Skip to content
Frumur episode artwork

Oct 23, 2022 55 min

Frumur

from Þú veist betur

Velkomin í nýjan þátt af þú veist betur, ég heiti Atli Már Steinarsson og í þetta skiptið hugsum við smátt. Nánast eins smátt og hægt er, svo lengi sem þú ferð ekki að hugsa um atóm. Það er annar þáttur, engar áhyggjur. Ég sá nefnilega á internetinu fyrir stuttu mynd sem fullyrt var að væri nákvæmasta mynd af frumu sem hefði verið tekin. Ef ég ætti að reyna að lýsa henni í orðum þá var myndin eins og blanda af hekluðu teppi í margvíslegum litum blandað við mynd af geimnum. Ég veit ekki hvort það segi ykkur eitthvað en ég bara get ekki betur. Bæði djúp og smágerð, full af alls kyns mismunandi formum. Þið getið prófað að skrifa inn ?picture of a cell? í Google og þetta ætti að birtast á skotstundu. En hvað um það, ég fylltist auðvitað forvitni og áhuga á þessu fyrirbæri sem við erum öll gerð úr. Hvernig það virkar og verður til, hvernig við sem mannfólk lærðum að sjá það og kynnast því betur. Ég fékk til mín Þórarinn Guðjónsson og í þetta skiptið förum aðeins örsnöggt í söguna, þar sem það er ógjörningur að fara yfir hana alla, því eins og alltaf er það svo annar þáttur, þróunarsagan, en eyðum mestum af okkar tíma í að kynnast frumunni betur. Umsjón: Atli Már Steinarsson

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

Frumur

0:00 55:00

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Jákastið Jákastið er hlaðvarp þar sem hlustendur kynnast jákvæðum og drífandi einstaklingum enn betur. Jákastið snýst um jákvæðni, valdeflingu, heiðarleika og hugrekki. Þú ert frábær! Ást og friður. Þátturinn er í boði: Límtré vírnet, Dressmann, Pizza Popolare https://www.pizzapopolare.is/ BabyBrezza og Egils Kristall. Auðnast Ghost Network® Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi.Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja:- skilja eigin líðan og samskipti betur- takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð- byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl- sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd.Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – True crime Ísland True Crime Ísland Kaupa áskrift HÉR True Crime Ísland - hlaðvarp þar sem fjallað er um nýleg íslensk sakamál og þau útskýrð út frá dóminum sjálfum. Við erum þrjár vinkonur, þar af tveir lögfræðingar, sem lesum dóma, útskýrum málsatvik og ræðum hvernig réttarkerfið virkar á Íslandi. Fyrsta serían fjallar um karlmenn sem drepa karlmenn, þar sem við förum í gegnum íslensk morðmál, dómsniðurstöður og áhrif þeirra á samfélagið. Ef þú hefur áhuga á íslenskum sakamálum og raunverulegum dómum þá er þetta podcastið fyrir þig. Fylgdu okkur á Facebook Fylgdu okkur á Instagram Fylgdu okkur á TikTok <span style= Koma svo! Podcaststöðin Þátturinn Koma svo! er um ferðalag lífsins; börn, unglinga, uppeldi, ákvarðanir og allt sem ferðalaginu viðkemur. Hvað hafði áhrif á þær ákvarðanir sem þú tókst og urðu þess valdandi að þú ert þessi manneskja sem þú ert í dag?

Frequently asked questions

How long is this episode of Þú veist betur?

This episode is 55 minutes long.

When was this Þú veist betur episode published?

This episode was published on October 23, 2022.

Can I download this Þú veist betur episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.