuverkadómur ómerktur, kjarnavopn og öryggi þjóða

    Enn sér ekki fyrir endann á hryðjuverkamálinu svokallaða eftir að Hæstiréttur ómerkti sýknudóm Landsréttar og sendi málið þangað aftur. Ómögulegt er að segja til um það hvenær endanleg niðurstaða fæst um hvort tveir Íslendingar hafi verið að skipuleggja hryðjuverk eða ekki. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir málið við Margréti Valdimarsdóttur afbrotafræðing. Hver kjarnorkuafvopnunarsamningur stórveldanna af öðrum hefur fallið úr gildi undanfarin misseri, sá síðasti, START-samningurinn hinn nýrri, í byrjun febrúar. Þá er bara einn eftir, sá fyrsti og víðtækasti, um takmörkun og í raun bann við frekari útbreiðslu kjarnavopna og minnkun kjarnorkuvopnabúra heimsins eftir því sem kostur er. Nú boða Frakkar stækkun eigin kjarnavopnabúrs - til að auka öryggi Evrópubúa. Þýðir þetta að fyrsti og síðasti gildandi kjarnavopnasamningurinn sé líka í hættu? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Guttorm Þorsteinsson, formann Samtaka hernaðarandstæðinga. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  32. 751

    Enginn afsláttur gefinn segi Ísland já

    Umræðan um Evrópusambandið hefur verið fyrirferðarmikil undanfarna daga eftir að ríkisstjórnin kynnti þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segist hafa gert leiðtogum Evrópusambandsins grein fyrir því að verði niðurstaðan jákvæð þýði það ekki að Íslandi renni inn á hvaða forsendum er; Ísland verði selt fokdýrt.

  33. 750

    Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðslu og um Evrópumál á Alþingi og óþarfa og dýrkeypt tækni

    Alþingismenn tókust fram eftir degi á um fundarstjórn forseta og komið var á sjötta tímann þegar utanríkisráðherra byrjaði að mæla fyrir tillögu sinn um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Mælendaskráin var fljót að fyllast þegar eiginlega umræða hófst. Framleiðendur verja margir miklu fé í að þróa nýja tækni, sem neytendur nýta sér svo ekki og telja jafnvel óþarfa en kostnaðurinn við vöruþróunina hlýtur engu síður að enda í verðinu. Farsímar og bílar eru tæki sem búa yfir rándýrum möguleikum sem fáir hafa áhuga á að nýta sér.

  34. 749

    ESB, úkraínsk börn og súkkalaðið sem er stolið í tonnavís

    Umræðan um Evrópusambandið og aðild Íslands að því fer oft í skotgrafirnar, bæði hjá stuðningsmönnum og andstæðingum. Framundan er þriðja umræðan á Alþingi þar sem tekist verður á um stöðu Íslands Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir það óumsemjanlegur hluti af friði í Úkraínu að Rússar skili þeim þúsundum barna sem þeir hafa kerfisbundið stolið. Nöfnum barnanna hefur í mörgum tilvika verið breytt og Rússar telja sig vera að vinna góðverk. Súkkulaði er orðið eitt allra vinsælasta þýfi breskra búðarþjófa síðustu mánuði og misseri. Svo rammt er tekið að kveða að þessu, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC, að nokkrar stórar verslanakeðjur eru farnar að geyma allra vinsælasta súkkulaðið í læstum plast- eða glerskápum í sumum verslana sinna, þannig að viðskiptavinir þurfa að biðja afgreiðslufólk um aðstoð til að komast í góðgætið.

  35. 748

    Vargöld í friðsælli Bláskógabyggð og stríð í Íran

    Júdókempa, garðyrkjufræðingur á sjötugsaldri og þrítugur Íslendingur sem nýverið var dæmdur fyrir tilraun til manndráps eru meðal sex sakborninga sem ákærðir eru fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og ræna af honum ævisparnaðinum. Martraðir eftir árásina halda vöku fyrir manninum. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. „Ég held að flestum Bandaríkjaforsetum frá írönsku byltingunni hafi langað til að ráðast inn í Íran en enginn verið nógu vitlaus til að gera það þangað til núna," segir Guttormur Þorsteinsson formaður Samtaka hernaðarandstæðinga meðal annars, aðspurður um líklegar ástæður ólöglegra árása Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Árásir þeirra síðastnefndu á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjum þeirra ættu að vekja Íslendinga til umhugsunar. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Guttorm. Stríðsrekstur hefur oft verið réttlættur með vísan til trúar og vilja guðs og virðist slík réttlæting lifa góðu lífi vestanhafs, ef marka má flóð tilkynninga undanfarna daga um málflutning bandarískra herforingja sem vísa til dómsdags og endaloka heims til að brýna hermenn í stríði við Íran. Anna Kristín Jónsdóttir fjallar um þetta. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  36. 747

