EPISODE · Sep 11, 2026 · 53 MIN
Eyjólfur Kristjánsson föstudagsgestur og matarminningar um fisk
from Mannlegi þátturinn
Föstudagsgesturinn okkar í dag var engin annar en Eyfi, Eyjólfur Kristjánsson. Hann hefur víða komið við í íslensku tónlistarlífi og hefur verið einn af vinsælustu tónlistarmönnum landsins síðustu áratugi. Hann er að gefa út glænýja plötu og við heyrðum tvö lög af henni í þættinum. Eyfi ólst upp í Vogahverfinu, fór snemma að spila á gítar og spilaði snemma á kvöldvökum í Kerlingafjöllum þar sem íslendingar fóru gjarnan í skíðaferðir en þar vann hann sem skíðakennari. Hann var hluti af Vísnavinum og Hálft í hvoru. Eyfi tók þátt í fyrstu undankeppni Eurovision árið 1986 og hefur svo auðvitað staðið á stóra sviðinu í keppninni erlendis og lagið hans Nína er enn í dag sungið af öllum kynslóðum við hin ýmsu tækifæri. Bítlavinafélagið, sólóferillinn, bandarísk tónlist æskunnar, siglingar á skemmtiferðaskipum og margt fleira var rætt í spjallinu við Eyjólf í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og í dag ákváðum við að tala um matarminningar, góðar og slæmar og umræðuefnið var fiskur í þetta sinn. Tónlist í þættinum: Dagar / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson) Við getum allt / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) Hang on baby / Eyfi (Eyjólfur Kristjánsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Embed this episode
Ready to play
Eyjólfur Kristjánsson föstudagsgestur og matarminningar um fisk
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.