Eðlisfræði 1.hluti episode artwork

EPISODE · Feb 26, 2023 · 55 MIN

Eðlisfræði 1.hluti

from Þú veist betur

Í gegnum tíðina höfum við farið yfir alls kyns hluti, hvort sem það eru lifandi eða dauðir hlutir, kenningar eða saga. Til að mynda hef ég fengið til mín sérfræðinga um skammtafræði, svarthol og kjarnorku en að einhverju leyti er hægt að segja að ég hafi byrjað á röngum enda. Því allir þessir hlutir, og þessar vísindagreinar byggja á einhverjum grunni. Sem hefur alltaf komið fram í þáttunum sjálfum en nú fannst mér kominn tími til að fara almennilega í málið og tala um eðlisfræði. Eitthvað sem við erum enn skylduð til að læra í grunnskóla, að minnsta kosti eftir því sem ég best veit, og fram til loka framhaldsskóla stendur okkur til boða að kafa enn betur í lotukerfið og hvaða merkingar búi að baki alls sem þar er. Það getur verið að eitt af því sem fældi mig frá efninu var að ég vissi ekki almennilega hvernig ætti að tala um eðlisfræði, því ég veit ekki nóg. En svo áttaði ég mig á því að það er tilgangur þáttarins, að vita ekki neitt og eiga möguleikann á því að læra meira. Svo ég náði að sannfæra Lárus Thorlacius til að koma til mín og fræða mig um til að mynda lotukerfið, muninn á eðlis og efnafræði, öreindahraðla í Cern og til hvers við erum að þessu öllu saman. Bara svo eitthvað sé nefnt. Þar sem spjallið okkar varð mun lengra en oft vill vera, sem er kannski eðlilegt þegar svona stór svið eru undir, þá skipti ég þættinum í tvennt. Það er líka fínt að matreiða þetta þannig, sumt sem kemur fram í þáttunum er gott að heyra, hugsa svo aðeins um áður en það koma fram nýjir hlutir sem þarf svo að hugsa meira um. Umsjón: Atli Már Steinarsson

NOW PLAYING

Eðlisfræði 1.hluti

0:00 55:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Þú veist betur?

This episode is 55 minutes long.

When was this Þú veist betur episode published?

This episode was published on February 26, 2023.

What is this episode about?

Í gegnum tíðina höfum við farið yfir alls kyns hluti, hvort sem það eru lifandi eða dauðir hlutir, kenningar eða saga. Til að mynda hef ég fengið til mín sérfræðinga um skammtafræði, svarthol og kjarnorku en að einhverju leyti er hægt að segja að ég...

Can I download this Þú veist betur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!