Seinni níu

PODCAST · sports

Seinni níu

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika.Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

  1. 112

    #111 - Bjarni beygir sig þúsund sinnum á dag

    Við fengum afar fróðan gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því Bjarni Hannesson, vallarstjóri hjá Golfklúbbnum í Mosfellsbæ, fór yfir stöðu mála á golfvöllum landsins í skemmtilegu spjalli.Bjarni var mjög efnilegur kylfingur á yngri árum en slök frammistaða hans með pútternum varð honum oft að falli. Hann heillaðist snemma af því að starfa við golfvallaumhirðu og sótti sér menntun í Skotlandi í þeim fræðum.Í þættinum fer Bjarni yfir þessi fólknu fræði sem grasvallaumhirða er í raun. Hann segir okkur frá því hvað fer mest í taugarnar á golfvallarstarfsmönnum þegar kemur að framgöngu kylfinga á golfvellinum. Bjarni valdi einnig stórmerkilegt draumaholl þar sem nokkrir af helstu frumkvöðlum golfsins koma við sögu.Einn lengsti þátturinn í sögu Seinni níu en á fræðilegum og léttum nótum.

  2. 111

    #110 - Liðleika Lilja þolir ekki óumbeðin ráð frá eiginmanninum

    Við fengum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna. Lilja Sigurgeirsdóttir sem er þekkt sem Liðleikja Lilja kom til okkar. Hún hefur um nokkurra ára skeið sérhæft sig í að þjálfa fólk sem vill auka liðleika og bæta hreyfigetu sína.Lilja byrjaði sjálf í golfi fyrir tveimur árum og féll gjörsamlega fyrir golfíþróttinni. Hún er í dag í Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nær að koma golfi að í flest sín samtöl.Þó hún hjálpi meðal annars afrekskylfingum við að auka liðleika þá skilur hún ekki hversu langan tíma það tekur að verða góð í golfi.Í þættinum velur Lilja sitt draumaholl og kemur með kraftröðun yfir þau fimm atriði sem fara mest í taugarnar á henni.Frábær þáttur og mjög fróðlegur. Lilja fer meðal annars yfir þær teygjur sem kylfingar ættu stunda til að bæta liðleika og leysa úr læðingi aukinn kraft úr golfsveiflunni.Frábær þáttur og á léttum nótum að venju!

  3. 110

    #109 - Hrafnhildur elskar að spila golf á nóttunni

    Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna. Hrafnhildur Skúladóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, þjálfari og nú ökukennari kom í heimsókn til okkar.Hrafnhildur er búsett í Vestmannaeyjum og er fjórar mínútur á golfvöllinn frá heimili sínu. Við ræðum aðeins golfið í Eyjum og það frelsi sem fylgir því að komast nær alltaf í golf.Hrafnhildur segir okkur frá uppáhalds golfholunum sínum í Eyjum, hún kemur með skemmtilegt draumaholl og einnig mjög áhugaverða kraftröðun yfir þau golfsvæði sem hún væri til í að heimsækja í golfferðum á næstu árum.Stórskemmtilegur þáttur!

  4. 109

    #108 - Jón Halldórsson vill langa golfhringi

    Við fengum frábæran gest í Seinni níu því formaður HSÍ, Jón Halldórsson, heiðraði okkur með nærveru sinni. Jón er að snúa aftur á golfvöllinn eftir að hafa undirgengist hnjáliðaskipti og nú á að taka golfið með trompi í sumar.Jón segir okkur aðeins frá því hvernig hann endaði sem formaður HSÍ og því verkefni sem er framundan þar. Við ræddum þó aðallega um golf og þar kom í ljós Jón er með um 18 í forgjöf og byrjaði í golfi eftir veðmál við kunnan handboltaþjálfara.Við fórum að sjálfsögðu yfir draumahollið sem var mjög óvænt að þessu sinni. Jón kom einnig með kraftröðun á þeim landsliðsmönnum í handbolta sem hann telur líklegt að séu bestir í golfi í landsliðshópi karla.Frábær þáttur á mjög léttum nótum að venju.

  5. 108

    #107 - Sigmundur gerði jafntefli við Rory árið 2005

    Við gerðum upp Masters með frábærum gesti því Sigmundur Einar Másson kom í heimsókn til okkar. Hann er fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi og mikill tölfræðigrúskari.Rory McIlroy fagnaði sigri á Masters annað árið í röð og Sigmundur sagði okkur frá því þegar hann mætti honum í Evrópumóti landsliða árið 2005. Keppni þeirra á milli endaði með jafntefli og við fórum aðeins yfir það afrek.Simmi er mikill tölfræðipælari og því var þátturinn á frekar tæknilegum nótum að þessu sinni. Hann kom með stórskemmtilega kraftröðun yfir erfiðstu par-3 holur landsins miðað við tölfræði PGA-leikmanna.Draumahollið á sínum stað og ýmislegt stórskemmtilegt!

  6. 107

    #106 - Golf er kvíðalyfið hjá Rikka G

    Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Útvarpsmaðurinn og íþróttalýsandinn Ríkharð Óskar Guðnason var gestur þáttarins sem var að hluta helgaður Masters. Rikki er ljómandi góður kylfingur með rétt tæpa fimm í forgjöf og byrjaði ungur að spila golf í Öndverðarnesi. Rikki átti að verða múrari og sagði okkur skemmtilega frá því hvernig hann endaði sem útvarpsmaður.Við spáðum í spilin fyrir Masters, Rikki kom með eitt draumaholl og annað alls ekki draumaholl, spurningar frá hlustendum og svo fengum við frábæra kraftröðun þar sem Rikki valdi topplista yfir hrun kylfinga á Masters.Frábær þáttur þar sem víða er komið við. Rikki fór yfir golfið sitt á mjög einlægum nótum.

  7. 106

    #105 - Seinni níu x Steve Dagskrá

    Vilhjálmur Freyr Hallsson og Andri Geir Gunnarsson, sem skipa tvíeykið í hlaðvarpinu Steve dagskrá, komu í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þeir hafa haldið úti sínu vinsæla hlaðvarpi frá árinu 2018 og hafa verið að færa sig upp á skaftið á golfvöllum landsins að undanförnu.Í þættinum er komið víða við enda er þetta lengsti þáttur af Seinni níu frá upphafi. Við hitum aðeins upp fyrir Masters, draumahollið á sínum stað og svo velja þeir félagar fimm bestu golfholur Hafnarfjarðar enda miklir Hafnfirðingar.Villi gerir upp átakanlega frammistöðu sína í ferð til Portúgal sem að Brutta sýndi á Youtube. Andri segir frá fjögurra daga fögnuði eftir að hafa farið holu í höggi á Hvaleyrinni.Frábær þáttur í alla staði og léttleikinn í fyrirrúmi.

  8. 105

    #104 - Kristín Elfa er golfsjúkasta kona landsins

    Við fengum golfsjúkustu konu landsins, að eigin sögn, í heimsókn í Seinni níu. Kristín Elfa Axelsdóttir, kylfingur í GKG, hóf að leika golf fyrir fimm árum og nú snýst líf hennar að stórum hluta um að komast í golf.Hún starfar hjá Festi, þar sem ríkir mikil golfmenning sem varð til þess að hún prófaði golf. Það var ekki aftur snúið og á síðasta ári lék Kristín yfir 100 átján holu golfhringi.Kristín er með um 24 í forgjöf og stefnir hún að því að komast undir 20 á árinu. Kristín sagði okkur frá þeirri merkilegu staðreynd að hún notar 8-járnið í löng pútt, sem hefur vakið mikla undrun meðal meðspilara hennar.Draumahollið er á sínum stað og svo kom Kristín með Powerrank, þar sem hún fer yfir þá hluti sem fara í taugarnar á henni á golfvellinum.Frábær þáttur sem kemur svo sannarlega á óvart!

