Áráttu- og þráhyggjuröskun, Bergrisar og Heimsforeldrar episode artwork

EPISODE · Sep 19, 2024 · 50 MIN

Áráttu- og þráhyggjuröskun, Bergrisar og Heimsforeldrar

from Mannlegi þátturinn

Við töluðum í dag við Brynjar Halldórsson, klínískan sálfræðing sem er dósent við Háskólann í Reykjavík og sinnir klínísku starfi við geðsvið Landspítalans. Hann fræddi okkur um áráttu- og þráhyggjuröskun. Við töluðum við hann til dæmis um mýturnar tengdar þessu, hverjar eru birtingamyndirnar, hver eru áhrif þeirra, hvað er hægt að gera og af hverju það skiptir máli að fá hjálp við þeim. Eva Rós Ólafsdóttir, fagstjóri hjá Berginu Headspace, kom svo til okkar í dag. Í Berginu er boðið upp á frí viðtöl fyrir öll ungmenni á aldrinum 12-25 ára. Þau geta komið í ráðgjöf eins oft og þau þurfa og ráðgjafarnir eru fagmenntað fólk með fjölbreytta reynslu af störfum með ungu fólki. Bergið er 6 ára og hefur veitt þjónustu í 5 ár og eru nú að safna Bergrisum, sem styðja við starfið með föstum mánaðargreiðslum. Eva Rós sagði okkur frekar frá starfseminni og Bergrisunum í þættinum. Svo er það herferðin „Búðu til pláss“ sem UNICEF á Íslandi hleypti af stokkunum í vikunni í tilefni 20 ára afmælis samtakanna á Íslandi. Þar er verið að leita að heimsforeldrum. Ævar Þór Benediktsson, sendiherra UNICEF og rithöfundur, sem hlaut á dögunum Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur, kom í þáttinn ásamt Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi. Tónlist í þættinum: While You Were Sleeping / Laufey (Laufey Lín Bing Jónsdóttir og Stewart Spencer) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Younger than springtime / Les Baxter (Les Baxter) Gefðu þeim pláss / Dísa og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 19, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Áráttu- og þráhyggjuröskun, Bergrisar og Heimsforeldrar

0:00 50:58

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 19, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!