Blöðruhálskirtilskrabbamein, Alaska og veðurspjallið episode artwork

EPISODE · Mar 19, 2024 · 50 MIN

Blöðruhálskirtilskrabbamein, Alaska og veðurspjallið

from Mannlegi þátturinn

Blöðruhálskirtilskrabbamein er algengasta krabbamein karla, 240 greinast árlega að meðaltali. Blöðruhálskirtilkrabbamein hagar sér að mörgu leiti öðruvísi en önnur krabbamein og rannsóknir benda til að allt að 80% af öllum körlum 80 ára og eldri séu með blöðruhálskirtilskrabbamein í einhverri mynd. Málþing í tilefni af Mottumars verður haldið í húsnæði Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð á morgun kl.16:30. Þar verður fjallað um blöðruhálskirtilskrabbamein út frá víðu sjónarhorni. Rafn Hilmarsson, þvagfæraskurðlæknir á Landspítala, verður með erindi á málþinginu undir yfirskriftinni Skimun eða ekki - meðferðarkostir - ávinningur og aukaverkanir. Rafn kom til okkar í dag og sagði frá erindi sínu og með honum kom Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. Í haust mun ferðaskrifstofan VITA bjóða uppá siglingu um firði Alaska. Landslagið er stórbrotið, tignarleg fjöll með hvíta toppa, djúpgrænir regnskógar og falleg höfuðborg Juneau sem ekki er auðvelt að komast til nema fljúga þangað eða sigla. Héðinn Svarfdal Björnsson verður fararstjóri í þessari ferð fyrir Íslendinga en pláss er fyrir um 25 manns. Við heyrðum í honum í þættinum í dag. Svo kom Einar Sveinbjörnsson til okkar í veðurspjallið. Í þetta sinn rifjaði hann upp með okkur upp frægt óveður, Hákonarhretið sem skall á í dymbilvikunni 1963 og svo skoðuðum við með honum páskaveðrið. Tónlist í þættinum: Gleðin með þér / Þuríður Sigurðardóttir (A Jaén og Helgi Pétursson) If paradise is half as nice / Amen Corner (Battisti, Fishman, Mogol) Alaska / Maggie Rogers (Doug Schadt & Maggie Rogers) Árstíðirnar þrjár/Karl Olgeirsson Orgeltríó og Kristjana Stefánsdóttir (Karl Olgeirsson ) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 19, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Blöðruhálskirtilskrabbamein, Alaska og veðurspjallið

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 19, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!