  9. 104

    #103 - Broddi er hnitmiðaður kylfingur

    Við fengum heimsmeistara og ólympíufara í Seinni níu því badmintonmeistarinn Broddi Kristjánsson kom í heimsókn til okkar. Hann keppti á Ólympíuleikunum árið 1992 og var nánast ósigrandi í íþróttinni hér á landi á sínum tíma.Núna á golfið hug hans allan og leikur hann bæði í Nesklúbbnum og á Flúðum. Við ræðum um ferilinn bæði í badminton og hvað var það sem dró hann yfir í golfíþróttina. Broddi segir okkur skemmtilega sögu af því hvernig hann eignaðist fyrsta golfsettið.Boddi velur draumahollið og kom svo með frábært powerrank þar sem hann valdi fimm bestu pallanna við golfskála landsins.Stórskemmtilegur þáttur sem er auðvitað á léttu nótunum.

  10. 103

    #102 - Golfneistinn hvarf hjá Ólöfu Maríu á hátindi ferilsins

    Við fengum fjórfaldan Íslandsmeistara í heimsókn til okkar í Seinni níu. Ólöf María Jónsdóttir, fyrrverandi atvinnukona í golfi, kom í heimsókn til okkar og við fórum yfir ferilinn hennar.Ólöf María var brautryðjandi í íslensku golfi en hún var fyrst til þess að vinna sér inn keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna árið 2005. Hún spilaði í nokkur ár meðal þeirra bestu í Evrópu áður en hún ákvað að leggja golfkylfurnar á hilluna og spilar sáralítið golf í dag þar sem hún býr í Texas í Bandaríkjunum.Ólöf fer í þættinum yfir það hvernig hún missti hreinlega áhugann eða neistann fyrir golfíþróttinni þegar hún var á hátindi ferilsins. Mjög áhugaverð frásögn í meira lagi.Við rekjum sögu Ólafar og fáum hana til að tala um afrek sín í íþróttinni, slæman golfþjálfara á háskólaárunum, að vera eina stelpan að æfa með strákum á unglingsárum og margt fleira.Við fáum að heyra draumahollið hjá Ólöfu og einnig það helsta sem hún lærði á frábærum ferli.

  11. 102

    #101 - Oddur var óvænt með 1,9 í forgjöf

    Við fengum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Oddur Þórðarson, fréttamaður á RÚV, kom í heimsókn til okkar og það kom okkur skemmtilega á óvart hversu hversu öflugur hann er í golfi. Oddur er með 7 í forgjöf og er að eigin sögn góður í að redda sér í kringum flatirnar. Hann byrjaði ungur í golfi og ólst upp á Korpúlfsstaðavelli. Um tíma vann Oddur einnig á Korpunni sem golfvallastarfsmaður og hefur verið meðlimur í GR lengi.Í þættinum er komið víða við en það stóð upp úr þegar Oddur valdi fimm bestu og fimm verstu merki golfklúbba landsins. Þar kom ýmislegt forvitnilegt í ljós og svigrúm til bætinga hjá mörgum golfklúbbum landsins.Frábær þáttur að venju og á sérstaklega léttum nótum.

  12. 101

    #100 - Þór er með pútter úr dánarbúi

    Það var mjög létt yfir okkur í Seinni níu og við fengum bæjarstjórann á Seltjarnarnesi, Þór Sigurgeirsson, í heimsókn til okkar. Þetta er þáttur númer 100 af Seinni níu og var auðvitað aðeins farið yfir þau tímamót.Þór er þokkalegur kylfingur með 22,2 í forgjöf en sér fram á að forgjöfin geti lækkað eftir að hafa fengið nýjar mjaðmir. Þór er auðvitað í Nesklúbbnum og er þar í virku samtali við kjósendur, bæði þá sem eru í golfi og svo þá vegfarendur sem hefur verið mjög nálægt því að slá í við Nesvöllinn.Í þættinum er komið víða við en Þór rekur skemmtilega tilkomu golftryggingar sem Vörður hefur selt á undanförnum árum. Þór var lengi starfsmaður hjá Verði áður en hann varð bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og fór yfir það tjón sem tryggingafélagið varð fyrir þegar margir af vinum Þórs byrjuðu að fara holu í höggi.Draumahollið er á sínum stað og svo fáum við undarlega kraftröðun á bestu golfvöllunum sem Þór hefur leikið. Einnig segir bæjarstjórinn okkar sérkennilega sögu frá því hvernig hann eignaðist pútterinn.Frábær þáttur og auðvitað á léttum nótum.

  13. 100

    #99 - Axel ætlar sér fleiri Íslandsmeistaratitla

    Við fáum til okkar frábæran gest því Axel Bóasson, þrefaldur Íslandsmeistari í golfi, kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu.Í þættinum förum við yfir ferilinn hjá Axel en hann er nýlega tekinn við sem yfirþjálfari hjá Golfklúbbnum Keili eftir atvinnumannaferil. Hann segir okkur frá hæðum og lægðum á keppnisferlinum og greinir okkur frá því hversu andlega erfið þess íþrótt er fyrir kylfinga sem eru að reyna að keppa meðal þeirra bestu með feta upp metorðastigann.Árið 2017 var hans besta keppnistímabil en hann varð þá Íslandsmeistari ásamt því að verða efstur á stigalistanum á Norrænu mótaröðinni sem tryggði honum keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. Í kjölfarið fyldi erfitt ár þar sem honum tókst ekki alveg að finna taktinn en varði þó Íslandsmeistaratitilinn í Vestmannaeyjum.Í þættinum er komið víða við. Axel segir okkur frá því að hann púttar best með stuttum pútter eða helst þannig að hann þurfi að standa mjög gleiður þegar hann púttar. Draumahollið er á sínum stað og svo velur Axel þær golfholur á Íslandi sem honum finnst mjög krefjandi af öftustu teigum.Frábær þáttur sem gefur hlustendum innsýn inn í líf eins af okkar bestu kylfingum en Axel er ekki hættur og stefnir að því að vera sigursælasti kylfingurinn í sinni fjölskyldu.

  14. 99

    #98 - Stebbi Hilmars er með plástur á pútternum

    Við fengum til okkar meiriháttar gest í Seinni níu því söngvarinn ástsæli Stefán Hilmarsson kom í heimsókn. Við komum víða við í þættinum en Stefán segir okkur frá golfinu sínu og hvernig það kom til að hann hóf golfiðkun.Stefán hóf að spila árið 2001 en Eyjólfur Kristjánsson dró hann í íþróttina en þeir höfðu báðir fylgst með golfi í sjónvarpi löngu áður. Tony Finau er uppáhaldskylfingurinn hjá Stefán þessa dagana og er það þessi sérkennilega golfsveifla sem er að heilla.Við fengum stórskemmtilega kraftröðun en Stefán valdi sína eftirlætisvelli á Alicante svæðinu og valdi einnig nokkur draumaholl.Svo kom í ljós að Stefán hefur 10 sinnum orðið vitni af því þegar aðrir en hann hafa farið holu í höggi. Stórskemmtilegur þáttur á alveg sérstaklega léttum nótum.