    Úttekt á umfangi bælingarmeðferðar, losunarheimildir flytjenda og stöðupróf

    Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að taka ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar til skoðunar og meta hvort tilefni sé til að hefja frumkvæðisathugun. Dómsmálaráðherra hefur beðið skrifstofu jafnréttismála að gera úttekt á umfangi bælingarmeðferðar sem allsherjar-og menntamálanefnd mæltist til að yrði gerð fyrir þremur árum. Á sama tíma og ETS losunarkerfið var rætt á Alþingi í dag, voru fulltrúar íslenskra fyrirtækja og Samtaka Atvinnulífsins á fundum í Brussel, til að ýta á eftir íslenskum hagsmunum og minna á sérstöðu Íslands í þessum málum. Hátt í þrjátíu þúsund grunnskólanemendur um allt land spreyta sig þessar vikurnar á prófum í lesskilningi og stærðfræði

  37. 746

    Pollrólegur sjúkrahússforstjóri í Ryadh og kjarnorkuvopn Frakka

    Sérfræðingar óttast að ófriðarbál í Miðausturlöndum breiðist út. Forstjóri King Faisal-sjúkrahússins í Ryadh, höfuðborg Sádi-Arabíu, er pollrólegur þótt dróna hafi verið skotið á sendiráð Bandaríkjanna í borginni. Næsta hálfa öldin verður tímabil kjarnorkuvopna, sagði Emmanuel Macron Frakklandsforseti í ræðu sem hann flutti á aðalkafbátastöð franska flotans, heimahöfn þeirra kafbáta sem búnir eru stýriflaugum sem borið geta kjarnaodda. „Ef við ætlum að vera frjáls," sagði forsetinn, „þá þurfum við að vera ógnvekjandi." Og vænlegasta leiðin til þess, samkvæmt honum, er að uppfæra og stækka kjarnorkuvopnabúr landsins. Samband Bandaríkjanna og Bretlands hefur löngum verið talið sérstakt og þannig til þess vísað af ráðamönnum beggja þjóða. Það samband virðist nokkuð að súrna. Bresk stjórnvöld leyfðu ekki not af breskum herstöðvum þegar Bandaríkin réðust á Íran um helgina og Keir Starmer forsætisráðherra Breta sagðist ekki trúaður á stjórnarskipti af himnnum ofan.

  38. 745

    Púðurtunna að springa í Mið-Austurlöndum og Davíðs Oddssonar minnst

    Átök í Miðausturlöndum hafa breiðst út frá því Bandaríkin og Ísrael gerðu árás á Íran á laugardag og drápu erkiklerkinn Ali Khameni. Ísraelar gerðu árásir á Teheran höfuðborg Írans aftur í dag og Íranar hafa gert árásir víða og til átaka hefur komið í Líbanon milli Hezbolla og Ísraela. Oft hefur verið talað um Miðausturlönd sem púðurtunnu, kveiktu árásirnar um helgina í tundrinu, rætt við Kjartan Orra Þórsson sérfróðan um málefni Írans og Svanhildi Þorvaldsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og dósent við HÍ. einn áhrifamesti og umdeildasti stjórnmálamaður Íslands, Davíð Oddsson lést í gær, Fáir hafa sett jafn mikið mark á íslensk stjórnmál. Rætt við Illuga Gunnarsson og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.

  39. 744

    Kjörnir fulltrúar hreinsaðir út, stríð milli Pakistan og talíbana og ferðin til Kænugarðs

    Stjórnmálaferill fólks er að verða styttri og styttri og það færist í vöxt að flokkarnir leiti út fyrir sínar raðir. Stjórnmálaprófessor segir lítið hafa verið gert úr stjórnmálastarfi í þjóðmálaumræðunni. Stjórnvöld í Pakistan lýstu í morgun formlega yfir stríði gegn nágrannaríkinu Afganistan og undirstrikuðu ásetning sinn með loftárásum á herbækistöðvar talibana í nokkrum stærstu borgum landsins, þar á meðal höfuðborginni Kabúl. Loftárásirnar voru viðbrögð Pakistana við samstilltum árásum afganskra hermanna á pakistanskar varðstöðvar í sex landamærahéruðum í gær. Þær árásir voru aftur viðbrögð talibanastjórnarinnar við loftárásum Pakistana á meintar bækistöðvar hryðjuverkasveita hinumegin landamæranna - og svo koll af kolli. Leiðtogar Evrópusambandsins og níu þjóðríkja, þar á meðal Íslands, lögðu land undir fót á mánudaginn til að vera viðstödd atburði í höfuðborg Úkraínu á þriðjudag; daginn þegar rétt fjögur ár voru liðin frá því að allsherjarinnrás Rússa hófst. Björn Malmquist fréttamaður skráði þessa ferð í sögubækur samtímans.

