Fanney fann bóður sína,  að lofta rétt út episode artwork

EPISODE · Mar 7, 2024 · 50 MIN

Fanney fann bóður sína, að lofta rétt út

from Mannlegi þátturinn

Við rákum augun í grein á visir.is, afskaplega áhrifaríka og fallega sögu þar sem ung kona, Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir, fann blóðmóður sína í gegnum lygilega atburðarás. Fanney var ættleidd frá Sri Lanka til Íslands sem ungabarn árið 1985. Fanney ólst upp á Akranesi og býr þar enn ásamt eiginmanni og börnum. Foreldrar hennar töluðu alltaf mjög opið um ættleiðinguna og það var aldrei neitt feimnismál að ræða allar þær spurningar sem hún hafði um uppruna sinn og þau voru að auki með upplýsingar sem hún mátti skoða, fæðingarvottorð og heilsufarsupplýsingar sem fylgdu með henni í ættleiðingunni. Með aldrinum fóru spurningar og áhugi um fortíð hennar að aukast, til dæmis í sambandi við blóðmóður hennar og jafnvel að ná sambandi við hana. Þegar Fanney svo horfði á sjónvarpsþættina Leitin að upprunanum í umsjón Sigrúnar Óskar Kristjánsdóttur á Stöð 2 þá kviknaði á einhverju hjá henni sem setti af stað atburðarrásina sem við nefndum í upphafi sem leiddi til þess að hún fann blóðmóður sína. Fanney Ýr kom til okkar í dag og sagði okkur sína sögu í þættinum í dag. Svo kom Ólafur Wallevik, prófessor í iðn- og tæknifræði við Háskólann í Reykjavík, til okkar og fræddi okkur um það að lofta út, en hann segir að Íslendingar kunni það ekki jafn vel og margar aðrar þjóðir. Ef það er ekki vel gert þá geti það valdið rakaskemmdum og skaðlegu innilofti. Ólafur fræddi okkur um mikilvægi þess að lofta rétt út í þætti dagsins. Tónlist í þættinum: Við erum eins / Halli Reynis (Haraldur Reynisson) Knowing me knowing you/Kristjana Stefánsdóttir (Björn Ulveas og Benny Abba) Saturday Sun / Nick Drake (Nick Drake)

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 7, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Fanney fann bóður sína, að lofta rétt út

0:00 50:13

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 7, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!