  15. 98

    #97 - Fúsi þarf extra þykk grip

    Við fáum frábæran gest til okkar í Seinni níu þessa vikuna því handboltahetjan Sigfús Sigurðsson kemur í heimsókn til okkar. Hann ræðir aðeins við okkur um handbolta en aðallega um golf.Sigfús er með um 15 í forgjöf og hóf ungur að leika golf. Hann hætti hins vegar á unglingsaldri þar sem það þótti ekki töff að spila golf á þeim árum.Fúsi er með stórar krumlur og lenti í vandræðum snemma á ferlinum með golfgripið sem hann kreisti aðeins of mikið. Nú er stefnan sett á að fá júmbó-grip á kylfurnar.Hann hóf að leika golf að nýju þegar handboltaferilinn var að baki. Fúsi spilar mikið golf og þá sérstaklega á kvöldin enda stendur hann vaktina í fiskbúðinni sinni í Skipholti flesta daga. Hann er félagi í GR og spilar mest þar.Við fáum að heyra af ótrúlegu pari hjá Fúsa og daumahollinu þar sem litríkir kappar koma við sögu. Svo fengum við að heyra ótrúlega sögu af dóttur Fúsa af golfvellinum - saga sem Logi kærði sig eiginlega ekki um að heyra.Skemmtilegur þáttur á léttu nótunum.

  16. 97

    #96 - 4-járnið í uppáhaldi hjá Helgu Möller

    Við fáum frábæran gest til okkar í Seinni níu því til okkar kom söngkonan ástsæla Helga Möller. Við komum víða við í þættinum en Helga hefur lengi spilað og var best með um 14 í forgjöf.Golf var stór þáttur í fjölskyldu Helgu en foreldrar hennar bjuggu til golfholur nærri sumarhúsi þeirra sem varð vísirinn að golfvellinum í Grindavík.Við fengum að heyra draumahollið hjá Helgu og einnig sagði hún okkur frá því þegar Helga fór holu í höggi á Islantilla golfvellinum.Jafnframt kemur fram að 4-járnið sem var hluti af fyrsta golfsettinu hjá Helgu er í sérstöku uppáhaldi.Frábær þáttur í alla staði á sérstaklega léttum nótum.

  17. 96

    #95 - Sigmundur Ernir byrjaði sem kylfusveinn

    Við fáum til okkar góðan gest í Seinni níu þessa vikuna því Alþingismaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson kom í heimsókn til okkar. Hann hefur leikið golf lengi og hóf ungur að leika golf á Akureyri. Í raun byrjaði hann ferilinn sem kylfusveinn og stundaði það af meiri krafti en sjálft golfið fyrstu árin.Sigmundur er með 14 í forgjöf og spilar að eigin sögn frekar tíðindalítið golf. Hann er frekar beinn af teig og fær fáar sprengjur.Í þættinum segir Sigmundur okkur aðeins frá sínum eftirlætis velli sem er La Gomera er staðsettur á eyju við hlið Tenerife.Sigmundur velur draumahollið og við fáum einnig kraftröðun yfir fimm vinsælustu velli ársins í golfhermi hjá Golfsvítunni.Skemmtilegur þáttur þar sem er komið víða. Meðal annars er rætt um hvort golfvöllur í Viðey gæti orðið að kosningamáli?

  18. 95

    #94 - Patrik braut 10 kylfur á síðasta ári

    Við fáum til okkar skemmtilegan gest í þessari viku í Seinni níu því tónlistamaðurinn Patrik Atlason kom í heimsókn til okkar. Patrik er með um 7 í forgjöf en hann hóf að leika golf í Covid.Í þættinum er komið víða við en Patrik segir okkur frá sýn sína á golfíþróttina. Hann segir okkur meðal annars frá þeirri áráttu sinni að brjóta golfkylfur en hann braut 10 golfkylfur á síðasta ári.Patrik velur draumahollið og svo fáum mjög áhugaverða kraftröðun þar sem hann velur fimm bestu áhrifavaldanna á Youtube.Frábær þáttur þar sem golf er í aðalhlutverki en einnig aðeins rætt um tónlist.

  19. 94

    #93 - Banatilræði Sigurðar Kára við forsætisráðherra í Vestmannaeyjum

    Við fáum til okkar frábæran gest í fyrsta þátt ársins 2026. Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fv. þingmaður, mætti til okkar í skemmtilegt spjall um golf.Sigurður Kári er með ca 11 forgjöf um þessar mundir og dreymir um að komast í einna tölu forgjöf. Hann hefur leikið golf um árabil og sagði okkur frá því þegar hann féll fyrir íþróttinni í útskriftarferð úr framhaldsskóla. Í þættinum förum við yfir hæðir og lægðir í golfinu en um tveggja ára tímabili týndi Siggi Kári hreinlega sveiflunni.Að venju er draumahollið á sínum stað en Siggi bauð okkur jafnframt upp á frábæra kraftröðun þar sem banatilræði við þáverandi forsætisráðherra við golfiðkun í Vestmannaeyjum ber á góma.Sigurður Kári er jafnframt bróðir Hafrúnar Kristjánsdóttur sem var gestur okkar í Seinni níu á árinu 2024. Þau eru því fyrstu systkinin til að mæta í Seinni níu.Mjög skemmtilegur þáttur að vanda og allir léttir. Gleðilegt nýtt ár!

  20. 93

    #92 - Áramótaþáttur Seinni níu

    Nú er komið að síðasta þætti ársins af Seinni níu. Líkt ogjólaþátturinn okkar þá er áramótaþátturinn uppfullur af skemmtilegum brotum úr þáttum ársins. Í þættinum er rætt kylfinga á öllu getustigi. Allt frá atvinnumönnum í golfi til byrjenda og eiginlega allt þar á milli.Meðal þeirra sem bregða við í þættinum eru Bjarni Benediktsson, Gummi Ben, Sigríður Andersen, Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, Eva María Jónsdóttir og fjölmargir af þeim stórskemmtilegu viðmælendum sem komu til okkar í Seinni níu á árinu.Við í Seinni níu viljum þakka samfylgdina á árinu sem er að líðaog hlökkum til að hefja golfárið 2026 af krafti. Við mætum svo með nýjan þátt og nýjan viðmælenda í fyrstu viku nýs árs.Gleðilegt nýtt ár!

  21. 92

    #91 - Jólaþáttur Seinni níu

    Árið 2025 hefur verið frábært hjá okkur í Seinni níu. Af því tilefni ætlum við að gefa út tvo samantektarþætti með skemmtilegum umræðum við gesti okkar á árinu.Fyrri þátturinn kemur út á aðfangadag og sá síðari á gamlársdag. Þættirnir eru báðir um tvær klukkustundir en þar reynum við þar að grípa niður á skemmtileg augnablik í þeim ca 50 þáttum sem við höfum gefið út á árinu.Við óskum kylfingum landsins gleðilegra jóla og þökkum samfylgdina á árinu!

