Bangsahátíð í Reykjavík, Haustsöfnun Barnaheilla og vísindaspjallið um áhrif sætuefna episode artwork

EPISODE · Sep 2, 2026 · 52 MIN

Bangsahátíð í Reykjavík, Haustsöfnun Barnaheilla og vísindaspjallið um áhrif sætuefna

from Mannlegi þátturinn

Reykjavík Bear hátíðin fer fram dagana 3.–6. september og sameinar bangsa, vini þeirra og gesti víðsvegar að úr heiminum í fjögurra daga hátíð. Bangsasamfélagið á rætur í menningu samkynhneigðra karla og varð til sem rými fyrir fólk sem fann sig ekki í ríkjandi útlitskröfum. Orðið bangsi hefur gjarnan verið tengt við stórvaxna, skeggjaða eða loðna karlmenn, en samfélagið er mun fjölbreyttara en sú staðalmynd gefur til kynna. Meðal hápunkta er val á Mr. Reykjavík Bear í Austurbæjarbíói laugardaginn. Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins, og Jóhann Örn B. Benediktsson, sem vann titilinn Mr. Reykjavík Bear í fyrra, komu í þáttinn í dag. Svo brugðum við okkur til Síerra Leóne, en Barnaheill hefur staðið að byggingu skóla í þorpi þar. Ákvörðunin um að gera það var tekin eftir að blasti við að börnin á svæðinu gátu ekki nýtt sér aðstoð Barnaheilla því að það vantaði grunnstoðina, skólann. Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sagði okkur betur frá þessu, verkefnum samtakanna, haustsöfnuninni, Vigdísarstokknum og styrktartónleikum í Salnum í þætti dagsins. Edda Olgudóttir tók upp þráðinn frá miðvikudögum síðasta vetrar og kom í vísindaspjallið í dag. Nú fjallaði hún um rannsóknir sem sýna áhrif sætuefna á þarmaflóruna og fleira, jafnvel í nokkrar kynslóðir. Tónlist í þættinum í dag: Skítaveður / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Gangi þér allt að sólu / Armundur Ernst Backman Björnsson (Armundur Ernst Backman Björnsson) Seabird / Alessi Brothers (Billy Alessi, Bobby Alessi & Mike Melvoin) Fiskisúpa Sigríðar í Fjörhúsinu / Hilmar Oddsson (Hilmar Oddsson, texti Karl Roth) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 2, 2026

Embed this episode

Ready to play

Bangsahátíð í Reykjavík, Haustsöfnun Barnaheilla og vísindaspjallið um áhrif sætuefna

0:00 52:07

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 2, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!