30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans, búningahátíð í Firðinum og Jónatan Garðars um Gunnar Þórðarson episode artwork

EPISODE · Sep 3, 2026 · 50 MIN

30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans, búningahátíð í Firðinum og Jónatan Garðars um Gunnar Þórðarson

from Mannlegi þátturinn

Á laugardaginn fagnar Hótel- og matvælaskólinn í MK 30 ára afmæli sínu. Viðburðurinn er hluti af afmælishaldi skólans og markar mikilvægan áfanga í sögu hans. Með þessu vill forsvarsfólk skólans kynna starfsemi Hótel- og matvælaskólans, efla tengsl við gesti og samstarfsaðila og skapa ánægjulega samverustund fyrir alla aldurshópa. Það verður opið hús og fjölbreytt og fjölskylduvæn dagskrá í boði. Gestir geta fylgst með keppnum, heimsótt matarmarkað, kynnt sér fyrirtæki og samstarfsaðila, notið matar og tekið þátt í ýmiss konar afþreyingu. Við fengum til okkar góða gesti frá skólanum, nemann Janus Þorsteinsson Roelfs og kennarana Dóru Svavarsdóttur og Hinrik Carl Ellertsson, sem einnig er deildarstjóri. Og það verður líka gaman í Hafnarfirði um helgina því á bókasafninu á annarri hæðinni í Firðinum verður haldin í þriðja sinn hátíðin Heimar og himingeimar sem er búninga- og leikjahátíð þar sem saman kemur áhugafólk um búninga af öllum tegundum, allt frá búningum sem byggja á sögulegum grunni yfir í búninga úr vísindaskáldsögum eins og til dæmis Hringadrottinssögu og Stjörnustríðsmyndunum. Unnur Helga Möller viðburðarstjóri kom í þáttinn og sagði frá. Jónatan Garðarson verður áfram með okkur á fimmtudögum og fræðir okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Gunnari Þórðarsyni, sem lést í sumar. Jónatan rak magnaðan feril Gunnars frá því að hann byrjaði að spila kornungur á gítar, svo auðvitað hljómsveitirnar hans Hljómar, Trúbrot, Río tríó, Ðe lónlí blú bojs, og fleiri, sólóplöturnar og öll lögin sem hann hefur samið sem við öll þekkjum. Jóntan sagði okkur betur frá þessu í dag. Tónlist í þættinum: Það reddast / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik) Allt í fína / Raggi Bjarna og Katrín Halldóra og Karl Orgeltríó (Karl Olgeirsson) Bláu augun þín / Hljómar (Gunnar Þórðarson, Ólafur Gaukur Þórhallsson) Þitt fyrsta bros / Pálmi Gunnarsson (Gunnar Þórðarson, Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 3, 2026

Embed this episode

Ready to play

30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans, búningahátíð í Firðinum og Jónatan Garðars um Gunnar Þórðarson

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 3, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!