EPISODE · Jan 9, 2026 · 53 MIN
Bergþóra og Jóel föstudagsgestir og langlúra í matarspjallinu
from Mannlegi þátturinn
Föstudagsgestirnir okkar að þessu sinni voru hjónin Bergþóra Guðnadóttir hönnuður og Jóel Pálsson tónlistarmaður. Þau reka íslenska hönnunarfyrirtækið Farmers Market sem fagnaði 20 ára afmæli í lok síðasta árs. Við kynntumst þeim betur í þættinum og fengum að heyra frá því hver aðdragandinn var að því að þau fóru saman í stofnun hönnunarfyrirtækisins, hvernig tónlistin var nauðsynleg rekstrinum fyrst um sinn. Við fengum líka að vita hvernig tónlistin kom inn í líf Jóels og svo hönnunin hjá Bergþóru og hvernig þetta blandaðist allt saman. Matarspjallið var svo auðvitað á sínum stað og í dag fletti Sigurlaug Margrét í gegnum gamla góða matreiðslubók sem heitir Eftir kenjum kokksins, bók með uppskriftum Rúnars Marvinssonar. Þar var auðvitað fiskur fyrirferðamikill en líka fleira góðgæti. Tónlist í þættinum: Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) Fjalladrottning móðir mín (Blessuð sértu sveitin mín) / Hljómsveit Jóels Pálssonar (Bjarni Þorsteinsson, ljóð Sigurður Jónsson) Something About the Cat / Henry Mancini og hljómsveit (Henry Mancini) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Bergþóra og Jóel föstudagsgestir og langlúra í matarspjallinu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.