EPISODE · Nov 15, 2024 · 53 MIN
Ástvaldur Zenki Traustason föstudagsgestur og hyggematarspjall
from Mannlegi þátturinn
Ástvaldur Zenki Traustason tónlistarmaður, prestur og kennari hjá Zen á Íslandi var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hann hefur iðkað Zen hugleiðslu undir handleiðslu bandarísks Zen meistara síðan árið 1998 og hlotið þjálfun meðal annars í Japan. Ástvaldur nam tónlist í FÍH og í bandaríska tónlistarskólanum Berklee College of Music og rak um tíma tónlistarskólann Tónheima. Hann starfar einnig sem organisti og kórstjóri í Bessastaðakirkju. Við fórum með honum aftur í tímann í Dalina, þar sem hann var hjá ömmu sinni og afa á sumrin, hann sagði okkur frá áhugaverðri reynslu sem hann varð fyrir ungur að aldri, sem kallaðist svo á við það þegar hann hóf að stunda Zen hugleiðslu. Við ræddum tónlistarferil hans og samband hans við Ragnar Bjarnason og hann talaði meðal annars um núvitund og frið föstudagspjallinu í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti sem var auðvitað á sínum stað í dag. Í svona veðri, gulri og appelsínugulri viðvörun, ákváðum við að tala um „huggu mat“ eða „hyggemad“ og að hafa það kósi. Að mati Sigurlaugar er best að djúpsteikja matinn á svona dögum og hún sagði meðal annars frá djúpsteiktum rækjum og þrísteiktum kartöflum. Tónlist í þættinum Sólóður / Milljónamæringarnir og Bjarni Arason (Ástvaldur Traustason, texti Stefán Hilmarsson) Just One of Those Things / Ragnar Bjarnason Hljómsveit Ástvaldar Traustasonar (Cole Porter) Víst ertu Jesús kóngur klár / Ástvaldur Traustason (höf. ókunnur) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Ástvaldur Zenki Traustason föstudagsgestur og hyggematarspjall
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.