PODCAST · health
Auðnast
by Ghost Network®
Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi.Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja:- skilja eigin líðan og samskipti betur- takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð- byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl- sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd.Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks –
-
30
Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum
Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki. Við skoðum hvað gerist þegar nándin dofnar hægt og rólega, hvers vegna pör detta úr takti og hvernig daglegt álag, samskiptamynstur og óuppfylltar þarfir geta skapað fjarlægð. Við ræðum hvað rannsóknir segja um tengsl og öryggi í samböndum og hvað hjálpar pörum að finna taktinn á ný. Þátturinn er fyrir öll sem hafa einhvern tímann spurt sig: "Verður þetta bara svona?" og fyrir þau sem eru í vangaveltu um hvort þau séu að ganga í gegnum tímabundna fjarlægð í sambandinu eða hvort þau séu jafnvel komið á endastöð.
-
29
Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma
Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða mistök stjórnendur gera gjarnan og hvað rannsóknir segja um traust, skýrleika, sýnileika og samkennd í stjórnun. Þátturinn er fyrir stjórnendur, mannauðsfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig hægt er að skapa öryggi, halda utan um teymi og leiða á mannlegan hátt.Heimildir: Bakker & Demerouti: Job Demands-Resources Model Amy Edmondson: Psychological Safety, Harvard Business School, Dan Siegel: Interpersonal Neurobiology Brené Brown: Dare to Lead
-
28
Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað
Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð. Við ræðum: Er kulnun stundum misskilin sem skortur á þrautseigju? Eru stjórnendur gerðir ábyrgir fyrir líðan starfsfólks? Hvers vegna eru konur ekki teknar jafn alvarlega í ágreiningi? Hvað á stjórnandi að gera þegar virðing fyrir starfsmanni hverfur? Heiðarlegur og einlægur þáttur um flókin mál.
-
27
Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað
Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og einelti, ræða valdaójafnvægi og mynstur í samskiptum og skoða hvaða þættir í menningu og stjórnun geta ýtt undir eða dregið úr áhættu. Að lokum fara þær yfir hvað er hægt að gera þegar mál koma upp og hvaða forvarnir Skipta mestu máli.
-
26
Reiði – ógn eða leiðarvísir?
Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona lengi í okkur. Við skoðum fræðin og hagnýt skref til að vinna með reiði á uppbyggilegan hátt.https://www.harrietlerner.com/https://hbr.org/2013/11/emotional-agilityhttps://drdansiegel.com/
-
25
Hamingja í vinnu - Markmið eða óraunhæf krafa?
Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar orðin krafa en markmið. Við skoðum hvað vísindin segja og kynnum praktískt verkfæri bæði fyrir einstaklinga og stjórnendur.https://skemman.is/handle/1946/40537https://www.mdpi.com/2076-3387/15/9/351
-
24
Sjálfstraust
Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og óheilbrigðum. Við skoðum sjálfstraust út frá sálfræðinni, tengslamyndun, fjölskyldumynstrum og lífeðlisfræðinni, með það að markmiði að hjálpa þér að þekkja sjálfstraustið þitt og efla það á heilbrigðan hátt.
-
23
Allt sem þú þarft að vita fyrir aðventuna
Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur atriði sem undirbúa taugkerfið þitt fyrir komandi vikur. Ef þu vilt gera aðventuna enn betri, hlustaðu þá á þennan þátt því hinn raunverulegi undirbúningur hefst með því að virkja sefkerfið.
-
22
Ágreiningur - allt sem þú þarft að vita
Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í færni. Við ræðum ágreining í vinnu, parsamböndum, vináttu og upprunafjölskyldu og förum yfir hvað er algengast að fari úrskeiðis. Við fyllum á verkfærakassann með hagnýtum aðferðum - meðal annars hvernig er best að bregðast við óvæntum ágreiningi. Þátturinn er fyrir öll sem vilja eiga heiðarlegri, hlýlegri og skýrari samskipti – hvort sem er heima fyrir, í vinnu eða í mikilvægum samböndum.
-
21
Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar
Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum. Við skoðum líka hvernig gömul mynstur frá fyrri kynslóðum og tilfinningakerfi fjölskyldunnar móta viðbrögð okkar og hafa áhrif bæði á ástarsambönd sem og önnur sambönd í þínu lífi.Lesefni: https://www.amazon.com/Love-Never-Enough-Misunderstandings-Relationship/dp/0060916044https://www.thebowencenter.org/introduction-eight-concepts
-
20
Frá innri ró til ytri áhrifa: sjö lykilþættir í leik og starfi
Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu á þáttinn og kannaðu hvort það liggi sóknartækifæri hjá þér.
