Bridds á Íslandi, Gott að eldast og heilsuspjallið episode artwork

EPISODE · Jan 23, 2024 · 50 MIN

Bridds á Íslandi, Gott að eldast og heilsuspjallið

from Mannlegi þátturinn

Sterkasta briddsmót sögunnar, sem fram hefur farið hér á landi, hófst í gær og það verður spilað í fjóra daga í Hörpu. Margar af skærustu stjörnum briddsheimsins taka þátt. Áhugi á bridds hefur tekið kipp undanfarið hérlendis en um tuttugu þúsund Íslendingar spila bridds reglulega. Við forvitnuðumst í dag um bridds og því kom forseti Bridgesambands Íslands, Brynjar Níelsson, í þáttinn til að fræða okkur, bæði um bridds og alþjóðlegu mótin tvö sem fara fram hér á landi, því þegar hinu fyrra lýkur þá er blásið nánast um leið til leiks í öðru alþjóðlegu móti í Hörpu. Í dag lifir fólk almennt lengur en áður og það er líka virkara og hraustara en nokkru sinni fyrr. Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir kom í þáttinn í dag. Hann er einn yfirlækna á Reykjalundi, formaður verkefnastjórnar verkefnisins Gott að eldast og hann var nýlega ráðinn til að vera yfir öllum endurhæfingadeildum á Landakotsspítala. Á nýafstöðnum læknadögum flutti Ólafur erindið Endurhæfing eldra fólks, hvert stefnum við? Hann fræddi okkur um stöðuna í þessu mikilvæga málaflokki. Jóhanna Vilhjálmsdóttir kom svo í heilsuspjallið og við héldum áfram að tala um föstur og fleira í dag. Tónlist í þættinum í dag: Fyrir austan mána / Sextett Ólafs Gauks (Oddgeir Kristjánsson og Loftur Guðmundsson) Ég veit þú kemur / Elly Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson og Ási í bæ) Heima / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 23, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Bridds á Íslandi, Gott að eldast og heilsuspjallið

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 23, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!