Anna Hulda um Veganúar og Ásdís og Edda um Bríeti, blómin og Hannes episode artwork

EPISODE · Jan 14, 2026 · 50 MIN

Anna Hulda um Veganúar og Ásdís og Edda um Bríeti, blómin og Hannes

from Mannlegi þátturinn

Samtök grænkera á Íslandi standa fyrir Veganúar sem er hafinn. Samtökin leggja áherslu á að búa til sem minnstan núning í daglegu lífi fólks og hvetja því til þess að fólk byrji á að prófa að skipta út kunnuglegum hráefnum í sínu mataræði, frekar en að umturna því alveg yfir nótt. Anna Hulda Ólafsdóttir, verkfræðingur og yfirmaður loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands, er í stjórn samtakanna en hún hefur verið vegan frá 2015. Hún kom í þáttinn og sagði okkur frá sinni vegferð og hún hefur til dæmis velt mikið fyrir sér hvernig veganismi virkar fyrir fólk sem er í íþróttum eða í mikilli þjálfun, enda hefur hún verið keppnismanneskja í CrossFit lengi. „Bríet, blómin og Hannes“ er yfirskrift dagskrár sem verður flutt í Hannesarholti laugardaginn 24. jan. í tilefni þess að í ár eru 170 ár frá því að Bríet Bjarnhéðinsdóttir fæddist. Dagskráin fjallar um vináttu Bríetar, kvenréttindakonu, blaðamanns og ritstjóra Kvennablaðsins og Hannesar Hafstein, fyrsta ráðherra Íslands. Æska þeirra og kjör voru ólík og því magnað hvernig lífsþræðir þeirra spunnust saman, meðan bæði lifðu, en vinátta þeirra og samstarf hafði mikil áhrif á þróun kvenréttinda á Íslandi. Ásdís Skúladóttir, leikstjóri og handritshöfundur kom í þáttinn ásamt Eddu Þórarinsdóttur leikkonu. Tónlist í þættinum: Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) I have a dream / Abba (Benny Anderson og Björn Ulvaeus) It was you / Norah Jones (Norah Jones) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 14, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Anna Hulda um Veganúar og Ásdís og Edda um Bríeti, blómin og Hannes

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 14, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!