-
19
Bjargráð: Lausnamiðuð, tilfinningaleg og minna gagnleg
„Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig kynslóðararfurinn og karaktereinkenni hafa áhrif.
-
18
Sálfélagslegt öryggi á vinnustað
Hvað þarf til þess að fólki líði vel á vinnustað? Kannski er það ekki bara jógasalur eða hópefli heldur grunnstoðir í skipulagi og vel upplýstir stjórnendur. Við tölum um það sem Auðnast stendur fyrir alla daga: Sálfélagslegt öryggi. Lesefni sem við mælum með: https://bmcpublichealth.biomedcentral.com/articles/10.1186/s12889-023-16246-x?utm
-
17
Tilfinningagreind
Við ræðum hvað tilfinningagreind er út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig við getum verið misgóð í henni eftir því í hvaða hlutverkum við sinnum. Við skoðum líka mat á eigin tilfinningagreind og hvernig við getum eflt hana í daglegu lífi. Hlustaðu og vertu í takt við tilfinningar þínar!
-
16
Stöðutékk - á þér...
Við ræðum einfaldar leiðir til að taka stöðu á sér persónulega og hvers vegna við erum líkleg til þess að festast í sama mynstrinu aftur og aftur. Við skoðum vanabrautir og hvernig sjálfsmildi getur varðað veginn í átt að farsælli breytingu. Það er að segja ef það er eitthvað sem þú vilt breyta. https://www.youtube.com/watch?v=hiiEeMN7vbQ – Carol dweck https://self-compassion.org/wp-content/uploads/2022/08/PsychReviewInPress.pdf https://www.thebowencenter.org/multigenerational-transmission-process
-
15
Sumarfrí sem streituvaldur
Við ræðum hvers vegna sumarfrí er stundum streituvaldur bæði út frá starfshlutverkinu en ekki síður út frá fjölskyldulífinu. Við skoðum líka fjögur gagnleg ráð sem geta nýst þér og þínum. https://hrreview.co.uk/har-news/wellbeing-news/majority-of-working-brits-feel-pressure-to-check-company-emails-while-on-holiday/371705? https://www.sciencedaily.com/releases/2018/08/180810091553.htm?utm_source
-
14
Að vinna með einhverjum sem þér líkar ekki við.
Í þessum þætti förum við yfir reynslu sem mörg þekkja en fá kannski ræða opinskátt. Hvað gerum við þegar okkur líkar ekki vel við samstarfsfélaga. Við köfum beint í kjarnann, reynum að skilja og skoða þær tilfinningar sem skjóta upp kollinum þegar okkur finnst einhver pirrandi, ekki starfi sínu vaxinn eða bara leiðinlegur. Greinar sem við mælum með: https://www.frontiersin.org/journals/aging-neuroscience/articles/10.3389/fnagi.2016.00074/full
-
13
Framhjáhald – út frá sjónarhóli þess sem haldið er framhjá
Í þessum þætti förum við yfir algenga upplifun og líðan hjá fólki sem haldið er framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt.
-
12
Samskipti - Mikilvægasta verkfærið á vinnustaðnum
Í þessum þætti förum við yfir víðan völl þegar kemur að samskiptum á vinnustað, hvaða áhrif ógagnleg samskipti hafa á líðan starfsfólks og hvaða leiðir eru farsælar til þess að efla samskipti á vinnustað. Lesefni sem við mælum með: https://www.shrm.org/in/topics-tools/news/organizational-employee-development/cost-poor-communication? https://www.mckinsey.com/locations/mckinsey-client-capabilities-network/our-work/strategic-and-change-communications/the-communications-exchange/unlocking-organizational-communication-five-ways-to-ignite-employee-engagement?
-
11
Hvar tilheyrir þú og skiptir það máli fyrir heilsuna?
Í þessum þætti förum við yfir það að tilheyra og hversu djúpstæð þörf það er innra með okkur. Við skoðum hvað gerist ef við upplifum að við tilheyrum ekki bæði í einkalífi og starfi og svo skoðum við gagnlegar leiðir til þess að tilheyra.Grein sem við mælum með: The article "The Need to Belong: Desire for Interpersonal Attachments as a Fundamental Human Motivation" by Roy F. Baumeister and Mark R. Leary was published in the journal Psychological Bulletin in 1995 (Volume 117, Issue 3, Pages 497–529)
-
10
Framhjáhald – sá sem heldur framhjá
Í þessum þætti förum við yfir hvers vegna fólk heldur framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt. Grein sem við mælum með: Love and Infidelity: Causes and Consequences Höf: Ami Rokach og Sybil H. Chan What Do People Do, Say, and Feel When They Have Affairs? Association between Extradyadic Infidelity Motives with Behavioral, Emotional, and Sexual Outcomes. Höf: Dylan Selterman, Justin R. Garcia og Irene Tsapelas
-
9
Skugggahliðar stjórnenda - einkenni og afleiðingar
Í þessum þætti förum við yfir þegar styrkleikar stjórnenda breytast í skuggahliðar og hvaða afleiðingar það hefur á starfsfólk. Grein sem við mælum með: Twenty years on the dark side: Six lessons about bad leadership. By Hogan, Robert,Kaiser, Robert B.,Sherman, Ryne A.,Harms, Peter D.
