EPISODE · Feb 29, 2024 · 55 MIN
Balkanskagi - Seinni hluti
from Þú veist betur
Við höldum áfram yfirferð okkar um Balkanskaga og til upprifjunar sögðum við skilið við Jón Óskar Sólnes þegar Slobodan Milosevic er kominn til valda, það hafa verið átök í Króatíu en þar sem við enduðum var komið að stríðinu í Bosníu. En það er þá sem hræðilegir hlutir eiga sér stað, sem setja mark sitt ekki bara á sögu þessa svæðis heldur Evrópu allrar. Enda ekki meira en 30 ár síðan og því fólk enn á lífi sem man vel eftir þessum atburðum sem erfitt er að gleyma eða sleppa tökunum af. Hvernig vinna lönd eða þjóðir úr svona áföllum, hverjar eru ástæðurnar fyrir þeim og hvað ber framtíðin í skauti sér? Við ætlum að fara yfir þessi mál og reyna að átta okkur betur á þessu öllu saman. Fyrsta spurning mín til Jóns snýst um ástæðuna fyrir því að Bosnía verður suðurpunkturinn fyrir átökin og hvort hægt sé að útskýra aðstæðurnar á skiljanlegan hátt.
NOW PLAYING
Balkanskagi - Seinni hluti
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jun 17, 2026 ·45m
Jun 16, 2026 ·1m
Jun 16, 2026 ·89m
Jun 15, 2026 ·48m
Jun 13, 2026 ·59m
Jun 11, 2026 ·82m