Alzheimer samtökin, ofbeldi nemenda episode artwork

EPISODE · Feb 1, 2024 · 49 MIN

Alzheimer samtökin, ofbeldi nemenda

from Mannlegi þátturinn

Alzheimersamtökin hafa um árabil veitt ráðgjöf til fólks með heilabilun og aðstandenda þeirra en ekki haft heilt stöðugildi fyrr en nú til að sinna upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu. Ásta Kristín Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi og verkefnastjóri upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu Alzheimersamtakanna kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá starfsemi samtakanna og þessu nýja stöðugildi í upplýsinga- og ráðgjafaþjónustu, og þau þrjú stöðugildi sem koma víðs vegar um landið í framhaldinu. Hún benti til dæmis á upplýsingar sem hægt er að finna inn á Ísland.is, á forsíðunni undir „Að eldast“ og svo heimasíðu Alzheimersamtakanna alzheimer.is, netfangið [email protected] og símanúmerið 520-1082. Mikil aukning hefur verið á ofbeldi nemenda og alvarlegum birtingarmyndum þess, samhliða ákveðnu úrræðaleysi. Starfsfólk skóla upplifir sig stundum óöruggt og vonlítið í krefjandi aðstæðum með nemendum og mikilvægt er að ofbeldi innan veggja skólans sé tekið föstum tökum. Sérstakt námskeið sem ber yfirskriftina Ofbeldi nemenda og hegðunarvandi er í boði hjá Endurmenntun háskóla Íslands, uppselt er á námskeiðið og biðlisti. Við ræddum í dag við Soffíu Ámundadóttur, grunnskólakennara og leikskólakennara, en hún hefur starfaði á síðasta áratug í Brúarskóla, sem er sérskóli fyrir nemendur með tilfinninga- og hegðunarvanda. Tónlist í þættinum í dag: Ást er æði / Björgvin Halldórsson og Ragnheiður Gröndal (Sam Brooker & Ruby Amanfu og texti eftir Kristinn G. Bjarnason) Upp á rönd / Hjálmar og GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Sigurður Halldór Guðmundsson) Harvest Moon / Neil Young (Neil Young) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 1, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Alzheimer samtökin, ofbeldi nemenda

0:00 49:38

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 49 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 1, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!