  40. 743

    Kosningar í Danmörku, þjóðaratkvæði um Evrópusambandsviðræður

    Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur kom löndum sínum á óvart í dag með því að boða til þingkosninga eftir tæpar fjórar vikur, þriðjudaginn 24. mars. Kjósendur viti fyrir hvað hún standi, sagði hún, og það, hvort hún haldi áfram sem forsætisráðherra, velti fyrst og fremst á því, hversu sterkt umboð kjósendur gefa flokki hennar, Jafnaðarmönnum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Jórunni EInarsdóttur í Danmörku og Hallgrím Indriðason fréttamann. Umræðan um mögulegar aðildarviðræður Íslendinga við Evrópusambandið komst á flug eftir að forsætisráðherra sagði stefnt að þjóðaratkvðagreiðslu um áframhald viðræðna á „næstu mánuðum." Hvað þýðir þetta - og hvað finnst stjórnarandstæðingum um það? Freyr Gígja Gunnarsson kannaði málið og ræddi við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, og Ólaf Adolfsson, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  41. 742

    Gróðureldar, ástand jökla og íslenska óperan

    Þriggja daga barátta slökkviliðs Borgarbyggðar við Mýraelda árið 2006 brýndi viðbragðsaðila í að huga sérstaklega að hvernig vinna ætti á gróðureldum, segir slökkviliðsstjórinn. Hætta á þeim eykst með lengri þurrkatímabilum og breyttri búsetu í dreifbýli. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Heiðar Örn Jónsson, slökkviliðsstjóra í Borgarbyggð. Á vef Veðurstofunnar segir að jökulárið 2024 - 25 hafi reynst jöklum landsins þungt í skauti, niðurstöður síðustu rannsókna sýni að þeir hafi rýrnað um 15 gígatonn - 15 milljarða tonna - á þessu eina jökulári. Hvað þýðir þetta fyrir stærð jöklanna og framtíð? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Hrafnhildi Hannesdóttur jöklafræðing á Veðurstofu Íslands. Íslenska óperan bauð fram sýningarrétt að ósaminni óperu um Agnesi Magnúsdóttur, væri menningarráðuneytið reiðubúið að leggja til á annan tug milljóna í veglega lokatónleika sem hún vildi halda. Þegar ráðuneytið óskaði eftir frekar skýringum á hvað fælist í slíkum sýningarrétt varð fátt um svör. Samtal er hafið um örlög Agnesar. Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir málið. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

  42. 741

    Fjögur ár frá innrás Rússa í Úkraínu

    Fjögur ár eru liðin frá innrás Rússa í Úkraínu. Dagur B. Eggertsson og Diljá Mist Einarsdóttir fóru yfir stóru myndina í hljóðveri en austur í Úkraínu, í höfuðborginni Kyiv, er Björn Malmquist staddur. Han tók viðtal Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, þegar hún kom út af fundi hjá bandalagi hinna viljugu þjóða, og spurði hana fyrst hvað færi í gegnum hugann á forsætisráðherra Íslands þegar hún ferðaðist til Kyiv.

  43. 740

    Fjögurra ára stríð í Úkraínu og sundrung á vinstri vængnum

    Látlausar árásir Rússa og leit að veilum í vörnum Úkraínumanna hafa ekki skilað Rússum miklu á víglínunni. Þeir hafa stöðugt bætt í árásir á borgaralega innviði til að veikja barátturþrek Úkraínumanna segir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur. Margir, yst á vinstri væng stjórnmálanna, bundu vonir við að þeir flokkar sem náðu ekki kjöri í síðustu þingkosningum tækju saman höndum og byðu sameiginlega fram. Flokkarnir virðast hins vegar laskaðir á meðan það er ekkert taktleysi í hægrisveiflunni, rætt er við Evu H. Önnudóttur prófessor.

