Aldin kór aðgerðarsinna og ferðahjónin Trausti og Rún episode artwork

EPISODE · Nov 21, 2024 · 50 MIN

Aldin kór aðgerðarsinna og ferðahjónin Trausti og Rún

from Mannlegi þátturinn

Aldin er heitið á hreyfingu fólks sem komið er á þriðja aldursskeiðið, eða samtök eldri aðgerðarsinna gegn loftslagsvá eins og þau segja sjálf. Mörg þeirra eru afar og ömmur og þau vilja leggja lóð sín á vogaskálarnar til að knýja á um þær breytingar sem þarf til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, fyrir afkomendur sína og komandi kynslóðir. Við hittum hluta af hópnum í gær, þar sem þau voru samankomin í húsnæði FÍH á fyrstu kóræfingu nýstofnaðs kórs samtakanna. Við töluðum við Laufeyju Steingrímsdóttur og Ludvig Guðmundsson og fengum til dæmis að vita hvernig þau ætla að nýta sér söngraddirnar til að koma skilaboðum sínum á framfæri. Svo töluðum við við hjónin Trausta Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttur, en þau kynntust í kennaranámi fyrir tæpum þremur áratugum. Þau störfuðu bæði við kennslu en fljótt fór að koma í ljós mikill áhugi beggja á ferðalögum. Trausti gerðist fararstjóri erlendis og til að gera langa sögu stutta, þar sem þau meðal annars bjuggu í tólf ár á Tenerife, hafa þau í rauninni bæði ferðast sjálf út um allan heim síðan, til dæmis um alla Suður-Ameríku og Bandaríkin, auk þess að vinna í ferðamálum. Þau fluttu aftur til Íslands í heimsfaraldrinum og eftir enn eina ævintýraferðina, nú til Egyptalands og Marokkó, ákváðu þau að setja á stofn eigin ferðaskrifstofu þar sem þau bjóða upp á ferðir á framandi slóðir, ekki þessa hefðbundnu staði sem Íslendingar ferðast á í stórum hópum. Trausti og Rún sögðu okkur ferðasögu sína í þættinum. Tónlist í þættinum Hafið eða fjöllin / Fjallabræður (Ólafur Ragnarsson) Jörðin sem ég ann / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Þór Sigmundsson) Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 21, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Aldin kór aðgerðarsinna og ferðahjónin Trausti og Rún

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on November 21, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!