Dýrmæta Anna, páskaveðursvinkill og Hulda lesandinn episode artwork

EPISODE · Apr 2, 2024 · 50 MIN

Dýrmæta Anna, páskaveðursvinkill og Hulda lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Dýrmæta Anna er heiti á barnabók, nokkurs konar sjálfshjálparbók og er skrifuð til að gefa krökkum skilning á hlutum sem geta gagnast þeim út lífið og stuðlað að aukinni hamingju, meiri sjálfsást og betri samskiptum. Höfundur bókarinnar, Fjóla María Bjarnadóttir, hefði sjálf viljað að svona bækur hefðu verið nálægt henni í æsku en hún þekkir af eigin raun að vera barn og unglingur í mikilli vanlíðan. Aðstæður á æskuheimilinu voru erfiðar, en hún fór í 10 grunnskóla í 2 löndum og var stanslausan með mikinn kvíða. Við ræddum við Fjólu Maríu í þættinum. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni. Vinkill dagsins fjallaði um muninn sem nú er á milli landshluta varðandi veður og hvernig það hafði mögulega áhrif um páskana. Að lokum var fjallað um sumarbústaðaferðir og hvernig aðstæður fólks í bland við aldur hafa mögulega áhrif á upplifun þeirra. Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Hulda Hólmkelsdóttir, verkefnastjóri á skrifstofu borgarstjórnar hjá Reykjavíkurborg og laganemi. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Hulda talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: A Little Life e. Hanya Yanagihara Yellowface e. R.F Kuang Strákar sem meiða e. Evu Björgu Ægisdóttir Red, White and Royal Blue e. Casey McQuiston Og svo talaði hún um höfundinn Þorvald Þorsteinsson Tónlist í þættinum: Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Eggertsson og Gunnar Þórðarsson) Öjeblikket / Kari Bremnes (Kari og Lars Bremnes) Tango Della Rose / Stanley Black (Bottero & Schrier) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 2, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Dýrmæta Anna, páskaveðursvinkill og Hulda lesandinn

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 2, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!