Endurunninn textíll og veður- og farfuglaspjall episode artwork

EPISODE · Apr 14, 2026 · 50 MIN

Endurunninn textíll og veður- og farfuglaspjall

from Mannlegi þátturinn

Nokkrar konur eru að koma á fót fyrstu textílendurvinnslustöð á Íslandi þar sem þær tæta niður textílúrgang og búa til nýjan textíl úr honum. Á HönnunarMars munu þær sýna fyrstu hljóðdempandi veggpanela sem eru unnir úr textílúrgangi og framleiddir hér á landi. Sigríður Tryggvadóttir textíllistakona kom í þáttinn og með henni kom Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Flöff, sem er fyrirtækið sem þær stofnuðu í kringum þetta verkefni. Svo slógum við tvær flugur í einu höggi, því Einar Sveinbjörnsson kom til okkar í veðurspjallið en með honum kom Arnór Þórir Sigfússon fuglafræðingur. Þannig að auk þess að spjalla um veðrið þá fengum við Arnór Þórí til að segja okkur frá áhrifum veðurs á flug farfugla og til dæmis hæfileiki þeirra til að finna sér rétta veðrið til að fljúga til landsins á sem stystum tíma og eyða í leiðinni sem minnstri orku. Við heyrðum af ferðum fugla sem til dæmis nýttu sér meðvind og slógu flugmet á leiðinni hingað og svo af öðrum fuglum sem villtust á leiðinni. Það var um nóg að tala við þá Einar og Arnór Þóri í þættinum, enda eru þetta mikil uppáhalds umræðuefni hjá okkur, veðrið og fuglar. Hægt er að fylgjast með flugi gæsanna á eftirfarandi vefslóð: www.verkis.is/gaesavefsja Tónlist í þættinum í dag: Akstur á undarlegum vegi / Sléttuúlfarnir (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik) Farfuglarnir / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Helgason, texti Þórarinn Eldjárn) Christopher Cross / Ride Like the Wind (Christopher Cross) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 14, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Endurunninn textíll og veður- og farfuglaspjall

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 14, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!