EPISODE · May 18, 2026 · 50 MIN
Crohns og sáraristilbólga, efni af Þjóðskjalasafni og Pétur Már lesandi vikunnar
from Mannlegi þátturinn
Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi er á morgun 19.maí. Talið er að yfir 10 milljónir, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu, oft nefnda IBD. Á Íslandi hefur tíðnin aukist mikið frá 1950 og nýgengi sáraristilbólgu á Íslandi er u.þ.b. 22 á hverja 100.000 íbúa sem er með því hæsta í heiminum. Í ár vekja samtökin athygli á því að það á ekki að vera neitt feimnismál að tala um sjúkdómana eða það sem þeim fylgir, þótt þeir tengist þörmum og salernisferðum og mjög mikilvægt að eyða öllum fordómum. Hjalti Þór Davíðsson kom til okkar í dag en hann tekur þátt í vitundarvakningunni fyrir CCU samtökin, sem stendur fyrir Crohn’s og Colitis Ulcerosa, eða sáraristilbólgu. Svo fórum við í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og fengum Ólaf Arnar Sveinsson, sviðsstjóra miðlunar og rannsókna þar á bæ, til að segja okkur frá sakamáli, svokölluðu dulsmáli, frá árunum 1832-33 í Tálknafirði á Vestfjörðum. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Pétur Már Gunnarsson, myndlistar- og garðyrkjumaður. Við fáum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Pétur Már talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Frjáls e. Lea Ypi Nói bátasmiður - Lífshlaup Nóa skráð af Erlingi Davíðssyni Sorgin í fyrstu persónu e. Ko Un í þýðingu Gyrðis Elíassonar Tokyo-Montana hraðlestin e. Richard Brautigan Daníil Kharms og Brautigan Tónlistin í þættinum: Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) Fegurðin svo hrá / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) He’ll Always Know / Elísabet Eyþórsdóttir ( Elísabet Eyþórsdóttir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Crohns og sáraristilbólga, efni af Þjóðskjalasafni og Pétur Már lesandi vikunnar
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.