Barnaheill, búddismi og tónlist, gerendur stafræns ofbeldis episode artwork

EPISODE · Feb 20, 2024 · 50 MIN

Barnaheill, búddismi og tónlist, gerendur stafræns ofbeldis

from Mannlegi þátturinn

Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem hafa í 35 ár unnið að mannréttindum barna víðs vegar um heiminn. Tótla I. Sæmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Barnaheilla kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá helstu verkefnum samtakanna um þessar mundir, til dæmis á vettvangi í Gaza og Tyrklandi, eftir að stóri jarðskjálftinn reið þar yfir. Hún er nýkomin af fundi framkvæmdastjóra samtakanna í Istanbul þar sem verið var að leggja línurnar fyrir árið og þau verkefni sem samtökin ætla að leggja á og hún sagði okkur frá því í viðtalinu. Ástvaldur Zenki Traustason kom svo í þáttinn og talaði við okkur um heilsuna, Zenbúddisma og tónlist. Hann er með tónleika sem hann nefnir Stefnumót við lífið. Hann sagði okkur betur frá þessu. Að lokum kom til okkar Dr. María Rún Bjarnadóttir, yfirmaður netöryggismála hjá ríkislögreglustjóra, en hún kynnti í gær rannsóknarniðurstöður frá Íslandi, Danmörku og Svíþjóð þar sem varpað var ljósi á gerendur í málum sem snúa að stafrænu kynferðisofbeldi. Gerendur voru kortlagðir út frá aldri, kyni og tengslum þeirra við þolendur og svo voru hvatarnir á bak við brotin skoðuð. María Rún sagði okkur frá helstu niðurstöðunum í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Borð fyrir tvo / Hjálmar (Bragi Valdimar Skúlason) Faðmlag / Kristjana Stefánsdóttir ( Kristjana Stefánsdóttir og Bergur Þór Ingólfsson) Gleym mér ei / Lay Low (Bubbi Morthens) Hagi / Þorgrímur Jónsson (Þorgrímur Jónsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 20, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Barnaheill, búddismi og tónlist, gerendur stafræns ofbeldis

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 20, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!