  22. 91

    #90 - Óli Jó leitar að golfboltum í svartamyrkri

    Við fáum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna því Ólafur Jóhannesson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og knattspyrnuþjálfari, kemur í heimsókn og ræðir aðallega um golf. Ný bók var að koma út um Ólaf þar sem hann gerir upp litríkan þjálfaraferil.Það var létt yfir Óla Jó en hann hefur leikið golf frá unga aldri. Hann var snemma farinn að venja komur sínar út á Hvaleyri og hefur verið félagsmaður í Keili um árabil. Óli er núna með um 13 í forgjöf og er að eigin sögn seigur í kringum flatirnar.Nú þegar þjálfaraferilinn er að baki hefur Óli verið duglegur að spila. Hann býr nú hluta ársins á Spáni og reynir að spila mikið þegar hann er búsettur á Spáni. Í þættinum er komið víða við en einna merkilegast er það áhugamál hjá Ólafi að leita að golfboltum í svartamyrkri á golfvöllum. Hann fer reglulega og hefur týnt upp tugþúsundir golfbolta. Ótrúleg frásögn.Draumahollið er á sínum stað og svo velur Óli sínareftirlætis golfholur. Frábær þáttur á laufléttum nótum eins og alltaf.

  23. 90

    #89 - Bogi Nils fór í dáleiðslu til að laga vippin

    Við fáum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Bogi NilsBogason, forstjóri Icelandair, kíkir í heimsókn til okkar. Bogi er mjög flottur kylfingur með um 4,5 í forgjöf og hóf ungur að leika golf á Eskifirði þar sem hann ólst upp og er enn skráður í klúbbinn á sínum heimaslóðum. Hann er líka félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur og býr við Korpúlfsstaðavöll.Bogi sinnir auðvitað stóru hlutverki í einu mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann notar því golf til þess að reyna kúpla sig út úr amstri hversdagsins. Hann nefnir að tvígang hafi vinnutengdir hlutir eyðilagt fyrir honum golfhring og árið 2020 eyðilagi kjarabarátta við eina af stéttum félagsins fyrir honum fyrsta hring í Meistaramóti GR.Í þættinum er komið víða. Bogi fer yfir vandræði karlhluta fjölskyldunnar við að fara holu í höggi. Hann velur jafnframt draumahollið þar sem afar ólíkir kylfingar koma saman. Einnig fengum við Boga til að kraftraða fimm bestu flugvellina með tilliti til gæði golfvalla í nálægð við flugvöll. Við fáum að heyra með hvaða heimþekktu kylfingum Bogi hefur leikið með en hann hefur í þrígang leikið með Big Easy, Ernie Els, sem er að sögn Boga einstaklega léttur og skemmtilegur.Boga segir okkur frábæra sögu af púttharmleik á 18. holu í Grafarholti og einnig hvernig hann nýtti sér dáleiðslu til að reyna að laga vippin sem hafa verið að plaga hann að undanförnu.Frábær þáttur sem á erindi við allt golfáhugafólk!

  24. 89

    #88 - Jón Bjarki braut tvær kylfur og fór svo holu í höggi

    Við fáum skemmtilegan gest til okkar í þessari viku í Seinni níu. Jón Bjarki Oddsson kemur í heimsókn en hann starfar sem kírópraktor og sinnir því fjölmörgum kylfingum sem eru að glíma við meiðsli af einhverju tagi.Jón Bjarki er hörku kylfingur með um 1 í forgjöf. Hann er með golfhermi á skrifstofunni þar sem hann sinnir störfum sem kírópraktor sinnir því bæði meðferðum og kennir golf. Jón Bjarki gaf einnig út skemmtilega bók um golf fyrr á þessu ári sem er mjög áhugaverð.Í þættinum segir Jón okkur margar skemmtilegar sögur af sér í golfi. Meðal annars frá ótrúlegum sviptingum á lokadegi í meistaramóti í Mosfellsbæ. Sömuleiðis fáum við að heyra mjög skrautlegar sögur af ásum sem seint verða toppaðar.Frábær þáttur þar sem við komum víða við. Draumahollið og powerrank á sínum stað. Svo óskuðum við Loga líka til hamingju með afmælið.

  25. 88

    #87 - Heimir Karls vann bæði Anniku og Monty

    Útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson kom í heimsókn til okkar í Seinni níu en hann hefur spilað golf um árabil. Heimir náði þeim einstaka árangri að verða bæði Íslandsmeistari í fótbolta og handbolta. Í seinni tíð hefur hann einbeitt sér að golfinu og náði best rétt undir 10 í forgjöf. Í dag er Heimir með um 16 í forgjöf og kveðst vera sterkastur í innáhöggunum. Hann er í Golfklúbbi Reykjavíkur og er einnig nýlega skráður í Golfklúbb Öndverðarness.Í þættinum er komið víða við. Heimir segir okkur frá því hvernig hann fór tvívegis holu í höggi. Sömuleiðis segir hann okkur frá því þegar hann vann bæði Colin Montgomerie og Anniku Sörenstam á einni holu í golfi.Heimir kemur með topplista yfir golfholur með bestu teigstæðin og velur draumahollið. Frábær þáttur á léttum nótum eins og alltaf!

  26. 87

    #86 – Þórhallur fann draumahúsið á golfvellinum

    Við fáum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna því tilokkar kemur Þórhallur Sverrisson sem er einna best þekktur fyrir að hafa leikið aðalhlutverkið í kvikmyndinni Íslenski draumurinn. Myndin fagnaði 25 ára afmæli fyrir skömmu og því rifjum við aðeins upp þá frábæru kvikmynd auk þess að ræða auðvitað um golf.Þórhallur er rétt undir 10 í forgjöf og spilar mjög reglulega.Hann byrjaði að spila fyrir um 20 ár og leikur aðallega á sínum heimavelli sem er GKG. Hann fann raunar draumahúsið við að spila golf á Leirdalnum og býr rétt fyrir ofan 12. braut vallarins – þar sem stundum koma golfboltar inn á pallinn hjá honum.Þórhallur kemur með frábæran lista yfir bestu augnablikinsín í golfi og velur jafnframt draumahollið með þremur sterkum kylfingum. Í þættinum er komið víða við og einnig rætt um breytingar á reglum sem snýr að notkun golfbíla hjá Golfklúbbi Reykjavíkur sem hefur valdið smá fjarðafoki.

  27. 86

    #85 - Kristján Þór sjankaði á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum

    Við fengum tvöfaldan Íslandsmeistara í heimsókn þessa vikuna þegar Kristján Þór Einarsson mætti til okkar í Seinni níu. Kristján varð Íslandsmeistari í golfi árin 2008 og 2022. Í bæði skiptin komu titlarnir í Vestmannaeyjum.Í þættinum rekur Kristján aðeins keppnisferilinn, velur fimm bestu keppnisgolfholur landsins. Hann segir okkur jafnframt frá sínum mesta ótta í golfi sem er að sjanka. Kristján segir okkur skemmtilega frá því þegar hann sjankaði í beinni útsendingu á Íslandsmótinu í golfi árið 2022 þar sem hann stóð að lokum uppi sem sigurvegari.Já þessir bestu eru víst mannlegir eftir allt saman.Frábær þáttur með einum af sigursælasta kylfingi landsins.

