EPISODE · Mar 25, 2026 · 53 MIN
Dýr í sögum, Músík í Mývatnssveit og Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur
from Mannlegi þátturinn
Við fræddumst um sögur um dýr, íslenskar dýrasögur og hvernig er skrifað um dýr í þeim. Rithöfundurinn Gunnar Theodór Eggertsson beindi sjónum sínum að þessu efni í fyrirlestri á Borgarbókasafninu fyrr í vikunni, þar sem hann sagði frá ríkri sagnahefð Íslendinga um dýr og setti þær í alþjóðlegt samhengi, bæði í tengslum við bókmenntahefðir og einnig dýravernd. Gunnar Theodór kom í þáttinn. Skemmtilegur óperufarsi í boði meistara Mozarts verður fluttur í Mývatnssveit um páskana. Já Mozart í Mývatnssveit og undir merkjum tónlistarhátíðarinnar Músík í Mývatnssveit 2026. Gamanóperan heitir Der Schauspiel-direktor sem á íslensku nefnist Viðburðastjórinn. Hátíðin hefur verið haldin í Mývatnssveit í dymbilviku samfellt frá árinu 1998 og við fengum Laufeyju Sigurðardóttur fiðluleikara til að segja okkur nánar frá þessari skemmtun. Edda Olgudóttir kom í vísindaspjall og segir okkur frá tapi á Y litningi og hvaða áhrif það hefur á heilsu karla. Lög: Dýrin á Diskó / Prófessorinn, Memfismafían og Margrét Kristín Blöndal (Bragi Valdimar Skúlason) Söngur dýranna í Týról / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Rock'n'Roll öll mín bestu ár / Brimkló (K. Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson) Queen of California / John Mayer (John Mayer) MANNLEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAGUR 25.MARS 2026 UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Dýr í sögum, Músík í Mývatnssveit og Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.