Fagleg handleiðsla, golfsumarið og þarmaflóran á Heilsuvaktinni episode artwork

EPISODE · May 7, 2024 · 50 MIN

Fagleg handleiðsla, golfsumarið og þarmaflóran á Heilsuvaktinni

from Mannlegi þátturinn

Við töluðum aðeins um mannlega þáttinn í Mannlega þættinum í dag, sem sagt mannlega þáttinn á vinnustöðum. Við höfum fjallað talsvert í þættinum um streitu og vanlíðan í vinnunni. Ef stemningin er ekki góð á vinnustaðnum, þar sem starfsfólk jafnvel upplifir sig vanmetið, lítilsvirt og óöruggt, þá eru talsvert meiri líkur á að lenda í kulnun eða að upplifa kulnunareinkenni. Við fengum þær séra Díönu Óskarsdóttur, doktor í handleiðslufræðum og Sigrúnu Harðardóttur doktor í félagsráðgjöf og dósend við Félagsráðgjafardeild HÍ, til að segja okkur frá því hvernig fagleg handleiðsla getur nýst, t.d. sem forvörn og til að styðja að bæta vinnustaðamenninguna og getur jafnvel minnkað starfsmannaveltu og fjarveru vegna veikinda. Þær Díana og Sigrún útskýrðu þetta frekar fyrir okkur í þættinum. Með hækkandi sól og hækkandi hitatölum spretta kylfingar úr hverju horni tilbúnir að arka út á golfvelli landsins til að elta litlu hvítu boltana í sem fæstum höggum ofan í holurnar. Í fyrravor komu golfvellirnir ekki vel undan vetri eftir frosthörkur, en spurningin er hvernig staðan er á þeim núna? Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands kom í þáttinn og fór með okkur yfir stöðuna og hvað er framundan í golfinu í sumar. Heilbrigð þarmaflóra er grunnurinn að góðri heilsu bæði líkamlega og andlega. Þetta hafa rannsóknir sýnt fram á með afgerandi hætti undanfarin ár og gjörunnin matvæli, sykruð, söltuð og reykt vinna gegn góðri flóru. Birna G. Ásbjörnsdóttir doktor í heilbrigðisvísindum og sérfræðingur í þarmaflóru segir lykilatriði að borða eins ólíkar tegundir af grænmeti og ávöxum í viku til að hafa sem öflugasta flóru meltingarkerfinu. Hún nefnir að hátt í 30 tegundir væru langbesta markmiðið, auk þess að borða mikið af hnetum, fræjum og baunum. Sykurlausir gosdrykkir og orkudrykkir séu alslæmir fyrir bakteríubúskap í þörmunum og þá eigi að drekka í algjöru lágmarki. Helga Arnardóttir ræddi við Birnu á Heilsuvaktinni í dag. Tónlist í þættinum í dag: Pólstjarnan / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Ágúst Pétursson, texti Kristján frá Djúpalæk) Oh happy day / The Edwin Hawkins singers (Edwin Hawkins) Im a believer / The Monkees (Neil Diamond) UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published May 7, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Fagleg handleiðsla, golfsumarið og þarmaflóran á Heilsuvaktinni

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on May 7, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!