-
8
Heilsustraumar á vinnustöðum - Hvað hefur verið vinsælt og hvað mun gerast á næstu árum?
Í þessum þætti rýnum við í hvað hefur verið ríkjandi á vinnustöðum í heilsu og velferðarúrræðum síðastlðin ár. Við kíkjum líka örlítið í spádómskúluna og spáum fyrir líklegum straumum á komandi árum. Ef þú hefur áhuga á heilsu á vinnustöðum - skaltu leggja við hlustir.
-
7
Gremja – gagnlegt verkfæri eða gallagripur
Í þessum þætti förum við yfir hvað gremja er og hver er algeng uppspretta hennar. Við stiklum líka á stóru hvernig hægt er að draga úr gremju þegar hún er okkur ógagnleg og Hrefna segir okkur gremjusögu úr sínu lífi. Bækur sem við mælum með: The Destructive Power of Resentment: 30 Techniques to Overcome Relationship Resentment eftir Nancy Fagan Ressentiment: Its Phenomenology and Clinical Significance eftir John White
-
6
Hvíld - Mikilvægasta verkfærið til þess að ná árangri?
Hvíld er mikilvæg grunnforsenda þegar kemur að því að nýta sköpunargleði, efla þrautseigju og komast farsællega gegnum streituvaldandi tímabil. Í þessum þætti verður farið yfir margvíslegar útgáfur af hvíld og hvernig þær nýtast með ólíkum hætti eftir því hvaða verkefni þú ert að fást við hverju sinni.
-
5
Mörk - Mýtur og praktísk ráð
Að setja mörk er eitthvað sem við þekkjum öll en i þessum þætti förum við yfir það hvernig mörk eru mikilvæg þegar kemur að heilbrigði og vellíðan.
-
4
Parsambönd- Hvernig líður ykkur í samskiptum?
Parsambönd- Hvernig líður ykkur í samskiptum? Við skyggnumst inn á Auðnast klíník og förum yfir algengar áskoranir í parsamböndum þegar kemur að samskiptum. Við skoðum ógagnlegar aðferðir í samskiptum en leggjum líka til gagnlegar leiðir sem öll pör geta tileinkað sér. Ekki láta þennan framhjá þér fara ef þú ert í parsambandi.
-
3
Félagsleg heilsa – Ertu nokkuð að gleyma henni?
Félagsleg heilsa – Ertu nokkuð að gleyma henni? Í þessum þætti ræðum við um mikilvægi félagslegra tengsla bæði í vinnu og einkalífi. Við skoðum hvað einkennir góða félagslega heilsu og hvernig vinnustaður getur með fimm einföldum leiðum eflt hana. Að auki forum við yfir skotheld ráð þegar kemur að því að efla og hafa eftirlit með þinni eigin félagsleguri heilsu
-
2
Þrautseigja – Er hægt að þjálfa það?
Þrautseigja – Er hægt að þjálfa það? Í þessum þætti beinum við athyglinni að því hvernig best er að takast á við krefjandi aðstæður á sem heilbrigðastan hátt, þannig að það hjálpi okkur frekar en hindri. Við skoðum hvað fræðin leggja til og hvernig þú getur tileinkað þér aðferðir sem henta bæði í leik og starfi.
-
1
Kulnun - Hvað er mikilvægt að vita?
Kulnun – Hvað er mikilvægt að vita. Í þessum þætti köfum við ofan í viðfangsefnið kulnun og hvernig það getur birst með margvíslegum hætti inn á vinnustað. Við ræðum hvað stjórnendur og starfsfólk geta gert til að sporna gegn kulnun en líka hvernig hægt er að grípa inn í þegar við upplifum vanlíðan fólks á vinnustað.
-
0
Geðheilbrigði og vinnustaðurinn
Geðheilbrigði og vinnustaðurinn. Í þessum þætti ræðum við hvers vegna það skiptir máli að vinnustaðir hlúi að geðheilbrigði starfsfólks, skoðum rannsóknir og kynnum praktísk ráð þegar kemur að góðri geðheilsu.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi.Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja:- skilja eigin líðan og samskipti betur- takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð- byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl- sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd.Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks –
HOSTED BY
Ghost Network®
Loading similar podcasts...