Fréttahornið: Fall Silicon Valley Bank. Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við? episode artwork

EPISODE · Mar 13, 2023 · 3 MIN

Fréttahornið: Fall Silicon Valley Bank. Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við?

from Hlaðvarp Myntkaupa · host Myntkaup

Óhætt er að segja að atburðarás síðustu daga hafi valdið titringi á fjármálamörkuðum, en þrír bankar, Silvergate Capital, Silicon Valley Bank og New York Signature Bank, hafa allir fallið vestanhafs. Yfirvöld þar í landi hafa stigið inn í og tryggt allar innstæður bankanna að fullu. Þessir bankar hafa verið áberandi fyrir að þjónusta fyrirtæki í rafmyntageiranum, meðal annars Circle sem heldur utan um USDC. Hvaða áhrif mun þetta koma til með að hafa? Af hverju hefur rafmyntamarkaðurinn rokið upp í kjölfarið? Hvað gerðist með USDC? Um þessi atriði er fjallað í fréttahorni hlaðvarps Myntkaupa. Fréttahornið verður reglulegur liður þar sem fjallað er um mikilvæga viðburði í rafmyntaheiminum í suttu og hnitmiðuðu máli.  Þátturinn er aðeins um fjórar mínútur og er samantekt á því helsta. Ekki er víst að öll kurl séu komin til grafar og má því vænta frekari og ítarlegri umfjöllun síðar í hlaðvarpi Myntkaupa.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 13, 2023

Embed this episode

NOW PLAYING

Fréttahornið: Fall Silicon Valley Bank. Hvernig bregst rafmyntamarkaðurinn við?

0:00 3:48

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Pyngjan Pyngjan Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda.  Fjármálakastið Fjármálakastið Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir. Auðnast Ghost Network® Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi.Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja:- skilja eigin líðan og samskipti betur- takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð- byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl- sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd.Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks –

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Hlaðvarp Myntkaupa?

This episode is 3 minutes long.

When was this Hlaðvarp Myntkaupa episode published?

This episode was published on March 13, 2023.

Can I download this Hlaðvarp Myntkaupa episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!