PODCAST · business
Í FREMSTU RÖÐ
by Dr. Edda Blumenstein
Hvað einkennir fyrirtæki, stjórnendur og starfsfólk sem skarar fram úr?Í Fremstu Röð er hlaðvarp sem svarar þeirri spurningu með því að miðla fræðilegri þekkingu á hagnýtan hátt, í bland við reynslusögur úr íslensku atvinnulífi. Þannig brúar hlaðvarpið bilið milli fræða og atvinnulífs, milli rannsókna og reynslu og milli þekkingar og framkvæmda.Í hverjum þætti færðu skýra innsýn í eitt viðfangsefni, byggt á ritrýndum rannsóknum og raunverulegum dæmum úr rekstri. Markmiðið er að efla þekkingu, bæta ákvarðanatöku og styðja við árangur árangur stjórnenda, starfsfólks og fyrirtækja.
-
5
Lokaðu hringnum er leyndarmálið á bakvið framúrskarandi viðskiptavinaupplifun (CX)
Hvers vegna eru sum fyrirtæki mun betri en önnur í að halda í viðskiptavini sína?Í þessum þætti ræði ég við Kára Þór Rúnarsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Brilliant, um upplifun viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði (B2B) og hvers vegna hún er orðin einn mikilvægasti samkeppnisþáttur fyrirtækja sem vilja vera í fremstu röð.Við ræðum meðal annars:Hvers vegna fyrirtækjamarkaður og neytendamarkaður krefjast ólíkrar nálgunarAf hverju NPS segir of aðeins hluta sögunnarHvernig fyrirtæki geta minnkað brottfall viðskiptavinaCustomer Lifetime Value og aðra lykilmælikvarða sem skipa máliHvers vegna flest fyrirtæki safna gögnum án þess að nýta þauHvað felst hugtakinu "Closing the Loop"Hvernig gervigreind getur stutt við betri viðskiptavinaupplifunStöðu viðskiptavinaupplifunar á Íslandi samkvæmt nýjustu rannsóknumKári deilir einnig hagnýtum ráðum um hvernig fyrirtæki geta byggt upp markvissa stefnu í upplifun viðskiptavina og tengt hana beint við tekjur, tryggð og langtímaárangur.Þáttur fyrir stjórnendur, markaðsfólk, sölufólk og alla sem vilja byggja upp sterkari og arðbærari viðskiptasambönd.
-
4
2 milljónir meðlima: Saga Club stærsti vildarklúbbur Íslands
Í þessum þætti köfum við ofan í einn stærstu vildarklúbb Íslands - Icelandair Saga Club.Með mér er Magnús Þorlákur Lúðvíksson, forstöðumaður Saga Club, sem gefur okkur innsýn í hvernig vildarkerfi Icelandair hefur þróast frá hefðbundnum flugpunktum yfir í öflugt vistkerfi með yfir 2 milljónir skráðra meðlima og 400.00 þúsund virka notendur. Við ræðum meðal annars:Hvernig tryggðarvegferð Icelandair hófstMuninn á flugpunktum og fríðindastigumVerðmætustu viðskiptavininaHvernig vildarklúbburinn hefur þróast frá upphafi til dagsins í dagFramtíð vildarklúbbsins og leikjavæðingÁrangur og mælikvarðaTeymið og hvernig Saga Club er rekið eins og sjálfstæð rekstrareining innan IcelandairOg hvað þetta snýst allt raunverulega umÞetta er þáttur fyrir alla sem hafa áhuga á tryggðarstefnu og vildarklúbbum til að byggja upp sterkari tengsl við viðskiptavini sína.
-
3
Úr 600 milljónum í 100 milljarða: stefnan á bak við netverslunarrisann Boozt
Í þessum þætti köfum við ofan í vegferð BOOZT, fyrirtækis sem hefur á tiltölulega skömmum tíma byggt upp eitt öflugasta netverslunarkerfi Norðurlanda.Við ætlum ekki bara að segja söguna heldur rýna í hvað liggur raunverulega að baki árangrinum og hvað önnur fyrirtæki geta lært af þessari vegferð. Við ræðum sérstaklega stefnu, omnichannel nálgun, mælikvarða, hlutverk stjórnar ásamt framtíðarhorfum og áhrif gervigreindar á verslun og þjónustu.Viðmælandi minn er Jón Björnsson stjórnarmaður hjá BOOZT.Ef þú hefur áhuga á að vita meira um:· Þróun Boozt frá startup í risaveldi· Af hverju Boozt lítur á sig sem tæknifyrirtæki, ekki bara verslun· Last mile leyndarmálið sem breytti leiknum· Mælikvarðana sem skipta máli og þá sem geta drepið vöxt· Hvað gerist þegar birgjar sjá gögnin þín í rauntíma· Hlutverk stjórnamanna, stjórnarformanns og samsetning stjórna· Hvað stjórnendur fyrirtækja eiga aldrei að hætta að gera· Gervigreindina og framtíðina.... og margt fleira.Þá viltu ekki missa af þessum þætti!
