Ég kom til að gráta, um Svein Pálsson og skildinginn og vísindaspjall um leðurblökur episode artwork

EPISODE · Sep 9, 2026 · 50 MIN

Ég kom til að gráta, um Svein Pálsson og skildinginn og vísindaspjall um leðurblökur

from Mannlegi þátturinn

Það styttist í jólabókaflóðið, hægt og bítandi fara nýskrifaðar bækur að koma í bókabúðir sem er alltaf tilhlökkunarefni. Nú er komin út glæný bók eftir Þorgrím Þráinsson rithöfund sem heitir Ég kom til að gráta. Bókin fjallar um mann á miðjum aldri sem er í tilvistarkreppu og fer til Ólafsvíkur í leit að sjálfum sér. Hvaða afleiðingar hafa áföll í æsku, brotin sjálfsmynd, brestir í hjónabandi eða óttinn við að horfast í augu við sjálfan sig. Þorgrímur kom í þáttinn í dag. Í vikunni var áhugaverð frétt á ruv.is um að fundist hefði 255 ára skildingur sem náttúrufræðingurinn Sveinn Pálsson átti og hafði komið fyrir í vörðu af grjóti í Kvískerjum í Öræfum og Sveinn skrifaði í ferðabók sinni frá árinu 1794 að hann hefði einmitt komið téðum dönskum eirpeningi fyrir í vörðu. En í framhaldi af þessari frétt vildum við kynna okkur aðeins betur hver þessi maður, Sveinn Pálsson náttúrufræðingur var? Það vill svo skemmtilega til að væntanleg er sjö binda heildarútgáfa á verkum hans og Kristjan B. Jónasson bókmenntafræðingur er einn þeirra sem hefur unnið að útgáfu bókanna og hann kom í þáttinn í dag og fræddi okkur um þennan stórmerkilega mann, ferðir hans um landið og hans ævistarf. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag fræddi hún okkur um leðurblökur og þann eiginleika þeirra að geta borið veirur í sér án þess þó að sýkjast sjálfar af þeim. Og það getur einmitt verið talsvert hættulegt fyrir okkur mannfólkið. Tónlist í þættinum í dag: Það vantar spýtur / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) Söknuður / Roof Tops (Oldham & Penn, texti Stefán G. Stefánsson) Rock’n roll öll mín bestu ár / Brimkló (Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson) Styttur bæjarins / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 9, 2026

Embed this episode

Ready to play

Ég kom til að gráta, um Svein Pálsson og skildinginn og vísindaspjall um leðurblökur

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 9, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!