EPISODE · May 8, 2026 · 50 MIN
Eva Ruza föstudagsgestur og húsráð og brauð í ofni í matarspjallinu
from Mannlegi þátturinn
Eva Ruža Miljević er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Eva er þekkt útvarpskona, sjónvarpskona, skemmtikraftur, stjörnufréttakona hjá K100, velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi og áhrifavaldur. Og ef allt þetta er ekki nóg þá er hún líka í veitingabransanum, en hú rekur ásamt eiginmannisínum Svarta kaffi. Við ferðuðumt með Evu aftur í tímann, til Króatíu, en faðir hennar er þaðan, svo í gegnum æskuárin þar sem kom fljótt í ljós að hún ætlaði sér að verða fræg og hafði snemma mikið sjálfstraust í því að koma fram. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag héldum við áfram að skoða Eldhúsbókina gömlu og góðu, húsráð frá 1971 og fleira. Í framhaldi af því rifjuðum við upp þegar við vorum yngri og settum til dæmis brauð með skinku osti og tómatsósu í ofninn. Nostalgía og brauð í ofninn í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Lucky / Britney Spears (Max Martin, Rami Yacoub & Alexander Kronlund) Finesse / Bruno Mars (Bruno Mars, James Fauntleroy, Philip Lawrence, Brody Brown, Jeremy Reeves, Jonathan Yip, Ray Charles McCullough II & Ray Romulus) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
NOW PLAYING
Eva Ruza föstudagsgestur og húsráð og brauð í ofni í matarspjallinu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
Jul 6, 2026 ·133m
Jul 5, 2026 ·50m
Jul 1, 2026 ·78m
Jul 1, 2026 ·22m
Jun 28, 2026 ·50m
Jun 26, 2026 ·42m