Skip to content
Ljósmyndun episode artwork

Feb 12, 2023 55 min

Ljósmyndun

from Þú veist betur

Öll tökum við myndir, hvort sem við hugsum eitthvað frekar út í það eða ekki. Símarnir okkar eru oft valdir út frá því hversu góð myndavél sé á þeim og dagarnir þar sem fólk fór og keypti filmur eru að mestu leyti liðnir. Meira að segja eru dagar stafrænna myndavéla komnir og farnir, þá meina ég helst þessara myndavéla sem almenningur keypti og hafði með sér út um allar trissur. Með minniskortum og tilheyrandi umstangi. Svo það er ekki skrýtið ef myndirnar sem við tökum séu búnar að missa gildi sitt að einhverju leyti, þær fara ekki upp á vegg eða í myndaalbúm, heldur enda flestar bara í skýi einhversstaðar út í heim eða á samfélagsmiðlum. Sem er auðvitað nánast eini og sami staðurinn. Persónulega tek ég mér ekki einu sinni tíma í að skoða þær aftur, eða allavega mjög sjaldan, svo hver er tilgangurinn orðinn? Af hverju tökum við myndir og höfum við misst skynbragðið á það hvað sé góð mynd? Mig langaði til að athuga málið frekar og hún Laufey Ósk Magnúsdóttir var tilbúin að mæta til mín og fara aðeins yfir þessar spurningar og fleiri í þættinum í þetta skiptið. Þess má geta að ákkúrat núna er í gangi heimildasería á Rúv sem heitir Ímynd þar sem ljósmyndun er skoðuð í mjög ítarlegu máli svo við tókum ekki mjög langan tíma í söguna, þar sem henni eru gerð ítarleg skil þar. Við reynum þó að stikla á stóru áður en við pælum betur í hvað það er að læra ljósmyndun, hvernig við hugsum um ljósmyndir og hvað ljósop, hraði og iso þýða eiginlega. Umsjón: Atli Már Steinarsson Aukaefni: Þættirnir Ímynd á Rúv : https://www.ruv.is/sjonvarp/spila/imynd/30950/975631

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

Ljósmyndun

0:00 55:00

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Jákastið Jákastið er hlaðvarp þar sem hlustendur kynnast jákvæðum og drífandi einstaklingum enn betur. Jákastið snýst um jákvæðni, valdeflingu, heiðarleika og hugrekki. Þú ert frábær! Ást og friður. Þátturinn er í boði: Límtré vírnet, Dressmann, Pizza Popolare https://www.pizzapopolare.is/ BabyBrezza og Egils Kristall. Auðnast Ghost Network® Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi.Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja:- skilja eigin líðan og samskipti betur- takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð- byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl- sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd.Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – True crime Ísland True Crime Ísland Kaupa áskrift HÉR Ef þú hefur áhuga á íslenskum sakamálum og raunverulegum dómum þá er þetta podcastið fyrir þig. Fylgdu okkur á Facebook Fylgdu okkur á Instagram Fylgdu okkur á TikTok Fylgdu okkur á YouTube Fylgdu okkur á Spotify Fylgdu okkur á Apple Podcas Koma svo! Podcaststöðin Þátturinn Koma svo! er um ferðalag lífsins; börn, unglinga, uppeldi, ákvarðanir og allt sem ferðalaginu viðkemur. Hvað hafði áhrif á þær ákvarðanir sem þú tókst og urðu þess valdandi að þú ert þessi manneskja sem þú ert í dag?

Frequently asked questions

How long is this episode of Þú veist betur?

This episode is 55 minutes long.

When was this Þú veist betur episode published?

This episode was published on February 12, 2023.

Can I download this Þú veist betur episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.