Bragðlaukaþjálfun og matvendni, Sinfóníuhljómsveit Íslands og veðurspjall episode artwork

EPISODE · Mar 31, 2026 · 50 MIN

Bragðlaukaþjálfun og matvendni, Sinfóníuhljómsveit Íslands og veðurspjall

from Mannlegi þátturinn

Við töluðum um matvendni í Mannlega þættinum - aðallega matvendni hjá börnum, orsakir hennar og hvað er til ráða. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði hefur undanafarið rannsakað þetta ásamt hópi vísindamanna í rannsókn þar sem áhersla er lögð á fæðuval, matvendni og líðan, bæði hjá börnum og foreldrum. Og stór hluti af þessari rannsókn er það sem er kallað ‘bragðlaukaþjálfun’ - hvernig fer hún fram? Anna Sigríður sagði okkur meira um þetta. Evrópuferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands lauk síðasta fimmtudag á glæsilegum tónleikum í hinu virta tónlistarhúsi Elbphilharmonie í Hamborg. Uppselt var á tónleikana, stemningin frábær og áhorfendur risu úr sætum og fögnuðu sveitinni. Framundan eru tvennir tónleikar með tónlist úr kvikmyndinni ET og svo tónleikar með Barböru Hannigan verðandi aðalstjórnandi hljómsveitarinnar ,Sköpun heimsins, þar sem Barbara fer með tónleikagesti í ferðalag um tíma og rúm með efnisskrá sem spannar rúm 200 ár tónlistarsögunnar. Guðni Tómasson er framkvæmdastjóri sveitarinnar og hann kom til okkar á eftir. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur talaði um veðurseiglu eða hæfileikann til að takast á við íslenskt vetrarveður í daglegu lífi. Að vetrinum er lágur meðalloftþrýstingur vísir fyrir sviptinga- og stormasamt veður. Nú í mars hefur loftþrýstingur verið lágur að meðaltali en sosum ekkert einsdæmi. Svo var það veðurspáin næstu daga og yfir páska og hugtakið páskahret á ekki við núna, við spyrjum: Af hverju? Tónlist frá útsendingarlogg 2026-03-31 CLUB DES BELUGAS - A men's scene Kynningarlag Mannlega þáttarins. Árný Margrét - Hakk og spaghettí. THE HOUSEMARTINS - Caravan of Love (80). Björgvin Halldórsson, Kór Öldutúnsskóla - Ég á lítinn skrítinn skugga. JAMES TAYLOR - Don't Let Me Be Lonely Tonight. CLUB DES BELUGAS - A men's scene Kynningarlag Mannlega þáttarins. MANNLEGI ÞÁTTURINN ÞRIÐJUDAGUR 31.MARS 2026 UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 31, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Bragðlaukaþjálfun og matvendni, Sinfóníuhljómsveit Íslands og veðurspjall

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 31, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!