EPISODE · Jan 17, 2025 · 50 MIN
Egill Eðvarðsson föstudagsgestur og kvikmyndamatur
from Mannlegi þátturinn
Egill Eðvarðsson myndlistamaður og leikstjóri er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Egill útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1971 og árið 2019 fékk hann heiðursverðlaun Eddunnar en hann hefur starfað við íslenska sjónvarps- og kvikmyndagerð í hartnær 50 ár lengst af við dagskrárgerð og upptökustjórn hjá RÚV. Við fórum með Agli aftur í tímann á æskuslóðirnar á Akureyri, á ljósmyndastofu föður hans og fleira og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til nútímans, en Í dag sinnir Egill myndlistinni sinni og hann sagði okkur frá hvað annað hann hefur verið að bardúsa þessa dagana. Hann er síður en svo sestur í helgan stein og hann hefur sterkar skoðanir á því kerfi sem er við lýði þar sem fólk er nánast sett út í kuldann þegar það er komið á vissan aldur. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað og í dag og við töluðum um áhrif kvikmynda og sjónvarpsefnis þegar kemur að mat. Matur spilar stórt hlutverk í mörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og oft er hann svo girnilegur að áður en við vitum að erum við farin að elda það sama. Tónlist í þættinum: Reiknaðu með mér / Björn Jörundur og Ragnheiður Gröndal (Björn Jörundur Friðbjörnsson) My Little Grass Shack / Leon Redbone og Ringo Starr (Bill Cogswell, Johnny Noble & Tommy Harrison) Vetrarsól / Björgvin Halldórsson (Gunnar Þórðarson og Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Egill Eðvarðsson föstudagsgestur og kvikmyndamatur
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.