Barnakvikmyndahátíð, vinkill um fráveitu og Stefán Halldórsson lesandinn episode artwork

EPISODE · Oct 21, 2024 · 50 MIN

Barnakvikmyndahátíð, vinkill um fráveitu og Stefán Halldórsson lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík hefst í næstu viku. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem árlegur menningarviðburður barna og unglinga. Þarna verða sýndar alþjóðlegar verðlaunamyndir fyrir alla fjölskylduna og opnunarmynd hátíðarinnar í ár er ævintýra og fantasíumyndin Flow, sem vann dómnefndar og áhorfendaverðlaun á Annecy teiknimynda hátíðinni í ár. Myndin er án tals og hefur verið kölluð ein byltingarkenndasta teiknimyndin síðan Bambi kom út. Lísa Björg Attensperger, stjórnandi hátíðarinnar og Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradís komu í þáttinn. Við fengum svo vinkil í dag frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkillinn fjallaði að þessu sinni um fráveitumannvirki, sem eru pistlahöfundi hugleikin nú í þíðunni, hann velti fyrir sér ýmsum tæknihugtökum og bregðum á leik með samanburði á slíkum fyrirbærum milli þjóða sem hafa marga eða fáa íbúa á ferkílómeter. Að lokum kom svolítil tilvitnun í Innansveitarkróníku Halldórs Laxness. Svo var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Stefán Halldórsson, félagsfræðingur, rekstrarhagfræðingur og ættfræðigrúskari. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Stefán talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ástand Íslands um 1700. Lífshættir í bændasamfélagi, e. Þú ringlaði karlmaður – tilraun til kerfisuppfærslu e. Bernskubók e. Sigurð Pálsson Það liðna er ekki draumur e.Theodor Kallifatides Staðurinn e. Annie Ernaux Veröld sem var e. Stefan Zweig Söknuður e. Matthías Johannessen Þríleikurinn Gangvirkið (1955), Seiður og hélog (1977), Drekar og smáfuglar (1983) e. Ólaf Jóhann Sigurðsson Tónlist í þættinum í dag: Stundum / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen og Steingrímur Karl Teague) Grýla / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson, texti Pétur Gunnarsson) Oh Happy Day / Edwin Hawkins Singers (Edwin Hawkins) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 21, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Barnakvikmyndahátíð, vinkill um fráveitu og Stefán Halldórsson lesandinn

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 21, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!