PODCAST · health
VIVUS KASTIÐ
by Sara Lind Brynjólfsdóttir
Útrás fyrir spjall eða einræður um almenna hreyfingu, styrktarþjálfun, meiðsli, hreyfingu eftir meðgöngu, sjúkraþjálfun, hlaup, uppáhalds morgunmat, lífið og bara það sem gengur á í höfðinu á mér og fleirum hverju sinni 💚VIVUS er æfingastöð og sjúkraþjálfun þar sem við brennum fyrir hreyfingu og það að gera fólki kleift að sinna þeirri hreyfingu sem það elskar.
-
5
Hreyfing eftir meðgöngu og fæðingu
Í þessum þætti fáiði að heyra hraksögur af mér á hlaupum og í maraþonþjálfun að mínútu 11:40. Þannig hægt að skippa beint þangað ef þið viljið sleppa við að hlusta á þær raunir. Eftir það er ég að ræða um hreyfingu eftir meðgöngu, við fáum svo oft spurningar um hvenær best sé að byrja eftir fæðingu og hvað þurfi að hafa í huga. Hér fæ ég að fara aðeins yfir það í bland við hvað gott sé að hafa í huga þegar byrjað er að æfa eftir meðgöngu og fæðingu. Bæði fyrst eftir og hvað við höfum í huga þegar við aukum álag smátt og smátt. Svo væri best í heimi að nýta þessi ráð í álagsaukningu áfram í lífinu hvort sem það er eftir meðgöngu og fæðingu eða ekki. TAKK FYRIR AÐ HLUSTA ELSKU BESTU ÖLL <3
-
4
Afhverju er ekki sniðugt að teygja eftir krefjandi æfingar?
Hér er ég bæði að tala um krefjandi styrktaræfingar, hlaup, hjól eða allar æfingar sem láta mikið álag á vöðvana. Fékk aðeins að kafa ofan í þetta í bland við allskonar blaður og reynslusögur frá mér og fólkinu í kringum mig, þau vonandi fyrirgefa mér 😅Ef þið eruð með einhverjar spurningar eða pælingar þá endilega hendið á mig í gegnum Vivus instagrammið og ég væri svo til í að heyra frá ykkur og um að gera að senda þennan þátt á einhvern sem þið vitið að hefði gagn af 💚
-
3
All in á öllum æfingum?
Fór aðeins yfir hér hvernig við getum útfært álag í æfingum eftir dögum og vikum. Ég hef bæði prófað að fara all in á æfingum 6 daga vikunnar og þar af leiðandi ekki hlustað á merkin frá líkamanum og hef líka æft mig í að hlusta á merkin frá líkamanum og get með mikilli vissu sagt ykkur að ég er töluvert sterkari, hraðari og líður almennt betur með því að hlusta. En það er síður en svo einfalt, fer aðeins yfir það hér í bland við allskonar blaður. Endilega sendið á mig í gegnum instagram ef það eru einhverjar spurningar eða pælingar <3https://www.instagram.com/vivusthjalfun/
-
2
Einn tveir, einn tveir - Testing.
Hér fáiði einn hráan þátt frá mér og örlitla kynningu á því sem mögulega koma skal 💚Spjall um þetta podcast, hlaup og ferðalög helgarinnar. VIVUS er æfingastöð og sjúkraþjálfun þar sem við brennum fyrir hreyfingu og það að gera fólki kleift að sinna þeirri hreyfingu sem það elskar.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Útrás fyrir spjall eða einræður um almenna hreyfingu, styrktarþjálfun, meiðsli, hreyfingu eftir meðgöngu, sjúkraþjálfun, hlaup, uppáhalds morgunmat, lífið og bara það sem gengur á í höfðinu á mér og fleirum hverju sinni 💚VIVUS er æfingastöð og sjúkraþjálfun þar sem við brennum fyrir hreyfingu og það að gera fólki kleift að sinna þeirri hreyfingu sem það elskar.
HOSTED BY
Sara Lind Brynjólfsdóttir
Loading similar podcasts...