Fimmta hvert barn, gullmolinn af safninu frá 1947 og Guðrún Helga lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Apr 27, 2026 · 50 MIN

Fimmta hvert barn, gullmolinn af safninu frá 1947 og Guðrún Helga lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Við fræddumst um verkefnið Fimmta hvert barn sem UNICEF hefur verið að vinna með yfir 800 börnum á Íslandi. Það er myndlistarsýning í Hörpu sem varpar ljósi á þá hrikalegu staðreynd að fimmta hvert barn í heiminum býr við afleiðingar stríðs og átaka. Sýningin stendur til 3.maí og þær Sigyn Blöndal kynningarstjóri og Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF komu til okkar í dag og sögðu okkur betur frá. Helga Lára Þosteinsdóttir safnstjóri RÚV kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Rúgbrauðsgerðin er almennt heiti á húsinu Borgartúni 6, en það var reist árið 1947. Í innslagi dagsins, sem tekið var upp fyrir þáttinn Heyrt og séð þann 24.ágúst árið 1947, segir Jónas Árnason aðeins frá þessu nýja stórhýsi sem hýsti mjög metnaðarfulla framleiðslu á rúgbrauði, hrökkbrauði og sultu. Seinni hluti umfjöllunarinnar snýr að Nýborg, aðalútsölustað Áfengisverslunar ríkisins við Skúlagötu. Á þessum tíma var áfengi afgreitt yfir borðið. Helga Lára sagði okkur nánar frá og við heyrðum þessi hljóðbrot frá liðnum tíma. Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Guðrún Helga Halldórsdóttir búðareigandi og stundakennari við japönskudeild HÍ. Hún er stödd í Kyoto í Japan og vegna mikils tímamunar hringdum við í hana snemma í morgun og tókum spjallið upp. Við forvitnuðumst aðeins um hana og af hverju hún er stödd í Japan og svo sagði hún okkur auðvitað hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Dagar mínir í Morisaki bókabúðinni e. Satoshi Yagisawa í þýðingu Ugga Jónssonar Kjörbúðarkonan e. Sayaka Murata í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur Svo talaði hún um áhrif Haruki Murakami á sitt líf. Tónlist í þættinum í dag: Síðasti móhítóinn / Sigurður Guðmundsson, Memfismafían og Tómas R. Einarsson (Bragi Valdimar Skúlason) Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson) Manstu gamla daga / Alfreð Clausen (Alfreð Clausen, texti Kristín Engilbertsdóttir Clausen) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 27, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Fimmta hvert barn, gullmolinn af safninu frá 1947 og Guðrún Helga lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 27, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!