  28. 85

    #84 - Reiðilestur frá Bogdan ýtti Arnari yfir í golf

    Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna þegarArnar Már Ólafsson, golfkennari og frumkvöðull í golfkennslu, kom í heimsókn til okkar. Arnar ræddi við okkur um golf í yfir klukkustund en hann er einn færasti golfkennari landsins og hefur þjálfað marga af bestu kylfingum Íslands.Í þættinum fer Arnar aðeins fyrir ferilinn í golfkennslu enhann er nýlega kominn aftur heim til Íslands eftir langa dvöl í Þýskalandi. Arnar segir okkur frá því að hann hafi þurft að fara erlendis að þjálfa enda fáir í golfkennarafaginu hér heima á þeim tíma. Tímarnir hafa svo sannarlega breyst enda er sannkölluð golfsprengja í gangi á Íslandi.Arnar er nýlega byrjaður að spila golf af krafti á nýjanleik og er það ekki síst fyrir tilstilli nýrrar tækni í hugbúnaðinum ELVA Golf sem Arnar hefur tekið þátt í að þróa. Með þeirri tækni gat Arnar farið að þjálfa sjálfan sig en ELVA Golf er nákvæm sveiflumæling án skynjara sem hefurvakið athygli á heimsvísu. Arnar útskýrir aðeins fyrir okkur þessa nýju tækni sem er almenningi aðgengileg.Í þættinum velur Arnar Már draumahollið. Við fáum skemmtilegan topplista þar sem Arnar velur bestu kylfinganna sem hann hefur þjálfað á ferlinum.Mjög skemmtilegt og fróðlegt spjall við einn bestagolfkennara landsins. Arnar segir okkur jafnframt frá örlagaríku atviki sem varð þess valdandi að hann hætti í handbolta og lagði áherslu á golfið. Handboltaþjálfarinn Bogdan Kowalczyk og heilahristingur kemur þar við sögu.

  29. 84

    #83 - Evu Maríu dreymir um að spila með Clooney

    Við fengum góðan gest í þátt vikunnar í Seinni níu.Fjölmiðlakonan Eva María Jónsdóttir kom í heimsókn til okkar. Hún er kylfingur í Nesklúbbnum og er með um 25 í forgjöf. Hún kom óvænt í golfíþróttina fyrir um tíu árum og hefur golfið haft það mikil áhrif á hana að hún fékk sér dagvinnu sem kennari til að geta stundað golf af krafti yfir sumartímann þegar kennsla liggur niðri.Í þættinum segir Eva okkur frá hvernig hún kynntistíþróttinni og því andlega ferðalagi sem golfíþróttin hefur verið fyrir hana. Hún segir okkur frá nýjum þáttum sem hún er með á RÚV sem kallast Ljóðaland en hugmyndin að þáttunum kom óvænt upp í golfferð. Í fyrsta sinn í Seinni níu varkveðin golfvísa.Eva velur draumahollið og kemur einnig með frábærantopplista yfir þau fimm atriði sem hafa komið henni mest á óvart eftir að hún hóf að leika golf.Svo kemur í ljós að Logi á nú 10 púttera eftir að hafa fjárfest í tveimur pútterum á síðustu vikum.

  30. 83

    #82 - Hrafnhildur hefur spilað alla golfvelli landsins

    Við fáum frábæran gest í Seinni níu. Það er útvarpskonanHrafnhildur Halldórsdóttir sem kom í heimsókn til okkar en flest okkar ættu að kannast við rödd hennar úr Síðdegisútvarpinu á Rás2.Hrafnhildur hóf að leika golf fyrir um 20 árum og varð alvegheilluð af golfíþróttinni. Svo heilluð að hún hefur leikið alla golfvelli á Íslandi. Það tókst henni í sumar með því að ferðast ásamt eiginmanni sínum á húsbíl um landið með það að markmiði að spila þá golfvelli sem varð á vegi þeirra. Í þættinum fáum við Hrafnhildi til velja topplista yfirbestu níu holu golfvelli landsins sem hún hefur spilað. Þar koma margir stórskemmtilegir vellir við sögu. Hrafnhildur velur einnig draumahollið og svo mælir hún sérstaklega með því að leika golf í Þýskalandi og Austurríki.Við komum víða við í þættinum og Hrafnhildur segir okkur frá því að Írinn Shane Lowry sé hennar uppáhalds kylfingur. Frábær þáttur!

  31. 82

    #81 - Sigurvin þolir ekki leiðinlegar golfsögur

    Við fáum góðan gest í Seinni níu í þessari viku en knattspyrnuþjálfarinn Sigurvin Ólafsson kemur í heimsókn til okkar. Sigurvin er alin upp í Vestmannaeyjum og byrjaði ungur að leika sér í golfi en hefur aldrei almennilega hellt sér í golfið.Venni er ekki alveg með á hreinu hver forgjöfin er en er sagt að hann sé með óþolandi fallega golfsveiflu. Hann hefur sjaldnast frumkvæðið að því að fara í golf og leikur með gömlum notuðum kylfum. Venni er því nokkuð frábrugðin flestum af okkar gestum sem eru forfallnir golfáhugamenn.Í þættinum tengjum við aðeins saman mismunandi tegundir golfhögga og spyrnutækni. Venni velur draumahollið og kemur með með Powerrank yfir þá hluti sem hann þolir ekki í golfi. Falskar vonir og leiðinlegar golfsögur koma þar við sögu.Frábær þáttur þar sem við tengjum saman golf og fótbolta á einstakan hátt.

  32. 81

    #80 - Egill Einarsson er með 7 golfkennara

    Við í Seinni níu erum staddir á Ítalíu en fáum frábæran gest í þáttinn. Egill Einarsson mætir til okkar og fer yfir það hvernig það sé að vera byrjandi í íþróttinni.Egill byrjaði í vor og golfíþróttin hefur heltekið hann. Hann er að vinna með 7 golfkennurum að því að ná betri tökum á íþróttinni.Í þættinum ræðum við um golf á skemmtilegum nótum en Egill kemur með frábært Powerrank, velur draumaholl og svarar spurningum frá hlustendum.Frábær þáttur þar sem við fáum mjög skemmtilegt sjónarhorn frá einum af okkar efnilegustu kylfingum.Carton af boltum kemur við sögu í þættinum.

  33. 80

    #79 - Ryder-bikarinn gerður upp frá Royal Troon

    Það var líf og fjör á Ryder-bikarnum um helgina þar sem Evrópu vann góðan sigur. Mikil spenna var á lokadeginum eftir óvænta viðspyrnu Bandaríkjamanna í síðustu umferð. Í nýjasta þætti Seinni níu er farið á faglegu nótunum yfir þetta frábæra mót.Logi og Jón eru staddir í Skotlandi og er þátturinn tekinn við 18. brautina á Royal Troon vellinum. Logi kemur með Powerrank yfir fimm bestu hlutina við Skotland þar sem krákur koma óvænt við sögu.Við sendum stuðningsyfirlýsingu til lýsenda, förum yfir það hvernig það er að fara næstum því holu í höggi og ræðum það áfall að flugfélagið PLAY sé hætt rekstri.

