Væringar í Venesúela

EPISODE · Aug 1, 2024 · 10 MIN

Væringar í Venesúela

from Spegillinn

Minnst 11 manns hafa látið lífið í hörðum og fjölmennum mótmælum í Venesúela síðustu daga, vegna ætlaðra vélráða við talningu atkvæða í nýafstöðnum forsetakosningum. Þar var Nicolás Maduro útnefndur sigurvegari og rétt kjörinn forseti, þriðja skiptið í röð, en stjórnarandstaðan telur sig hafa vissu fyrir því að sinn frambjóðandi, Edmundo González, hafi unnið yfirburðasigur, og ber fyrir sig hvorutveggja skoðanakannanir í aðdraganda kosninga og útgöngukannanir. Á fréttafundi sagði Maduro mótmælendur vera að ráðast gegn stjórnarskrá landsins og brýndi hæstarétt til að gera það sem gera þarf, svo hægt sé að fara út í fjöldahandtökur á framáfólki úr stjórnarandstöðunni og mótmælendum sem flykkst hafa út á götur og torg borga og bæja um allt land undanfarna daga. Hólmfríður Garðarsdóttir er prófessor í spænsku við Háskóla Íslands, þar sem hún beinir sjónum sínum aðallega að Rómönsku Ameríku. Hún segir framvinduna nú minna mjög á kosningarnar 2018 og eftirleik þeirra. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

NOW PLAYING

Væringar í Venesúela

0:00 10:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

URL copied to clipboard!