EPISODE · Feb 6, 2026 · 50 MIN
Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og nostalgískt matarspjall
from Mannlegi þátturinn
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikstjórinn og leikarinn Benedikt Erlingsson. Eftir að hafa leikið og leikstýrt á leiksviði við góðan orðstír söðlaði hann um og færði sig yfir í kvikmyndirnar og það er óhætt að segja að kvikmyndirnar hans hafi aukið við orðstírinn, Hross í oss, Kona fer í stríð og svo var sjötti og síðasti þáttur Dönsku konunnar sýndur á sunnudagskvöldið, en Benedikt leikstýrði þáttaröðinni og skrifaði hana ásamt Ólafi Agli Egilssyni. Við fórum með Benedikti yfir þetta allt saman, fengum að vita hvar rætur hans liggja, hver var hans lærifaðir sem spilaði lykilhlutverk í því að hann fór að leikstýra og svo auðvitað Dönsku konuna. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag töluðum við um matarvenjur úr æsku, bæði sem hafa fylgt okkur til dagsins í dag, en líka þeirra sem við höfum snúið baki við. Sumt af því er sakbitin sæla, sumt er bara nostalgía, að minnsta kosti fylgja þeim öllum minningar. Tónlist í þættinum í dag: Smuk som et stjerneskud / Trine Dyrholm (Jørgen Olsen) Glor på vinduer / Trine Dyrholm (Anne Linnet) UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og nostalgískt matarspjall
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.