Hrafnar episode artwork

EPISODE · Mar 19, 2023 · 55 MIN

Hrafnar

from Þú veist betur

Ég vil byrja þáttinn í þetta skiptið á því að þakka fyrir alla póstana og ábendingar sem ég hef verið að fá upp á síðkastið. Því fleiri því betra segi ég nú bara. Eftir svona langan tíma af því að gera þættina þá getur manni oft liðið eins og það sé búið að tala um allt en þá er einmitt svo gaman og hollt af fá alls kyns hugmyndir utan úr bæ um efni sem gæti verið gaman að tala um. Enda er svo ótrúlega mikið forvitnilegt til í þessum heimi. Og talandi um forvitnilegt, þá alveg óvænt höldum við áfram með stafinn H, en færum okkur frá heimspeki til hrafna. Ég var nefnilega í mat hérna upp í Efstaleiti fyrir einhverju síðan og meðan ég borðaði þá varð ég var við 4 hrafna sem flugu á milli húsþaka og ljósastaura. Mér fannst þeir svo áhugaverðir og fyndnir að ég ílengdist örugglega í einhverjar 10-20 mínútur bara að horfa á þá athafna sig, velti fyrir mér hvað í ósköpunum þeir gætu verið að tala um, hvort þetta væru 2 pör og svo framvegis. Þá langaði mig auðvitað til að vita meira, svo ég grennslaðist fyrir og fann loks Kristinn Hauk Skarphéðinsson sem hefur verið að fylgjast með þessum fuglum mun lengur en ég, og líklegast bara flest. Ég sannfærði hann svo um að koma til mín og segja okkur meira frá þessum merkilegu fuglum, þar sem sagan, atferli og framtíð blandast saman í einn graut eins og vill oft vera þegar maður talar um dýr. Umsjón: Atli Már Steinarsson

NOW PLAYING

Hrafnar

0:00 55:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Þú veist betur?

This episode is 55 minutes long.

When was this Þú veist betur episode published?

This episode was published on March 19, 2023.

What is this episode about?

Ég vil byrja þáttinn í þetta skiptið á því að þakka fyrir alla póstana og ábendingar sem ég hef verið að fá upp á síðkastið. Því fleiri því betra segi ég nú bara. Eftir svona langan tíma af því að gera þættina þá getur manni oft liðið eins og það sé...

Can I download this Þú veist betur episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!