EPISODE · Sep 4, 2026 · 50 MIN
Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og matarspjall um hafmeyju og kanínur
from Mannlegi þátturinn
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson. Hann er þessa dagana að leika á ný sýninguna sína Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi eftir 10 ára hlé. Við ræddum við hann um ferilinn, ást hans á að segja sögur, stöðu kvikmyndagerðar á Íslandi og margt fleira í skemmtilegu spjalli í þættinum í dag. Svo tókum við upp þráðinn í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti í dag. Hún sagði okkur frá ferð sinni til Napólí og eyjunnar Ischia og matarupplifun sinni þar. Sætabrauði, kaffihús, ricotta ostur, kanínukjöt, pasta, hafmeyja og fleira í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson) Glor på vinduer / Trine Dyrholm (Anne Kristine Linnet) Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti úr kórintubréfi Páls postula) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Embed this episode
Ready to play
Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og matarspjall um hafmeyju og kanínur
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.