Áfallasaga kvenna, G vítamín og Grænhöfðaeyjar episode artwork

EPISODE · Jan 31, 2024 · 51 MIN

Áfallasaga kvenna, G vítamín og Grænhöfðaeyjar

from Mannlegi þátturinn

Ríflega 30 þúsund konur á aldrinum 18-69 ára tóku þátt í rannsókninni Áfallasaga kvenna, á árunum 2018-2019, sem gerir rannsóknina að einni þeirri stærstu sinnar tegundar á heimsvísu. Konurnar svöruðu ítarlegum spurningalista, meðal annars um áföll á mismunandi ævistigum, geðræn einkenni og heilsufar á fullorðinsárum. Áfallasaga kvenna er vísindarannsókn á vegum fræðikvenna við Háskóla Íslands og niðurstöðurnar hafa verið birtar í fjölmörgum vísindagreinum í virtum alþjóðlegum vísindaritum. Þær hafa meðal annars sýnt að 40% kvenna hafa orðið fyrir ofbeldi á lífsleiðinni og það er sterkur áhættuþáttur ýmissa geðrænna einkenna/raskana og hjarta- og æðasjúkdóma. Arna Hauksdóttir prófessor í Lýðheilsuvísindum kom í þáttinn og sagði okkur betur frá og því að aðstandendur rannsóknarinnar eru að fara af stað með eftirfylgdarrannsókn þar sem leitað er til kvennanna 30 þúsund sem tóku þátt í upphafi. Landssamtökin Geðhjálp hafa ýtt úr vör hinu árlega 30 daga geðræktarátaki sem ber heitið G-vítamín. Í ár er fjórða árið sem samtökin standa fyrir þessu átaki á þorranum. Geðhjálp býður því upp á 30 dagleg hollráð sem er ætlað að bæta geðheilsu landsmanna yfir Þorrann. Þessir 30 skammtar af hollráðum eru kallaðir G-vítamín. Á föstudaginn verður styrktarþáttur í beinni útsendingu hér á RÚV, í sjónvarpinu, G vítamín - Gott fyrir geðheilsuna. Þar verður stóra mynd geðheilbrigðismála Íslendinga skoðuð í áhugaverðri og skemmtilegri útsendingu, eins og segir í fréttatilkynningu. Sveinn Rúnar Hauksson, heimilislæknir og stjórnarmaður í Geðhjálp kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þættinum og G vítamíninu. Við fengum svo póstkort í dag frá Magnúsi R. Einarssyni. Í korti dagsins bar Magnús saman Kúbu og Cabo Verde þar sem hann er í heimsókn núna. Þjóðir með svipaðan uppruna en ólík örlög. Hann segir frá sérkennilegum frönskum aðalsmanni sem settist að á einni eyjunni seint á nítjándu öld og varð elskaður og dáður af fólkinu og af honum er kominn mikill ættbogi. Magnús segir líka af fólki sem hann hefur kynnst í borginni Praia, fyrrum embættismanni og lækni, þjóni og þúsund þjala smiði, efnilegri söngkonu og hennar meðspilurum. Tónlist í þætti dagsins: Brauðbúðarbúgí / Borgardætur (Wolfie & Wood, texti Einar Thoroddsen) Ókeypis / Egill Ólafsson og finnsk-íslenska vetrarbandalagið(Matti Kallio og Egill Ólafsson) Let your boss be your lesson / Allison Krauss og Robert Plant ( Milt Campbell) Jacaré sumiu / Alcione (Mauro Diniz & Sereno) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 31, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Áfallasaga kvenna, G vítamín og Grænhöfðaeyjar

0:00 51:46

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 51 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 31, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!