ADHD fullorðinna, vinkill um forréttindablindu og Margrét lesandinn episode artwork

EPISODE · Apr 8, 2024 · 51 MIN

ADHD fullorðinna, vinkill um forréttindablindu og Margrét lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Við fræddumst í dag um bókina ADHD fullorðinna. Bókin varpar ljósi á ADHD eins og það kemur fram á fullorðinsárum. Farið er yfir lykileinkenni og orsakir ADHD, þróun einkenna yfir æviskeiðið, birtingarmyndir og mögulega fylgikvilla, eins og kvíða og þunglyndi. Fjallað er um greiningarferli, meðhöndlun og helstu styrkleika sem fylgt geta því að vera með ADHD. Eins er greint frá leiðum til að bæta skipulag, einbeitingu, tímastjórn og minni, sem og aðferðum til að draga úr frestun. Höfundar bókarinnar, Sóley Dröfn Davíðsdóttir og Bára Sif Ómarsdóttir, sálfræðingar hjá Kvíðameðferðarstöðinni, komu í þáttinn í dag og sögðu betur frá. Við fengum vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fjallar um hugtakið forréttindablindu og það er mátað við ýmislegt í tilveru pistlahöfundar, sem ákvað upp úr leiða að fara einn í ferðalag upp í Þjórsárdal til að hreinsa hugann; í vondu veðri og gista í skóginum, auk þess sem lítil upprunasaga ófærubifreiðar hans fléttast inn í frásögnina. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Margrét Helga Erlingsdóttir fréttamaður og fréttaþulur á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Margrét talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Kletturinn e. Sverri Norland Náttúrulögmálin e. Eirík Örn Norðdal Seek you – A Journey Through American Loneliness e. Kirsten Radke Moments of Being e. Virginia Wolf Tónlist í þættinum: Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson) You don’t have to say you love me / Dusty Springfield (Pino Donaggio & Vito Pallavicini) Darling be Home Soon / Lovin Spoonful (John B. Sebastian) UMSJÓN GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 8, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

ADHD fullorðinna, vinkill um forréttindablindu og Margrét lesandinn

0:00 51:58

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 51 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 8, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!