-
2
Vegferð ELKO: Frá verðsamkeppni í traustan ráðgjafa
Í þessum þætti fáum við innsýn í vegferð ELKO í átt að metnaðarfullu markmiði:að eiga ánægðustu viðskiptavinina á raftækjamarkaði - sem náðist á þessu ári með afgerandi hætti.Ég ræði við Óttar Örn Sigurbergsson, framkvæmdastjóra ELKO, um hvað liggur raunverulega að baki þessum árangri. Við köfum í hvernig ELKO hefur umbreytt stefnu sinni – frá því að keppa fyrst og fremst á verði og úrvali yfir í að verða traustur ráðgjafi fyrir viðskiptavini.Í þættinum ræðum við meðal annars:· Hvernig rödd viðskiptavina mótar stefnu· Gagnadrifna ákvarðanatöku og mælanlegan árangur· Innleiðingu omnichannel og einstaklingsmiðaða upplifun· Hlutverk gervigreindar og stafrænnar þróunarÍ lok þáttarins deilir Óttar hagnýtum ráðum fyrir stjórnendur og teymi sem vilja ná lengra.Þessi þáttur er fyrir alla sem vilja:· byggja upp sterkari tengsl við viðskiptavini· taka betri ákvarðanir byggðar á gögnum· og leiða raunverulega umbreytingu í rekstri Sérstakar þakkir til Hans Pjetursson fyrir frumsamið stef þáttarins 🎶
-
1
NOVA Fyrir þig
Í þessum fyrsta þætti af Í Fremstu Röð fjöllum við um NOVA, fyrirtæki sem hefur hlotið íslensku ánægjuvogina 17 ár í röð. En frá því að þátturinn var tekinn upp bættist enn eitt árið við! Í þættinum ræði ég við þær Renötu Blöndal, fararstjóra upplifunar og Elfu Arnardóttur, þjálfara viðskiptaþróunar. Við köfum sérstaklega í tryggðarvegferð NOVA og hvernig fyrirtækið byggir upp langtíma samband við viðskiptavini sem snýst ekki um afslætti, heldur að skapa raunverulegt virði, þannig að viðskiptavinir elski að vera en hati að fara!Við förum yfir hvað liggur raunverulega að baki árangri, allt frá menningu og teymisvinnu yfir í gögn, mælikvarða, samstörf og nýtingu gervigreindar.Og að lokum gefa þær Elfa og Renata hlustendum hagnýt ráð til að hefja eigin tryggðarvegferð.Þessi þáttur er fyrir alla sem vilja byggja upp sterkari tengsl og raunverulegt langtímasamband við viðskiptavini.Góða skemmtun!Sérstakar þakkir fær Hans Pjetursson fyrir tónlistina í þættinum.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hvað einkennir fyrirtæki, stjórnendur og starfsfólk sem skarar fram úr?Í Fremstu Röð er hlaðvarp sem svarar þeirri spurningu með því að miðla fræðilegri þekkingu á hagnýtan hátt, í bland við reynslusögur úr íslensku atvinnulífi. Þannig brúar hlaðvarpið bilið milli fræða og atvinnulífs, milli rannsókna og reynslu og milli þekkingar og framkvæmda.Í hverjum þætti færðu skýra innsýn í eitt viðfangsefni, byggt á ritrýndum rannsóknum og raunverulegum dæmum úr rekstri. Markmiðið er að efla þekkingu, bæta ákvarðanatöku og styðja við árangur árangur stjórnenda, starfsfólks og fyrirtækja.
HOSTED BY
Dr. Edda Blumenstein
CATEGORIES
Loading similar podcasts...