Akureyrarklíníkin, húsnæðislánin á mannamáli og Jón Knútur lesandinn episode artwork

EPISODE · Feb 17, 2025 · 51 MIN

Akureyrarklíníkin, húsnæðislánin á mannamáli og Jón Knútur lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Akureyrarklínikin er fyrst sinnar tegundar í heiminum sem rekin er af hinum opinbera en um er að ræða samstarfsverkefni Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, sem þekkingar– og ráðgjafamiðstöð fyrir ME sjúkdóminn og eftirstöðvar Covid 19. Akureyrarklínikin samanstendur af þverfaglegu teymi lækna, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, iðjuþjálfa og hjúkrunarfræðings. Teyminu er ætlað að sinna ME sjúklingum á landsvísu, bæði í staðarviðtölum en einnig fjarviðtölum. Bati getur verið mjög hægur og í sumum tilfellum lítill sem enginn. Það þarf frekari vitundarvakningu um eðli sjúkdómsins, meðferð og batahorfur. Ingunn Eir Eyjólfsdóttir og Lilja Sif Þórisdóttir, félagsráðgjafar, sögðu okkur meira frá í þættinum í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisbókhaldi, kom til okkar í dag með það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í þetta sinn fræddi hann okkur efni sem er mörgum hugleikið, húsnæðislánin. Þetta eru yfirleitt stærstu lánin sem fólk tekur á ævinni og lánaumhverfi á Íslandi er talsvert flókið, því var áhugavert að fá útskýringar á mannamáli um það sem hafa ber í huga varðandi val á láni. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Jón Knútur Ásmundsson, skrifstofumaður á Reyðarfirði, starfsmaður Austurbrúar, ljóðskáld og hundaeigandi. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Jón talaði um eftirfarandi bækur og höfunda Fólkið í kjallaranum e. Auði Jónsdóttur Í skugga trjánna e. Guðrúnu Evu Mínervudóttur Norwegian Wood og Novelist as a Vocation e. Haruki Murakami On Writing e. Stephen King Aðlögun e. Þórdísi Gísladóttur. Innanríkið – Alexíus e. Braga Ólafsson. Teiknimyndabækur æsku hans, Svalur og Valur, Tinni og fleiri Bloggarar, blaðamenn og pistlahöfundar um aldamótin, til dæmis Karl Th. Birgisson, Illugi Jökulsson og Egill Helgason. Tónlist í þætti dagsins: Alltígóðulagi / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson) Money / Pink Floyd (Roger Waters) Borgarfjarðarminning / Stefán Helgi Stefánsson og Davíð Ólafsson (Óli H. Þórðarson, texti Böðvar Guðmundsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 17, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Akureyrarklíníkin, húsnæðislánin á mannamáli og Jón Knútur lesandinn

0:00 51:05

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 51 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 17, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!