Dórótea og Tinkallinn, fuglatalning og samskiptin í vinnunni episode artwork

EPISODE · Jan 22, 2026 · 50 MIN

Dórótea og Tinkallinn, fuglatalning og samskiptin í vinnunni

from Mannlegi þátturinn

Sagan um Galdrakarlinn í OZ byggir á samnefndri bók Frank Baums sem öðlaðist nýtt líf með frægri kvikmynd frá 1939 þar sem Judy Garland fór með hlutverk Dóróteu. Síðan þá hafa óteljandi útgáfur litið dagsins ljós, bæði á sviði og á hvíta tjaldinu og ekkert lát virðist vera á vinsældum söngleiksins. Þar spillir ekki fyrir tónlistin með ógleymanlegum lögum á borð við Somewhere Over the Rainbow. Sýningin Galdrakarlinn í Oz verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu á laugardaginn. Hlutverk Dóróteu í þetta sinn er í höndum Þóreyjar Birgisdóttur. Þórey kom í þáttinn ásamt Björgvini Franz Gíslasyni, en hann leikur Tinkarlinn. Um helgina fer fram árleg talning á garðfuglum á vegum Fuglaverndar. Tilgangurinn er að safna langtímaupplýsingum til þess að m.a. að fylgjast með hugsanlegum breytingum í fjölda og tegundasamsetningu. Vala Friðriksdóttir líffræðingur og félagi í Fuglavernd kom til okkar í dag og sagði okkur frá því hvernig þetta fer fram og gaf góð ráð fyrir þau sem vilja taka þátt í talningunni og fyrir þau sem vilja fóðra fugla í sínum görðum. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa, í þetta sinn talaði hann um samskipti á vinnustað, en þau geta svo sannarlega verið flókin og ýmislegt sem hafa má í huga. Tónlist í þættinum: Söknuður / Roof Tops (Oldham & Penn, texti Stefán G. Stefánsson) Somewhere Over the Rainbow / Judy Garland (Harold Arlen, texti E.Y. Harburg) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) You’ve Lost That Loving Feeling / Righteous Brothers (Barry Mann, Cynthia Weil & Phil Spector) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 22, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Dórótea og Tinkallinn, fuglatalning og samskiptin í vinnunni

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 22, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!