Skip to content
Yoga Nidra með Lísu Briem episode artwork

May 25, 2020 33 min

Yoga Nidra með Lísu Briem

from Landspítali hlaðvarp Hosted by Stefán Hrafn Hagalín

Yoga nidra er leidd djúpslökun sem losar um streitu, bætir svefn, vinnur gegn neikvæðum hugsanamynstrum og bætir jafnvægi. Nidra þýðir svefn og yoga einingu og þannig merkir "yoga nidra" í rauninni vakandi svefn þar sem vitundin er vakandi en líkaminn fær djúpa hvíld og hugurinn hvílir í kyrrð. Þessi aðferð getur hjálpað til við að losa um þá spennu sem fylgir hraða og annríki nútímans. Samskiptadeild laumaði sér á dögunum í jógatíma hjá Guðnýju Elísabetu Briem Óladóttur, sem flestir á Landspítala þekkja betur sem Lísu Briem. Hún starfar á skrifstofu forstjóra í Skaftahlíð og hefur þar ýmis verkefni á sinni könnu, en brýtur upp vinnudaginn vikulega og heldur jógatíma fyrir vinnufélagana í hádeginu. Jógatíminn var haldinn í hermisetri menntadeildar í Skafathlíð og eins og glögglega má sjá var mannskapurinn í tímanum afskaplega slakur og vær. Líka æfingadúkkan í rúminu! Þess má geta að sálfræðingar geðþjónustu og mannauðsráðgjafar hjá Landspítala vinna nú að verkefninu "Saman gegnum Kófið" fyrir starfsfólk spítalans. Það felst meðal annars í því að safna saman á einn stað fræðsluefni, uppbyggilegum bjargráðum og leiðum til að vinna með það álag fyrir líkama og sál og krefjandi aðstæður sem framundan er í eftirmála Covid-19. Jógahlaðvarpið með Lísu Briem talar skemmtilega við þetta verkefni. Sjá nánar: https://www.landspitali.is/samangegnumkofid Stjórnandi Hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en upptöku annast Ásvaldur Kristjánsson. Báðir starfa hjá samskiptadeild Landspítala. Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict.

Episode details come from the podcast's RSS feed.

Embed this episode

Ready to play

Yoga Nidra með Lísu Briem

0:00 33:15

No transcript yet.

Requests help us decide what to transcribe next.

Auðnast Ghost Network® Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi.Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja:- skilja eigin líðan og samskipti betur- takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð- byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl- sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd.Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – Golfstöðin Bjarni Már Ólafsson Golfstöðin er hlaðvarp um allt sem tengist bætingum í golfi. Sérstök áhersla á líkamlega þáttinn, styrktarþjálfun og annað sem getur hjálpað kylfingum að verða betri og spila gott golf án meiðsla. Þáttastjórnandi er Bjarni Már Ólafsson sjúkraþjálfari, golfstyrktarþjálfari og eigandi Golfstöðvarinnar í Glæsibæ sem er golfhermastöð, líkamsrækt og sjúkraþjálfun fyrir golfara.

Frequently asked questions

How long is this episode of Landspítali hlaðvarp?

This episode is 33 minutes long.

When was this Landspítali hlaðvarp episode published?

This episode was published on May 25, 2020.

Can I download this Landspítali hlaðvarp episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.