Að koma sér af stað eftir flensuna, Jónmundur Grétarsson og vatnsleikfimi með Helgu episode artwork

EPISODE · Jan 7, 2026 · 53 MIN

Að koma sér af stað eftir flensuna, Jónmundur Grétarsson og vatnsleikfimi með Helgu

from Mannlegi þátturinn

Nokkuð skæð flensa hefur verið að ganga yfir frá því í haust og hafa talsvert margir lent í henni. Við fengum nokkrar ábendingar frá hlustendum að þau hefðu verið dálítinn tíma að koma sér í gang aftur eftir flensuna því brugðum við á það ráð að hafa samband við Gunnar Svanbergsson sjúkraþjálfara og hann kom í þáttinn og gaf góð ráð til að koma sér í gang eftir svona glímu við flensu. Við notuðum í leiðinni tækifærið og tókum stöðuna á Gunnari sjálfum, hvernig honum gengur í sinni glímu við langvinnt Covid. En hann kom einmitt í þáttinn á síðasta ári og sagði sína reynslusögu, en hann er ekki enn búinn að jafna sig eftir að hafa fengið Covid um jólin 2020. Svo spjölluðum við við Jónmund Grétarsson leikara, hann steig fyrst á sviðið kornungur í Bugsy Malone sem margir muna eftir í Loftkastalanum. Hann lærði leiklist í San Francisco og er stofnandi leikhópsins Elefants, sem hlaut flestar tilnefningar til Grímunnar árið 2023 fyrir Íslandsklukkuna. Hann leikur í Bústaðinum, nýju leikriti eftir Þór Tulinius, sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói annað kvöld. Helga Guðrún Gunnarsdóttir lauk BS námi í íþrótta- og heilsufræði árið 2015 frá Háskóla Íslands og fékk skírteinið nánast á 60 ára afmælisdegi sínum. Hún fór strax að þjálfa opinberlega við lok háskólanámsins og stofnaði fljótlega fyrirtækið Ræs ehf. þar sem hún þjálfar fólk í vatni. Hún segir áhrif af vöðvaþjálfun í vatni fjölþætt, aukin vöðvastyrkur, aukin afköst hjarta og æðakerfisins og aukin hreyfigeta vegna minnkandi álags á stoðkerfið. Helga kom til okkar í dag. Tónlist í þættinum: Rólegan æsing / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) Listen to the Music / Doobie Brothers (Tom Johnston) Mary don’t you weep / The Swan Silvertons Little By Little / Lay Low (Lay Low) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 7, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Að koma sér af stað eftir flensuna, Jónmundur Grétarsson og vatnsleikfimi með Helgu

0:00 53:10

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 53 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 7, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!