  34. 79

    #78 - Ingi Rúnar er með sex ása á ferilskránni

    Við fáum frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu en Ingi Rúnar Gíslason, kylfingur, golfkennari og sölumaður Titleist hjá ÍSAM kemur í heimsókn til okkar.Í þættinum hitum við upp fyrir Ryder-bikarinn en Ingi Rúnar mun lýsa mótinu um helgina. Við spáum aðeins í spilin og erum sammála um að þetta verði hörkumót.Við duttum aðeins á tæknilegar nótur í þættinum að þessu sinni. Meðal annars segir Ingi okkur frá því að kaupa alls ekki vatnabolta.Ingi fór aðeins yfir ferilinn sem golfkennari en hann hefur meðal annars þjálfað Heiðar Davíð Bragason, Kristján Þór Einarsson og Íslandsmeistarann Dagbjart Sigurbrandsson. Ingi segir okkur frá lífi golfkennarans og tekur það sér á Powerranka fimm bestu æfingasvæðin á Íslandi í dag.Ingi hefur sex sinnum farið holu í höggi og þar af á hann albatross á 10. braut á Akranesi. Hann rifjar þetta upp, Loga til ómældrar gleði.Draumahollið og ýmislegt stórskemmtilegt á sínum stað í þessum frábæra þætti.

  35. 78

    #77 - Fannar fór holu í höggi en átti að vera á fundi

    Við fáum til okkar einn þekktasta áhrifavald landsins í íslensku golfi því Fannar Már Jóhannsson kom í heimsókn til okkar. Fannar Már þekkja margir sem Fannar golf en hann hann hefur síðastliðið ár gert frábært efni af golfvellinum á Instagram og TikTok.Fannar fer aðeins yfir það ferli að búa til svona efni og viðbrögðin. Fannar segir okkur einnig frá því þegar hann fékk alveg nóg af golfi um 16 ára aldur og hætti að spila golf. Sem betur fer fékk hann aftur golfdellu nokkrum árum síðar á lokastigi og starfar nú sem markaðsstjóri Golfsambands Íslands.Í þættinum segir Fannar okkur frá því þegar hann fór holu í höggi í annað sinn í sumar á 4. holu á Jaðarvelli. Það var margt frábært við það atvik sem Fannar greinir skemmtilega frá.Fannar velur draumahollið, kemur með Powerrank með fimm bestu 9 holu velli landsins og svarar spurningum frá hlustendum. Frábær þáttur í alla staði.

  36. 77

    #76 - Aron Pálmarsson drævar yfir 250 metra

    Við fengum frábæran gest í þátt vikunnar af Seinni níu því handboltamaðurinn Aron Pálmarsson kom í heimsókn. Aron var að ljúka mögnuðum handboltaferli á dögunum og er nú orðinn forfallinn kylfingur. Hann ætti því að hafa meiri tíma fyrir golfið núna þegar hann er hættur í handboltanum.Aron byrjaði ungur í golfi en spilaði lítið á meðan handboltaferlinum stóð. Hann byrjaði aftur að spila þegar hann fluttist til Barcelona og er í dag með um 7 í forgjöf.Óhætt er að segja að sveifluhraðinn komi beint úr handboltanum því Aron getur slegið mjög langt og hátt með drævernum eða allt að 250 metra í réttri vindátt.Aron velur draumahollið en kemur jafnframt með frábært Powerrank yfir það sem hann þolir ekki í golfi. Einnig deilir hann með okkur þeirri upplifun að fara holu í höggi á Hvaleyrarvelli.Frábær þáttur með einum af okkar dáðustu íþróttamönnum.

  37. 76

    #75 - Valdís Þóra var lengi að jafna sig eftir dramatískt viðtal

    Gestur vikunnar í Seinni níu er Valdís Þóra Jónsdóttir frá Akranesi. Hún er þrefaldur Íslandsmeistari í golfi og hefur náð einna lengst íslenskra atvinnukylfinga. Hún lék á Evrópumótaröð kvenna en náði einnig að leika á tveimur risamótum ferlinum.Í þættinum förum við yfir ferilinn og erfið bakmeiðsli sem urðu þess valdandi að hún þurfti að hætta golfiðkun fyrir nokkrum árum. Valdís er þó eitthvað farin að spila golf að nýju.Valdís fer einnig yfir þá miklu gagnrýni sem hún hlaut eftir viðtal á Íslandsmótinu í golfi árið 2016. Sú gagnrýni sat lengi í henni og varð til þess að hún breytti því hvernig hún nálgaðist fjölmiðla.Valdís kemur með frábært Powerrank og velur einnig draumahollið.Frábær þáttur á mjög einlægum nótum.

  38. 75

    #74 - Neal Shipley upplifði drauminn og lék með Tiger á Masters

    Í þessari viku fáum við frábæran gest því PGA-kylfingurinnNeal Shipley kemur í heimsókn til okkar í Seinni níu. Þetta er í fyrsta sinn sem við tökum Seinni níu upp á ensku sem er skemmtileg tilbreyting. Shipley var á landinu í síðustu viku og hóf heimsóknina til Íslands á því að koma í Seinni níu. Shipley er 24 ára gamall og vann sér inn keppnisrétt áPGA-mótaröðinni á næstu leiktíð. Hann er nú þegar orðinn einn af eftirlætiskylfingum okkar í Seinni níu. Fyrir áhugasama þá kemur Shipley við sögu í þáttunum Full Swing á Netflix.Saga Shipley er áhugaverð. Hann varð í öðru sæti á Opnabandaríska áhugamannamótinu árið 2023 sem gaf honum keppnisrétt bæði á Masters og Opna bandaríska meistaramótinu árið eftir. Á báðum mótum fór hann í gegnumniðurskurðinn og lék lokahringinn á Master með Tiger Woods. Hann fer aðeins yfir þá upplifun að leika með Tiger í þættinum.Í ár hefur hann staðið sig frábærlega á Korn Ferrymótaröðinni og hefur tryggt sér fullan keppnisrétt á PGA-mótaröðinni á næstu leiktíð.Shipley hefur skemmtilega tengingu til Íslands en hann ergóður vinur Sigurðar Bjarka Blumenstein sem er einn af okkar bestu kylfingum. Þeir voru saman í háskóla í Bandaríkjunum og er mestu mátar.Í þættinum fáum við innsýn inn í hugarheim hjá atvinnukylfingi sem er að leika á sterkustu mótaröð í heimi og hvernig það sé fyrir ungan mann að vera kominn á þennan stað. Shipley velur draumahollið og kemur víða við í mjög fróðlegu og skemmtilegu spjalli.Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🔋- HS Orka😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn golfverslun🥑 - Hjá Höllu👷‍♂️ - Giggo

  39. 74

    #73 - Böddi Bergs setti tappann í flöskuna og forgjöfin hríðféll

    Böðvar Bergsson kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Böddi er flínkur kylfingur með um 4 í forgjöf og mikill golfáhugamaður. Hann hóf ungur að leika golf í Grafarholti og sem ungur peyji varð hann þrefaldur Íslandsmeistari í golfi sem kylfusveinn hjá Sigurði Péturssyni.Í þættinum segir Böddi okkur frá ákvörðun sinni að hætta að drekka áfengi sem hefur reynst honum mikið gæfuspor. Í kjölfarið hefur hann lækkað forgjöfina úr 10 niður í 4. Böddi segir okkur frá þessu ferli á opinskáan hátt.Í þættinum förum við um víðan völl. Við ræðum aðeins um leikforgjöf lágforgjafar kylfinga sem þykir ekki beint sanngjörn. Við förum yfir styrk- og veikleika Bödda í golfinu en hann er mjög liðtækur í kringum flatirnar.Í lok þáttarins fórum við aðeins yfir andlega þáttinn í golfinu og förum yfir þá erfiðleika sem við kylfingar mætum á golfvellinum.Frábær þáttur sem á erindi við alla kylfinga og golfáhugafólk.Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🔋- HS Orka😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn golfverslun🥑 - Hjá Höllu👷‍♂️ - Giggo

