Áfall, hvað svo? Ný bók eftir Dr.Sigrúnu Sigurðardóttur og Heilsuvaktin episode artwork

EPISODE · Mar 24, 2026 · 50 MIN

Áfall, hvað svo? Ný bók eftir Dr.Sigrúnu Sigurðardóttur og Heilsuvaktin

from Mannlegi þátturinn

Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar eru afleiðingar og hver eru úrræði út frá fræðum og reynslu. Út er komin bókin Áfall, hvað svo? eftir Dr. Sigrúnu Sigurðardóttur, prófessor við háskólann á Akureyri, og fjallar um áföll, afleiðingar þeirra og úrræði. Bókin byggir á fræðilegum grunni og eigin reynslu höfundar og í henni kynnir Sigrún leiðir til bata. Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar eru afleiðingar og hver eru úrræði út frá fræðum og reynslu? Sigrún fræddi okkur um þetta í þættinum í dag. Helga Arnardóttir var með Heilsuvaktina hjá okkur í dag eins og annan hvern þriðjudag. Lilja Kjalarsdóttir lífefnafræðingur vissi í rúman áratug að hún væri með bracca genið sem getur valdið lífshættulegu krabbameini. Móðir hennar greindist með bracca krabbamein og lést eftir erfiða baráttu árið 2022. Í langan tíma hikaði Lilja við að fara í fyrirbyggjandi aðgerð til að minnka líkurnar á að hún fengi sjúkdóminn. Hún var í eftirliti um langa hríð en einn daginn eftir samveru með konum í Bracca samtökunum tók hún ákvörðun og lét verða af því að fara í tvöfalt brjóstnám og hyggst láta fjarlægja eggjastokkana þar á eftir. Með tvöföldu brjóstnámi minnkuðu líkurnar á krabbameini úr 60-80% prósentum niður í tvær prósentur. Helga ræddi við hana skömmu eftir aðgerðina. Tónlist í þættinum í dag: Gleym mér ei / Sigrún Hjálmtýsdóttir (Valgeir Guðjónsson) Appelsínugult myrkur / Una Torfa (Una Torfa og Hafsteinn Þráinsson) Gleymmérei / Bríet og KK (Bríet Ísis Elfar, Lárus Örn Arnarson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 24, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Áfall, hvað svo? Ný bók eftir Dr.Sigrúnu Sigurðardóttur og Heilsuvaktin

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 24, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!