Biðlistar barna, flugfælninámskeið og póstkort frá Magnúsi episode artwork

EPISODE · Feb 28, 2024 · 50 MIN

Biðlistar barna, flugfælninámskeið og póstkort frá Magnúsi

from Mannlegi þátturinn

Salvör Nordal, Umboðsmaður barna, kom til okkar í dag. Embætti Umboðsmanns barna birti í vikunni upplýsingar um bið barna eftir þjónustu, eins og embættið hefur gert frá því í febrúar 2022, staðið fyrir reglulegri upplýsingaöflun um þann fjölda barna sem bíður eftir þjónustu hjá tilteknum aðilum með það að markmiði að varpa ljósi á stöðuna hverju sinni. Upplýsingarnar hafa verið uppfærðar á sex mánaða fresti, til að fylgjast með þróuninni. Í stuttu máli hafa niðurstöðurnar sýnt að alls staðar mæta börnin biðlistum og í langflestum tilvikum eru biðlistarnir að lengjast. Salvör fór með okkur yfir nýjustu stöðuna í þættinum. Flugfælni er nokkuð sem getur verið afar hamlandi og komið í veg fyrir að fólk ferðist með flugvélum, bæði innanlands og til annara landa. Kvíðameðferðarstöðin í samvinnu við Icelandair býður uppá námskeið fyrir fólk sem vill takast á við flugfælni og virðist gefa góða raun. Í lok námskeiðs er farið með flugi til einhverra af áfangastöðum flugfélagsins, út og heim aftur samdægurs og þáttakendur bera saman bækur sínar eftir á. Ólafía Sigurjónsdóttir sálfræðingur kom til okkar í þáttinn. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í póstkortinu verður sagt frá rysjóttri tíð og fleiri raunum sem hafa dunið yfir Eyjamenn að undanförnu. Að því loknu er stríðið í Úkraínu til umfjöllunar sem og fleiri mál erlendis eins og kosningabaráttan í Bandaríkjunum þar sem söngstjarnan Taylor Swift er komin í brennidepil. Og í lokin talaði Magnús um hið sérkennilega mál Julian Assange sem bíður í fangelsi eftir örlögum sínum sem ráðast á næstunni fyrir breskum dómstól. Tónlist í þættinum: Presley / Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Grafík, texti Rúnar Þórisson) Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (erlent lag, texti Iðunn Steinsdóttir) Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson) Tell me Margarita / Les Baxter (DR & Les Baxter) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 28, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Biðlistar barna, flugfælninámskeið og póstkort frá Magnúsi

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 28, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!