  40. 73

    #72 - Dagbjartur ætlar að setja ís í bikarinn

    Íslandsmeistarinn Dagbjartur Sigurbrandsson var gestur okkar í Seinni níu. Hann kom í spjall degi eftir að hann tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í golfi eftir frábæra spilamennsku á Íslandsmótinu í golfi sem fram fór á Hvaleyrarvelli.Í þættinum förum við aðeins yfir Íslandsmótið með Dagbjarti og hvernig upplifun það er fyrir ungan mann (22 ára) að verða Íslandsmeistari í golfi.Dagbjartur segir okkur frá ásunum fimm sem hann hefur afrekað á ferlinum, velur draumaráshópinn og ýmislegt fleira.Frábær þáttur með einum af bestu kylfingum okkar Íslendinga.Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn golfverslun🥑 - Hjá Höllu👷‍♂️ - Giggo

  41. 72

    #71 - Ólafur Þór hefur starfað hjá Keili í 37 ár

    Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna en Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri hjá Golfklúbbnum Keili kíkti í heimsókn til okkar. Það er nóg um að vera hjá kappanum þessa daganna enda fer Íslandsmótið í golfi fram á Hvaleyrarvelli um helgina.Ólafur byrjaði ungur að starfa hjá Golfklúbbnum Keili, fyrst sem vallarstarfsmaður og vallarstjóri en er í dag framkvæmdastjóri. Hann tók við af föður sínum og óhætt að segja að fjölskyldan tengist Keili afar sterkum böndum.Í þættinum hituðum við upp fyrir Íslandsmótið í golfi, fórum yfir stöðuna á Hvaleyrarvelli og þær breytingar sem gerðar hafa verið á Hvaleyrinni. Einnig ræðum er farið yfir þá ótrúlegu fjölgun sem er að eiga sér stað í golfinu sem að mati Ólafs er ekki síst golfhermum og tækni að þakka.Óli Þór velur draumahollið, rifjum aðeins upp Canon mótin sem fram fóru á Hvaleyrarvelli og svo rifjar Óli það upp þegar hann varð í öðru sæti á Íslandsmótinu í holukeppni.Frábær þáttur og auðvitað á léttum nótum.Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn golfverslun🥑 - Hjá Höllu👷‍♂️ - Giggo

  42. 71

    #70 - Gunnlaugur Árni er einn efnilegasti kylfingur Evrópu

    Við fengum góða gest til okkar í Seinni níu. Gunnlaugur Árni Sveinsson kom til okkar en hann er einn efnilegasti kylfingur í Evrópu. Hann er í 15. sæti á áhugaheimslistanum um þessar mundir og stefnir á að komast alla leið sem kylfingur.Gulli leikur með hinum þekkta LSU háskóla í Bandaríkjunum en sá skóli er einn allra besti íþróttaháskóli Bandaríkjanna. Hann var valinn í Arnold Cup sem fram fór í byrjun sumarsins þar sem hann lék fyrir lið alþjóðaúrvalsins gegn Bandaríkjunum. Hann lék í úrtökumóti fyrir Opna breska og er búinn að vera á miklu ferðalagi í sumar.Við fengum að kynnast Gulla nánar í þessum þætti en þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gamall er þarna á ferðinni gríðarlega efnilegur íþróttamaður sem er með báða fætur kyrfilega á jörðinni.Gulli er með +7 í forgjöf og hefur þrátt fyrir það ekki formlega farið holu í höggi sem kom þáttastjórnendum í opna skjöldu.Í þættinum fórum við aðeins yfir frábært golfmót Seinni níu og svo kom Logi með áhugavert Powerrank um óþolandi hluti á golfvellinum.Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn golfverslun🥑 - Hjá Höllu👷‍♂️ - Giggo

  43. 70

    #69 - Auðunn Blöndal fór holu í höggi í Búlgaríu

    Auðunn Blöndal var gestur okkar þessa vikuna í Seinni níu. Auðunn þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en hann hefur verið einn vinsælasti útvarps- og sjónvarpsmaður landsins um árabil.Auðunn er með 19,9 í forgjöf og elskar að fara í golfferðir. Hann var duglegur að æfa undir handleiðslu kennara í vetur og sér fram á að geta einbeitt sér meira að golfinu á næstu árum. Auddi er ágætur af teig en er í miklum vandræðum með chippin.Hann segir okkur frá því þegar hann fór holu í höggi í Búlgaríu, svar fjölmörgum spurningum frá hlustendum og velur draumahollið. Jón & Logi Powerranka fimm bestu kylfurnar sem þeir hafa átt.Frábær þáttur!Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn golfverslun

  44. 69

    #68 - Arnar Jónsson lék undir aldri í meistaramótinu

    Stórleikarinn Arnar Jónsson kom til okkar í Seinni níu. Arnar var nýbúinn að leika það ótrúlega afrek að leika undir aldri í meistaramótinu á Flúðum þegar hann kíkti í heimsókn til okkar. Arnar lék á 81 höggi en er 82 ára gamall. Magnað afrek.Arnar fer yfir golfferilinn í þættinum. Hann byrjaði frekar seint að spila golf en hafði leikið sér á golfvellinum sem ungur drengur sem kom sér vel þegar golfáhuginn kvikaði síðar á lífsleiðinni.Í þættinum segir hann okkur frá því hvernig hann æfði púttin í bakherberjum leikhúsa og fleyhöggin í hlöðu á Dalvík er hann var búsettur þar vegna leikhúsverkefna.Arnar með um 15 í forgjöf sem er ansi vel af sér vikið. Í dag spilar hann nánast daglega og er sífellt að reyna að bæta sig. Um þessar mundir leggur hann mesta áherslu á að bæta járnahöggin sem gengur vel.Draumahollið er á sínum stað og vill Arnar bjóða þremur heimsþekktum kylfingum með sér til Búlgaríu. Logi og Jón veðja á fimm kylfinga hvor fyrir Opna breska.Arnar hefur spilað víða erlendis og segir okkur meðal annars frá uppskriftinni að hinni fullkomnu borgargolferð!Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn golfverslun

  45. 68

    #67 - Heiðrún Lind spilar betur þegar hún er reið

    Heiðrún Lind Marteinsdóttir er gestur okkar í Seinni níu þessa vikuna. Hún er í eldlínunni um þessar mundir í umræðu um veiðigjöld enda framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.Heiðrún er nýlega byrjuð í golfi og tók þátt í sínu fyrsta meistaramóti núna á dögunum. Í þættinum fer hún yfir upplifun sína af mótinu og hvað kom henni mest á óvart.Hún kveðst efnileg í öllum þáttum leikins en á í erfiðleikum með púttin eftir að sambýlismaður hennar, Hjörvar Hafliðason, komst í hausinn á henni.Heiðrún er mikil keppnismanneskja og segir að það álag sem nú hvíli á henni efli hana á golfvellinum. Heiðrún kemur með frábært Powerrank þar sem hún fer yfir þau atriði sem valda mestum misskilningi á golfvellinum frá sjónarhorni áhugamannsins. Einnig velur hún draumahollið.Golfpervertar koma óvænt við sögu í þættinum.Stórskemmtilegur þáttur í alla staði!Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar😎 - Nivea🏌️‍♀️- Golfskálinn golfverslun