  44. 739

    Leikhlé á þing, viðbrögð Íslands við loftslagsbreytingum og verksmiðja sett í skúffu

    Kjördæmavika hefst í næstu viku og þá má segja að þingmenn taki leikhlé, hitti kjósendur, fari yfir hvað hafi verið gert og hvað eigi eftir að gera. Magnús Geir Eyjólfsson, þingfréttaritari RÚV, býst við miklum spretti fram í maí þegar gert verður hlé vegna sveitastjórnarkosninga. Nærri þriggja milljarða króna líforkuver sem til stóð að reisa við Eyjafjörð, hefur verið sett á ís og vefsíðu þess verið lokað. Þegar hafa farið tugir milljóna í undirbúning verkefnisins. Evrópska loftslagsráðið leggur þunga áherslu á að tryggja verði fjármögnun nauðsynlegra rannsókna og aðgerða, og að horft verði til fyrirsjáanlegra loftslagsáhrifa við alla stefnumótun og lagasetningu. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofunni segir ekki tekið á fjármögnuninni í íslensku aðlögunaráætluninni, en að þótt bæta megi íslenskt regluverk verulega hvað þetta varðar, þá sé víða horft til loftslagsbreytinga í því, einkum á sviði skipulagsmála.

  45. 738

    Samgönguáætlun, loftslagsmál, havarí í bresku hirðinni

    Varaformaður Sjálfstæðisflokksins telur samgönguáætlun innviðaráðherra hafa verið afhjúpaða sem hreinræktað kjördæmapot. Þingmaður Samfylkingarinnar segir umfjöllun síðustu daga brýna þingmenn að vanda vel til verka. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Jens Garðar Helgason og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Loftslagsráð Evrópusambandsins hvetur ráðamenn þar til að búa sig undir allt að 3,3 gráðu hlýnun í álfunni á þessari öld - annars sé voðinn vís. En hvað er þetta ráð og í hverju felast ráðleggingar þess? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Björnsson, fagstjóra veðurs og loftslags á Veðurstofu Íslands. Karlmaður á sjötugsaldri var handtekinn í morgun og húsleit gerð á heimili hans í Norfolk segir í tilkynningu lögreglunnar í Thames-dalnum á Englandi, vegna rannsóknar á misferli í opinberu starfi. Brot sem getur varðað lífstíðarfangelsi. Maðurinn er í vörslu lögreglu, ekki er vitað hvar og hann er ekki nefndur í tilkynningunni. Maðurinn er Andrew Mountbatten Windsor, betur þekktur sem Andrés prins, sem þó er ekki lengur prins. Anna Kristín Jónsdóttir reifar málið og ræðir við Sigrúnu Davíðsdóttur í Lundúnum. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  46. 737

    Loftslagsmál, byggðakvóti og umdeildur körfuboltaþjálfari

    Veðurlag hefur um margt verið óvenjulegt í vetur. Hér voru hlýindi langt fram eftir hausti en miklar froststillur og þurrkur einkenna byrjun þessa árs. Óvenju hlýtt hefur verið á Grænlandi en óvenju kalt í Danmörku og Norður-, Mið- og Austurevrópu almennt - og líka óvenjuþurrt. Í sunnanverðri álfunni hefur hins vegar gengið á með úrhellisrigningu og miklum flóðum. Að hve miklu leyti má rekja þetta til loftslagsbreytinga og hvernig er það gert? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Halldór Björnsson. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar allsherjarendurskoðun á úthlutunarkerfi almenns byggðakvóta. Þetta er gert með vísan í úttekt Ríkisendurskoðunar, þar sem kerfið er harðlega gagnrýnt. Ágúst Ólafsson fjallar um þetta og ræðir við Örn Pálsson, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. Forsvarsmenn íþróttafélagsins Aþenu eru ósáttir við hversu langan tíma mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið sér í að afgreiða kvörtun vegna álits embættis samskiptaráðgjafa Íþrótta- og æskulýðsstarfs á þjálfunaraðferðum körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Þeir telja álitið hafa valdið Brynjari, félaginu og iðkendum óafturkræfum skaða. Freyr Gígja Gunnarsson reifar þetta mál. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

  47. 736

    Vegagerðin ekki jafn bjartsýn og ráðherra, hannyrðir og andóf og sérfræðingar vara þriggja gráðu hækkun

    Innviðaráðherra vill að framkvæmdir við Fljótagöng hefjist strax í byrjun næsta árs en Vegagerðin telur að til að hægt verði að hefja framkvæmdir sumarið 2027 þurfi allt að ganga upp og ekkert rými verði fyrir utanaðkomandi tafir. For- og verkhönnun Fljótaganga hefur verið flýtt en göngin verða á mesta jarðskjálftasvæði landsins. Í nýrri skýrslu eru ráðamenn í Evrópu hvattir til að búa lönd sín, stofnanir og innviði undir heim sem er tveimur komma átta til þremur gráðum hlýrri en hann var fyrir iðnbyltingu. Það er allt að tvöfalt meiri hlýnun en miðað er við í Parísarsamningnum. Upp á síðkastið hefur hlaupið líf í hannyrðir og andóf, ekki síst í Bandaríkjunum. Rauðar húfur sem ýmsir eru að prjóna til að mótmæla gjörðum innflytjendalögreglunnar vestra hafa verið áberandi á prjónasíðum.

