EPISODE · Aug 22, 2024 · 20 MIN
Verðbólga og vextir, innrás Úkraínumanna í Rússland
from Spegillinn
Ákvörðun Seðlabankans í gær um að halda stýrivöxtum óbreyttum hefur verið gagnrýnd og hagfræðingar hafa lýst efasemdum um að hátt vaxtastig skili lengur árangri í baráttunni við verðbólguna. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka sagði í hádegisfréttum RÚV að trúverðugleiki Seðlabankans væri laskaður. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ágúst Bjarna Garðarsson, þingmann Framsóknarflokksins, og Ásthildi Lóu Þórsdóttur, þingmann Flokks fólksins um stöðuna og spurði þau líka út í þessi ummæli fjármálaráðherra í Kastljósi í gærkvöld sem vakið hafa nokkra athygli. Rúmum tveimur vikum eftir að Úkraínuher réðst inn í Kúrsk-hérað í Rússlandi hefur hann lagt undir sig á annað þúsund ferkílómetra lands og tugi bæja og þorpa. Innrásin virðist hafa komið öllum á óvart, ekki síst Rússneskum yfirvöldum. Victoria Snærós Bakshina, rússnesk málvísindakona sem búsett er á Íslandi. Hún segir innrásina hafa komið rússneskum almenningi alveg jafn mikið á óvart og öllum öðrum, og hann sé í sjokki. Dagný Hulda Erlendsdóttir ræðir við hana. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred
NOW PLAYING
Verðbólga og vextir, innrás Úkraínumanna í Rússland
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.