Davíð, Jónmundur og Unnsteinn föstudagsgestir og matarspjall á frönskum nótum episode artwork

EPISODE · Mar 13, 2026 · 50 MIN

Davíð, Jónmundur og Unnsteinn föstudagsgestir og matarspjall á frönskum nótum

from Mannlegi þátturinn

Föstudagsgestir Mannlega þáttarins voru þrír í þetta sinn, Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson, en þeir voru að frumsýna glænýtt leikrit á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi, Gæðablóð, sem þeir sömdu ásamt leikstjóra sýningarinnar Þóru Karítas Árnadóttur. Þeir eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Í sýningunni deila þeir sögum úr lífi sinni og reynslu sinni af því að alast upp sem litaðir Íslendingar. Það var standandi lófatak og fagnaðarlæti í lok sýningarinnar, enda er hún bráðskemmtileg, fyndin og snertir við áhorfendum. Við áttum skemmtilegt spjall við þá þremenninga í þættinum og eltum svo þræðina þangað sem þeir leiddu okkur. Svo kom Sigurlaug Margrét í matarspjallið, eins og alla föstudaga, við héldum aðeins áfram með grjónaumræðuna, við fengum viðbrögð frá hlustendum sem frú Sigurlaug fór aðeins yfir. Og svo fletti hún í franskri matreiðslubók og talaði um eggjabrauð, eins og ýmsir kalla það og í lokin fór Guðrún yfir það hvernig maður þeytir smjör og bakar einfalt brauð. Tónlist í þættinum: Lífsgleði / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Glow / Retro Stefson (Unnsteinn Manuel Stefánsson) Skin / Retro Stefson (Retro Stefson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 13, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Davíð, Jónmundur og Unnsteinn föstudagsgestir og matarspjall á frönskum nótum

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 13, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!