  46. 67

    #66 - Golfið bjargaði geðheilsunni hjá Bjössa Hreiðars eftir óvænta uppsögn

    Sigurbjörn Örn Hreiðarsson kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hann er þekktari fyrir afrek sín í fótboltanum en á golfvellinum. Bjössi hefur orðið Íslandsmeistari sem fyrirliði Vals og var einnig í þjálfarateymi liðsins sem varð Íslandsmeistari árin 2017 & 2018.Bjössi segir okkur frá því hvernig hann byrjaði aftur í golfi fyrir nokkrum árum og hellti sér svo af fullum krafti í íþróttina eftir að hann óvænt missti starf sitt sem aðstoðarþjálfari hjá FH sumarið 2022. Síðan þá hefur golfið átt hug hans allann og er Bjössi kominn niður í um 13 í forgjöf.Bjössi kemur með frábært Powerrank og greinir okkur frá hverjir eru fimm bestu kylfingarnir úr röðum núverandi knattspyrnuþjálfara. Jafnframt velur Bjössi draumahollið þar sem tveir heimsþekktir leikarar koma við sögu.Bjössi fer aðeins yfir sína styrk- og veikleika í golfinu. Þar kemur í ljós að 14. holan á Leirdalsvelli er farin að leggjast á sálina á okkar manni. Stórskemmtilegt spjall við einn af okkar duglegustu kylfingum.Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar😎 - Nivea

  47. 66

    #65 - Sóli Hólm hugsar bara um golf

    Gestur vikunnar í Seinni níu er enginn annar en Sólmundur Hólm sem hóf nýlega að leika golf. Hann er algjörlega fallinn fyrir íþróttinni og hugsar eiginlega ekki um neitt annað en hvenær hann kemst út á golfvöll.Sóli er reyndar að glíma við meiðsli sem má rekja til óhóflegrar golfiðkunar á vormánuðum en er að vonast til að komast aftur á völlinn sem allra fyrst.Sóli er meðlimur í Golfklúbbi Þorlákshafnar og unir hag sínum hvergi betur en í Ölfusi þar sem hann ólst upp. Í þættinum velur Sóli einmitt sínar fimm uppáhalds golfholur á Þorlákshafnarvelli. Einnig velur hann draumahollið. Hlustendur sendu jafnframt inn fjölmargar skemmtilegar spurningar sem Sóli átti í mismiklum vandræðum með að svara.Einstakur þáttur með einum skemmtilegasta manni okkar Íslendinga. Allir léttir.Seinni níu er í boði:✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar😎 - Nivea

  48. 65

    #64 - Ragga Kristins er ein sú högglengsta í Evrópu

    Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Hún varð Íslandsmeistari í höggleik árið 2023 og leikur sem atvinnumaður á LET Access mótaröðinni sem segja má að sé B-mótaröð bestu kvenkylfinga í Evrópu.Í þættinum förum við vel yfir golfið með Röggu en þar kemur meðal annars í ljós að hún er meðal högglengstu kvenkylfinga Evrópu. Hún er að slá um 250 metra að meðaltali í teighöggum og gerir aðrir betur!Hún ætlar sér stóra hluti á næstu árum. Hún hefur verið meðal annars verið að einfalda golfið sitt, njóta þess meira að keppa og hugsa ekki um að ná fullkomnum.Hún segir okkur frá lífinu á mótaröðinni, sínum helstu styrkleikum og einnig segir hún okkur frá sínum helsta veiklega sem eru vippin. Við förum aðeins yfir hvernig lífið var í Kentucky á háskólaárunum og ýmislegt skemmtilegt.Einnig segir Ragga okkur frá því áfalli sem það var að missa Íslandsmeistaratitilinn úr höndum sér á lokaholunni í Mosfellsbæ árið 2020.Í upphafi þáttarins förum við aðeins yfir US Open og svo velur Ragga draumahollið. Stórskemmtilegur þáttur sem á erindi við alla kylfinga!Seinni Níu er í boði: ✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar

  49. 64

    #63 – Helga tók ranga kylfu og fór holu í höggi

    Það var svo sannarlega gaman hjá okkur í Seinni níu þessa vikuna en til okkar kom Helga Sverrisdóttir, hjúkrunarfræðingur og félagi í Nesklúbbnum. Helga fer yfir það af mikilli hreinskilni hvernig það er að byrja í golf og þær áskoranir sem því fylgir.Hún segir okkur meðal annars frá þeirri þolraun sem það var að taka þátt í meistaramóti eftir að hafa nýlega hafið golfiðkun. Helga segir okkur einnig frá því þegar hún gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í golfferð á vegum Nesklúbbsins. Þar hjálpaði til að hún tók alls ekki rétta kylfu í höggið en boltinn steinlá í holunni engu að síður.Stórskemmtilegur þáttur þar sem mannlegi þátturinn í golfinu er svo sannarlega í fyrirrúmi. Helga segir okkur einnig stórskemmtilega sögu úr boðsmóti á Hvaleyrarvelli þar sem eiginmaður hennar, Bjarni Ármannsson, kemur við sögu. Logi gefur svo góð ráð hvernig sé best að græða pening á Opna bandaríska meistaramótinu sem fram fer um helgina. Seinni Níu er í boði: ✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG - xpeng.com/is🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar

  50. 63

    #62 - Ívar Hauks segir flesta kylfinga með of lítinn fláa á drævernum

    Einn litríkasti golfkennari Íslands – og líklega Spánar – Ívar Hauksson, kom í spjall til okkar í Seinni níu. Ívar hefur búið á Spáni síðustu 30 árin við golfkennslu og er stundum kallaður Kóngurinn á Mar Menor.Í júní tekur Ívar að sér golfkennslu hér á Íslandi, og komast færri að en vilja. Í ár eru um 75 manns á biðlista eftir að komast undir handleiðslu Ívars, sem kennir golf frá morgni til kvölds.Ívar segir okkur frá golfferli sínum, sem hófst þegar hann var aðeins þriggja ára. Við rifjum upp nokkrar skemmtilegar sögur, og Ívar deilir einnig nokkrum góðum ráðum til kylfinga. Þar kemur meðal annars fram að flestir kylfingar séu með of lágan fláa á drævernum – að hans mati.Hann ræðir einnig ást sína á 7-trénu, sem hann segir vera að breyta leiknum. Draumahollið er á sínum stað, og þar koma við sögu afar litríkir kylfingar.Frábær þáttur með einum af okkar allra skemmtilegustu köppum í golfíþróttinni á Íslandi.Seinni Níu er í boði: ✈️- PLAY 💊- Unbroken 👟- ECCO 🥻 - J. Lindeberg - ntc.is⛳- Eagle Golfferðir 🚗- XPENG 🧼- Lindin bílaþvottastöð🏚️ - Betri stofan fasteignasala🏌️‍♀️- Golfsvítan🛺- Excar.is golfbílar

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika.Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson

HOSTED BY

Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

CATEGORIES

URL copied to clipboard!