Dagur íslenska táknmálsins, fjármálin á mannamáli og Reinhold lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Feb 10, 2025 · 50 MIN

Dagur íslenska táknmálsins, fjármálin á mannamáli og Reinhold lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Dagur íslenska táknmálsins er á morgun 11. febrúar en þann dag var Félag heyrnarlausra stofnað. Íslenska táknmálið var viðurkennt sem „jafnrétthátt íslensku sem tjáningarform í samskiptum manna í milli“ með lögum árið 2011 og bannað er að mismuna fólki eftir því hvort málið það notar. Íslenska táknmálið er eina hefðbundna minnihlutamálið á Íslandi og er fyrsta mál um 300 Íslendinga. Við ræddum við Valgerði Stefánsdóttur sem er formaður málnefndar um íslenskt táknmál í þættinum í dag. Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum, kom svo til okkar í dag, eins og aðra mánudaga eftir áramót, það er liður sem við köllum Fjármálin á mannamáli. Í dag talaði hann um góðgerðarmál og það að gefa til baka. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Reinhold Richter, hann segist vera að stíga sín fyrstu skref sem eftirlaunaþegi og svo gaf hann á dögunum út sitt fyrsta lag sem hann samdi til minningar um besta vin sinn, ljóðskáldið Ísak Harðarson, við heyrðum lagið, Heim til vina, fyrir viðtalið. Svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum í dag: Fallegur dagur / Bubbi (Bubbi Morthens) Peningar / Hljómar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Heim til vina / Edgar Smári Atlason (Reinhold Richter) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 10, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Dagur íslenska táknmálsins, fjármálin á mannamáli og Reinhold lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 10, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!