  48. 735

    Innviðaráðherra og ákvörðunin um Fjarðagöng, sjálfstæðisbarátta Grænlendinga og könnun á búsetu Grindvíkinga

    Innviðaráðherra viðraði áhuga sinn á Fjarðagöngum strax síðasta sumar. Hann virðist hafa slegið Fjarðarheiðargöng út af borðinu í september. Vegagerðin staldraði við hugmyndir ráðherrans um að rannsakaðir yrðu þrír nýir jarðgangakostir á Vestfjörðum. Eyjólfur Ármannsson var ekki búinn að sitja lengi í stól ráðherra þegar starfsmenn ráðuneytisins óskuðu eftir minnisblaði frá Vegagerðinni um forgangsröðun jarðganga. Aðjúnkt við Háskóla Grænlands segir að samskiptin við Danmörku og umræðan um Trump og Bandaríkin hafi tekið dýrmætan tíma frá öðrum þjóðhagslega mikilvægum málum Grænlendinga. Þá hafi þetta haft mikil áhrif á almenning í Grænlandi, börnin ekki síst. Slagurinn við Trump sé ef til vill enn ein birtingarmynd á sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga. Meirihluti þeirra sem bjuggu í Grindavík þegar bærinn var rýmdur í hitteðfyrra hefur sest að annars staðar. 10% búa núna í Grindavík. 15% Grindvíkinga sem ekki búa í bænum telja líklegt að þeir flytji þangað aftur í ár, en 73% segjast geta hugsað sér að búa áfram þar sem þeir búa nú, næstu árin. Þetta er meðal þess sem kemur fram í könnun sem Maskína gerði fyrir Grindavíkurnefnd í vetur.

  49. 734

    Sigurður Ingi loðinn í svörum og meira af Kúbustjórn í ólgusjó

    Sigurður Ingi Jóhannsson vaknar á mánudag sem óbreyttur þingmaður þegar flokkurinn hefur kosið sér nýjan formann. Honum líður ágætlega með sína ákvörðun sem var lengi í fæðingu. Hann er loðinn í svörum um hvað gerist næst. Engin fyrri bandalagsríki Kúbu virðast ætla eða geta komið þarlendum stjórnvöldum til bjargar. Kúbverjar eru mjög háðir innfluttri olíu, ekki bara fyrir samgöngur og iðnað heldur framleiða þeir nánast allt sitt rafmagn með olíu. Rafmagn hefur verið stopult á Kúbu um árabil, og enn stopulla eftir að olíuinnflutningur frá Venesúela tók að dragast verulega saman í byrjun þessa áratugs. Það leiddi til fjöldamótmæla, sem stjórnvöld börðu niður af mikilli hörku.

  50. 733

    Loftslagsmál og sveitarfélög, Kúbustjórn í kröppum sjó, prjónahúfur og pólitík

    Aðgerð C10 í byggðaáætlun fjallar um aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga. Verkefni sem Byggðastofnun leiðir í samstarfi við Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið. Eins og gefur að skilja er þar verið að undirbúa sveitarfélög í að takast á við nýjan veruleika sem breytt veðurfar hefur í för með sér. Ágúst Ólafsson ræðir við Ragnhildi Friðriksdóttur og Ólaf Þór Ólafsson. Bandaríkjamenn hafa stöðvað nær allan olíuinnflutning til Kúbu, með þeim afleiðingum að allsherjar rafmagnsleysi blasir við og fjölmörg flugfélög hafa ýmist hætt flugi til og frá landinu eða dregið verulega úr því. Markmið Bandaríkjastjórnar er ekkert leyndarmál: Að koma kúbversku stjórninni frá völdum. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Tómas R. Einarsson um ástandið á Kúbu. Rauðar prjónahúfur hafa löngum verið vinsælar en þær geta líka falið í sér dýpri merkingu og hafa jafnvel verið bannaðar. Á vinsælli síðu handavinnufólks, er einföld rauð prjónahúfa með skotti - og slagorði gegn bandarísku innflytjendalögreglunni, ICE, vinsælasta uppskriftin. Anna Kristín Jónsdóttir segir frá þessu. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

HOSTED BY

RÚV

CATEGORIES

URL copied to clipboard!